Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 32
32 8. desember 2007 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1931 Ný lög um notkun bif-
reiða tekin í gagnið. Í
þéttbýli er leyfilegur hraði
aukinn úr 18 kílómetrum
á klukkustund í 25 kíló-
metra en annars staðar í
45 kílómetra. Í dimmu má
þó undir engum kringum-
stæðum aka hraðar en á
30.
1941 Bandaríki Norður-Amer-
íku lýsa yfir stríði á hend-
ur Japönum, degi eftir
árás þeirra á Perluhöfn,
og gerast þar með þátt-
takendur í seinni heims-
styrjöldinni.
1991 Sovétríkin líða endanlega
undir lok er Rússland,
Hvíta-Rússland og Úkra-
ína lýsa yfir endalokum
sovéskrar ríkisstjórnar.
Að kvöldi dags sneri John Lennon
heim til sín ásamt spúsu sinni
og vildi fá sér eitthvað að borða
og segja góða nótt við son sinn
Sean, áður en hann sneri aftur
í stúdíóið. Í staðinn fyrir að láta
limósínuna keyra inn í öruggan
bakgarð stigu hjónakornin út fyrir
framan húsið.
Í því sem Lennon gekk á
eftir Yoko í átt að stigahúsinu
tók hann eftir lágvöxnum og
þybbnum manni standa fyrir
framan húsið. Maðurinn virtist
frekar skrítinn og Lennon
greikkaði sporið, en þá kallaði
maðurinn „Mr. Lennon!“ Lennon sneri sér að
manninum, sem var þá kominn í vígastellingu
með skammbyssu í höndunum og skaut Lennon
umsvifalaust. Fjögur skot af fimm
hæfðu og hvert fyrir sig olli alvar-
legum innvortist meiðslum, eitt
þeirra tók í sundur ósæðina.
Byssumaðurinn settist á gang-
stéttarbrún og beið rólegur eftir
lögreglunni á meðan Lennon
staulaðist upp nokkrar tröppur og
hné niður.
Lennon var fluttur í snarhasti
upp á spítala. Á leiðinni reyndi
sjúkraliðinn að halda athygli
Lennons og spurði „Veistu hver
þú ert?“ Hann kinkaði veiklulega
kolli, reyndi að tala en gat aðeins
komið upp úr sér hryglum. Sam-
kvæmt Yoko Ono voru engin hinstu orð. John
Lennon missti meðvitund stuttu seinna og var
úrskurðaður látinn á Roosevelt-spítalanum.
ÞETTA GERÐIST: 8. DESEMBER 1980
John Lennon skotinn til bana
70 ára afmæli
Í tilefni af sjötugsafmælinu býður
Sigurdór
Eggertsson
ætting jum og vinum í kaffi
sunnudaginn 9. desember kl. 16.00
í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar,
Laufásvegi 13.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður,afa og langafa,
Jóns Guðjónssonar
rafvirkjameistara, Hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Brautarlandi 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins
Eirar fyrir einstaka umönnun og hlýlegt viðmót.
Arndís Guðjónsdóttir
Guðjón Magnús Jónsson Sigríður Þorláksdóttir
Margrét Katrín Jónsdóttir
Hrönn Guðjónsdóttir Björn Baldvinsson
Magnea Ólöf Guðjónsdóttir Halldór Kjartansson
Björnsson
Arndís Guðjónsdóttir Magnús Örn Guðmarsson
Jón Þór Guðjónsson Eva Björg Torfadóttir
Hrafn Eyjólfsson
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir Halldór Ingi Hákonarson
Jón Örn Eyjólfsson
og barnabarnabörn.
Vinur okkar,
Jón Pálmi Karlsson (Jónsi),
verkamaður, Heiðarbraut 37, Akranesi,
áður til heimilis í Skorholti, Melasveit,
varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn
2. desember. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 11. desember kl. 13.00.
Jarðsett verður í Saurbæjarkirkjugarði á
Hvalfjarðarströnd.
Jón Sveinsson Guðrún Magnúsdóttir
Elskulegur sonur okkar, bróðir, barnabarn
og barnabarnabarn,
Kristinn Veigar Sigurðsson
Birkiteig 17, Keflavík,
lést af slysförum laugardaginn 1. desember.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
11. desember kl. 14.00.
Anna Guðbjörg Kristinsdóttir Birgir Stefánsson
Sigurður Óskar Sólmundarson Vilborg Rós Eckard
systkinin, afar, ömmur, langamma og langafi.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ástráður Valdimarsson,
Hraunsholtsvegi 2, Garðabæ,
lést á Landspítalanum Fossvogi, miðvikudaginn
5. desember. Útförin auglýst síðar.
Kristjana Margrét Guðmundsdóttir
Guðrún Ástráðsdóttir Már Þorvaldsson
Hjördís Ástráðsdóttir Peter Tompkins
Brynja Ástráðsdóttir Pétur Bjarnason
og afabörn.
