Fréttablaðið - 08.12.2007, Page 73
LAUGARDAGUR 8. desember 2007 57
Hjátrúarfullur fram í
fingurgóma
Félaginn, Tryggvi Jónsson
Við Einar erum góðir vinir og
höfum ferðast mikið saman
undanfarið. Flestar sögurnar
mínar eru af væntumþykju og
virðingu við hann ekki
prenthæfar. Hins vegar var
það einu sinni þannig að við
vorum búnir að mæla okkur
mót úti í London á föstudegi en
við vorum að fara að skrifa
undir samninga og síðan fékk
ég neyðarkall um að ég yrði að
koma degi fyrr út og fundur-
inn yrði að vera haldinn á
fimmtudagskvöldi klukkan tíu
og því fylgdu engar skýringar
- það væri bara eitthvað mikið
um að vera. Síðan mæti ég og
fleiri, þetta var fólk víða að,
sem allt breytti sínum plönum
fyrir Einar. Við göngum frá
samningnum og aldrei fann ég
út af hverju þessi þrýstingur
var að breyta fundinum. Af
hverju þessi hamagangur var,
allir að koma fyrr út og við að
kvöldi til að klára samninga.
Þá var það vegna þess að
daginn eftir var föstudagurinn
þrettándi. Og hann er svo
hjátrúarfullur að hann gat ekki
hugsað sér að skrifa undir
samning á föstudegi. Það
myndi bara boða ógæfu þannig
að hann setti allt á annan
endann, bara vegna þessa.
Einar hefur alltaf verið
hjátrúarfullur, sama hvað hver
segir honum, og labbar til
dæmis ekki undir stiga og ef
svartur köttur hleypur fyrir
hann svitnar hann. En þetta
hefur samt kannski komið
honum áfram í lífinu. Allavega
ekki skaðað hann.
Ný
tt
kor
tatíma
bil!
Af árshátíð í upptökur
Nylon-söngkonan, Alma Guðmundsdóttir
Þegar Nylon var að byrja. Þetta var
hreinlega fyrsta vikan í sögu hljómsveitar-
innar og við vorum bara búin að hittast
einu sinni og funda. Þá var ég í Íþróttaskól-
anum í Garðabæ og við vorum að setja upp
söngleik og ég var að leika í honum, Litlu
hryllingsbúðinni, og það var búið að vera
svakaleg vinna í kringum það, brjálaðar
æfingar og svo framvegis. Um kvöldið er
svo frumsýning og árshátíð seinna um
kvöldið. Einar Bárðarson hringir þegar ég
er nýkomin af frumsýningunni, að stíga inn
í sturtuna og ætla að gera mig til fyrir
árshátíðina. Hann hringir og segir að ég
verði að mæta strax í stúdíó að taka upp
Lög unga fólksins. Ég stend þarna inni á
baði og það er bara: „Já, taka upp, núna,
Lög unga fólksins, niðri í Thule stúdíói.“
Það skipti engum þótt ég segði honum að ég
væri á leiðinni á árshátíð. Hann sagði að
þetta gæti ekki beðið og þegar kemur að
Einari Bárðarsyni - þá segir maður ekkert
nei við hann. Þetta var auvitað æðislega
gaman en þetta er mjög lýsandi fyrir Einar.
Þegar hlutirnir eiga að gerast þá eiga þeir
að gerast og hann kemur þeim í fram-
kvæmd. Það er bara þannig. Hann er með
allt sitt á hreinu. Og samt gerir hann allt í
góðu því hann er mjög hjartahlýr maður.
En það er engin tilviljun að hlutirnir gerast
hjá honum og ég held að það sé þessi
magnaða blanda sem hann er: Þessi ákveðni
sem hann hefur í bland við gæsku. Sá
kokkteill hrífur fólk.