Fréttablaðið - 24.12.2007, Qupperneq 8
8 24. desember 2007 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Heldur meira
hefur selst af tóbaki síðustu sex
mánuði, frá því reykingabann á
veitinga- og skemmtistöðum tók
gildi, en á sömu mánuðum í fyrra.
Sé tekið tillit til mannfjölda hefur
tóbakssala þó heldur dregist
saman. Þetta kemur fram í sölu-
tölum Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins (ÁTVR).
„Það er stutt síðan bannið tók
gildi, og þarna getur margt annað
haft áhrif,“ segir Viðar Jensson,
verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá
Lýðheilsustöð.
Hann bendir á að tilgangurinn
með frumvarpinu hafi ekki verið
að draga úr reykingum, heldur
hafi lögum verið breytt vegna
vinnuverndarsjónarmiða.
„Það er alltaf jákvætt að neysla
á tóbaki dragist saman,“ segir
Viðar. Neysla á tóbaki hafi verið
að dragast saman undanfarin ár,
en sú minnkun sem orðið hafi á
þessu tímabili er þó meiri en
meðal tal undanfarinna ára.
Frá 1. júní síðastliðnum hafa að
meðaltali selst tæplega 135 þús-
und karton af sígarettum á mán-
uði í verslunum ÁTVR. Á sama
tímabili í fyrra seldust að meðal-
tali tæplega 134 þúsund karton.
Aukningin mælist 0,7 prósent.
Það segir þó aðeins hálfa sög-
una, því fólksfjölgun hefur verið
talsverð á tímanum. Þegar
seldum sígarettupökkum er deilt
niður á fjölda landsmanna,
fimmtán ára og eldri, kemur í
ljós að hver landsmaður kaupir
að meðaltali aðeins færri pakka
en áður.
Á þeim sex heilu mánuðum sem
liðnir eru frá reykingabanninu
hefur hver landsmaður, 15 ára og
eldri, að meðaltali keypt 5,5 pakka
af sígarettum, eða 110 sígarettur.
Til gamans má geta þess að þetta
samsvarar því að meðalmaðurinn
reyki 3,6 sígarettur á dag. Á sömu
sex mánuðum síðasta árs var meðal-
talið 5,6 pakkar, eða 112 sígarettur.
Samdráttur í kaupum á tóbaki frá
ÁTVR er því 1,77 prósent.
Rétt er að benda á að inni í
þessum tölum er ekki sala í Frí-
höfninni og tóbak sem ferðamenn
og aðrir taka með sér til landsins.
brjann@frettabladid.is
Heldur dregur
úr tóbakssölu
Hver landsmaður 15 ára og eldri keypti að meðaltali
110 sígarettur á mánuði frá því reykingabann á veit-
ingastöðum tók gildi 1. júní síðastliðinn. Þetta er 1,8
prósenta samdráttur miðað við sama tíma í fyrra.
DREPIÐ Í Minnkandi sala á sígarettum er í takti við þróun undanfarinna ára, þó að
þróunin hafi verið hraðari síðustu sex mánuði en meðaltal undanfarinna ára.
NORDICPHOTOS/AFP
SALA ÁTVR Á SÍGARETTUM
Seldir sígarettupakkar á hvern mann
15 ára og eldri að meðaltali.
Mánuður 2006 2007
Breyting
Júní 5,7 5,5
-2,2%
Júlí 5,5 6,0
9,4%
Ágúst 6,0 5,7
-4,3%
September 5,5 4,8
-13,9%
Október 5,4 5,5
1,4%
Nóvember 5,3 5,3
-0,5%
Meðaltal 5,6 5,5
-1,8%
Heimild: ÁTVR og Hagstofa Íslands
SVÍÞJÓÐ Evrópudómstóllinn hefur komist að
þeirri niðurstöðu að aðgerðir sænska
byggingamannasambandsins Byggnads, frá
því í nóvember 2004, brjóti reglur Evrópu-
sambandsins um frelsi til að veita þjónustu
yfir landamæri. Forsvarsmenn Byggnads
stöðvuðu vinnu hjá lettneska byggingafyrir-
tækinu Laval til að knýja á um að félagið
greiddi lettneskum starfsmönnum, sem
bjuggu og störfuðu við byggingu skóla í
bænum Växholm, laun samkvæmt sænskum
kjarasamningum en ekki lettneskum.
„Dómurinn hefur enga þýðingu á Íslandi,“
segir Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ.
„Í Svíþjóð er ekkert kerfi á vinnumarkaði
sem tryggir það að allt launafólk njóti
verndar kjarasamninga sem lágmarkskjara.
Verkalýðshreyfingin verður að ná kjara-
samningi við hvern og einn atvinnurekanda
fyrir sig ef þeir eru utan samtaka atvinnu-
rekenda. Þetta metur Evrópudómstóllinn
sem ófullnægjandi kerfi. Dómurinn hefur
engin áhrif á Íslandi því að okkar kerfi
uppfyllir þessa reglu tilskipunarinnar,“
segir hann.
Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Samiðnar, bendir á að íslensk lög
kveði á um að kjarasamningar gildi sem
lágmarkslaun fyrir alla starfsgreinar, hvort
sem fyrirtæki séu í samtökum atvinnurek-
enda eða ekki. Þannig sé ekki löggjöfin í
Svíþjóð og þar liggi munurinn. Svíana vanti
lagalega tengingu.
Á vefsíðu ASÍ segir að dómurinn valdi
ákveðnum vonbrigðum. Magnús telur að
Svíarnir þurfi nú að íhuga breyttar reglur
og kveða skýrar á um lágmarkslaunaákvæði
og lágmarksréttindaákvæði á sænskum
vinnumarkaði. - ghs
Evrópudómstóllinn telur aðgerðir Svía stríða gegn þjónustufrelsi yfir landamæri:
Dómurinn hefur engin áhrif hér á landi
ÞORBJÖRN
GUÐMUNDSSON
MAGNÚS
NORÐDAHL.
1 Í hvaða bandarísku borg
eru Íslendingar meðal helstu
viðskiptavina Bang & Olufsen-
hljómtækjaverslunarinnar?
2 Hvað eru leikir Real Madrid
og Barcelona kallaðir?
3 Hvað heitir útrásararmur
Landsvirkjunar?
SVÖRIN ERU Á BLAÐSÍÐU 66
VEISTU SVARIÐ?