Fréttablaðið - 24.12.2007, Page 28

Fréttablaðið - 24.12.2007, Page 28
28 24. desember 2007 MÁNUDAGUR E f Jósef og María kæmu til Betlehem núna fyrir jól má búast við að þau ættu erfitt með að finna gistingu. Öll hótel eru uppbókuð og ferðamennirnir streyma til bæjarins helga sem Ísraelar hafa haldið í heljargreipum áratugum saman af ótta við illvirki heimamanna. Ísraelsk og palestínsk stjórnvöld reikna með að 60 þúsund ferðamenn leggi leið sína til Betlehem og annarra helgra staða í landinu núna í jólamánuðinum. Þetta verða þrisvar sinnum fleiri ferðamenn en á síðasta ári. Ísraelar og Palestínumenn hafa í ár unnið saman að því að skipuleggja móttökurnar sem þetta fólk fær. Meðal annars hafa Ísraelar að nokkru aflétt þeim ströngu ferðahömlum sem Palestínumenn hafa búið við undanfarin ár. Auðveldara hefur verið að fá ferðaleyfi til Betlehem en þekkst hefur um langa hríð. Hápunktur ferðarinnar verður tvímæla- laust heimsókn í Fæðingarkirkjuna sem stendur við torg sem heitir Jötutorg. Kirkjan er reist á þeim stað þar sem talið er að Jesú Kristur hafi fæðst fyrir tvö þúsund árum. Undir kirkjunni er lítil hellishvelfing og þar niðri hefur gyllt stjarna verið lögð í marmaragólfið nákvæmlega þar sem trúaðir telja vera fæðingarstað frelsarans. Kirkja var fyrst reist á þessum stað á fjórðu öld eftir Krist, en sú sem nú stendur þar er frá sjöttu öld og er ein af elstu starfandi kirkjum heims. Bæði ísraelskir og palestínskir ráða- menn ætla að taka þátt í helgiathöfnum í kirkjunni nú um jólin, þeirra á meðal bæði Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu- stjórnar. Kirkjunni sjálfri hefur oftast verið hlíft við átökum Ísraela og Palestínumanna, en vorið 2002 flýðu um 200 Palestínumenn inn í kirkjuna undan ísraelska hernum, sem hafði ráðist inn í Betlehem til að leita þar herskárra Palestínumanna. Umsátur Ísraela um kirkjuna stóð vikum saman og féllu þar tíu Palestínumenn, þar á meðal hringjari kirkjunnar. Ferðamenn hópast til Betlehem Undanfarin ár hefur verið dauft yfir jólahaldi í Betlehem, litla bænum sunnan við Jerúsalem þar sem sagan segir að frelsari mannkyns hafi fæðst. Þrúgandi hernámsástand og harðvítug átök hafa fælt ferðamenn frá, en í ár virðast horfurnar betri. HIÐ ALLRA HELGASTA Í fæðingarkirkjunni bíða menn í röðum eftir því að fá að krjúpa við hið allra helgasta, litla hellisskútann þar sem kristnir menn telja að Jesús Kristur hafi fæðst. NORDICPHOTOS/GETTY JÓLATRÉÐ SKREYTT Palestínumaður skreytir jólatré við fæðingarkirkj- una í Betlehem. FRÉTTABLAÐIÐ/AP JÓLASVEINNINN MÆTTUR Jólasveinn þessi, sem er af palestínskum ættum, sýndi heldur betur af sér kæti þegar hann fór framhjá fæðingarkirkj- unni í Betlehem nú í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KVEIKT Á KERTUM Jólahald verður varla nokkurs staðar hátíðlegra en einmitt í fæðingarkirkjunni í Betlehem. Þessi tveggja ára snáði, sem heitir Yakubto, fær þarna aðstoð frá föður sínum við að kveikja á einu af kertunum í kirkjunni, sem kristnir menn trúa að hafi verið reist nákvæmlega á þeim stað þar sem jatan stóð fyrir tvö þúsund árum. NORDICPHOTOS/GETTY MÚRINN Í BETLEHEM Aðskilnaðarmúrinn milli Ísraels og herteknu svæðanna á Vesturbakkan- um hlykkjast meðfram litla bænum Betlehem. Hinum megin múrsins búa Ísraelsmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN ARNÓRSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.