Elskuleg systir mín og móðursystir,
Guðbjörg Sigurðardóttir
ljósmóðir, frá Kárastöðum í
Helgafellssveit,
lést á Hrafnistu v. Brúnaveg 2. desember. Útförin
fer fram frá Fossvogskirkju 14. desember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Orgelsjóð
Stykkishólmskirkju, reikningur 309-18-930076
kt. 630269-0839. Minningarkort fást í Heimahorninu,
s. 438 1110.
Fyrir hönd aðstandenda,
Aðalheiður Sigurðardóttir
Margrét Sigurðardóttir
Í dag eru liðin tuttugu ár frá stofnun
Nýrrar dögunar, sem eru samtök um
sorg og sorgarviðbrögð.
Ný dögun var formlega stofnsett 8.
desember árið 1987 og starfsemi þess
felst í stuðningi við þá sem eiga um
sárt að binda vegna ástvinamissis.
Séra Elínborg Gísladóttir er for-
maður samtakanna og sér um að
skipuleggja almenna fræðslufundi
og samverustundir, vinna að stofnun
stuðningshópa og standa fyrir nám-
skeiðahaldi og þjálfun stuðningsaðila
sem hjálpa syrgjendum.
„Við erum alltaf með átta fræðslu-
fundi á ári, fjóra að hausti og fjóra að
vori. Fyrir jól buðum við upp á fyrir-
lestur sem hét jólin og sorgin, fyrir þá
sem eru að ganga í gegnum sín fyrstu
jól eftir ástvinamissi. Það hefur staðið
kirkjunni nálægt að sinna þessu fólki.
Þó bjóðum við ekki upp á bein viðtöl.
Í febrúar höfum við alltaf verið með
fræðslu um sjálfsvíg og bjóðum þá
fólki að vera í hópavinnu í sex til átta
skipti,“ segir Elínborg.
Hjá Nýrri dögun er til ákveð-
ið hugtak sem heitir „sorgarvinna“.
Að missa ástvin er áfall og því fylgir
sorg. Maður þarf að leggja á sig vinnu
til að komast í gegnum hana og fyrir
suma er gott að gera slíkt í hópum.
Þar liggur eitt helsta svið Nýrrar dög-
unar; að koma á stofn slíkum hópum.
Samtökin eru með heimasíðu á net-
inu sem heitir sorg.is. Þar má finna
fréttir, upplýsingar og greinargóðar
lýsingar á starfi félagsins. Meðal ann-
ars eftirfarandi:
„Fyrir syrgjandann verður nótt
sorgarinnar löng og ljós vonarinn-
ar víðs fjarri um sinn. En við lifum
samt dagana. Við höfum ekki stjórn
yfir þeim. Dagarnir líða þótt við upp-
lifum þá sem í þoku og myrkri. Svo
lifum við nýja dögun: Þegar hin langa
ganga í gegnum langa nótt sálarinnar
tekur endi förum við að greina örlitla
birtu. Það er ekki vegna þess að við
séum búin að gleyma sorginni heldur
hefur hún færst inn í nýja vídd þar
sem dauðinn einn, nóttin ein, ræður
ekki lengur.“
Klausan er tekin úr texta á heima-
síðunni sem útskýrir tilurðina á nafni
samtakanna. Þar er „sorgarvinnunni“
líkt við það þegar forfeður okkar Ís-
lendinga ýttu bátskeljum sínum úr vör
þegar dögunin var ennþá aðeins örlítil
skíma í austri og ætluðu út á haf að
leita sér lífsbjargar: samtökin eiga að
vera vettvangur nýrrar dögunar fyrir
syrgjendur.
Ný dögun eru frjáls félagasamtök
sem byggja tilvist sína og starfsemi á
fjárframlögum og félagsgjöldum.
niels@frettabladid.is
NÝ DÖGUN, SAMTÖK UM SORG OG SORGARVIÐBRÖGÐ: 20 ÁR FRÁ STOFNUN
„Í döguninni er líka nýtt upphaf“
SORG OG SORGARVIÐBRÖGÐ Séra Elínborg Gísladóttir er formaður samtakanna Ný dögun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HÓRAS (QUINTUS HORATIUS
FLACCUS) FÆDDIST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 65 F.KR.
„Sá sem frestar þeirri stundu
að lifa réttilega er eins og
sveitadurgur sem bíður eftir
að fljótið renni til þurrðar
áður en hann fer yfir.“
Hóras var eitt helsta ljóðskáld Rómverja á tímum
Águstusar. Eftir að Júlíus Sesar var myrtur gekk Hóras
í herinn þar sem hann barðist undir stjórn Brútusar. Að
eigin sögn bjargaði hann lífi sínu með því að kasta frá
sér skildinum og flýja.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 550 5000.