Fréttablaðið - 24.12.2007, Page 54

Fréttablaðið - 24.12.2007, Page 54
50 24. desember 2007 MÁNUDAGUR folk@frettabladid.is > FLOKKAR GJAFAPAPPÍRINN Leikkonan Katie Holmes er afar skipu- lögð í jólaundirbúningnum. „Hún flokkar gjafapappírinn utan um jóla- gjafirnar eftir því hvort þiggjandi pakkans er fjölskyldumeðlimur, vinur eða viðskiptafélagi,“ segir vinur fjölskyldunnar. Colin Farrell segist vera þreyttur á því að fólk haldi að sonur hans, hinn fjög- urra ára gamli James, sé alvarlega veikur. Írski leikarinn greindi nýlega frá því að James sé með Angelman-heil- kenni, en það er sjaldgæft form heila- lömunar. Hann segir að James gangi vel. „James hefur tekið miklum fram- förum. Angelman er heilkenni, ekki sjúkdómur,“ segir leikarinn. Angelman- heilkenni hrjáir einn af hverjum 12 þús- und, og veldur því að fólk á erfitt með bæði gang og tal. Þá veldur það einnig tíðum flogaköstum, en þeir sem eru með heilkennið eru oft glaðir og jákvæðir að eðlisfari. Í viðtali við írska blaðið Independent fyrr á árinu kvaðst Farrell vera afar stoltur af syni sínum, og sagði það bless- un að vera faðir. Þá sagði hann einnig að í einu skiptin sem hann yrði var við að eitthvað væri öðruvísi við James, væri þegar hann væri í hóp annarra fjögurra ára gamalla barna. „Þá hugsa ég, „ó, já“, og ég man eftir því. En frá fyrsta degi hefur mér fundist að hann sé eins og hann eigi að vera,“ sagði Farrell. Farrell og barnsmóðir hans, Kim Bordenave, eru með sameiginlegt for- ræði yfir James. Farrell sagðist í viðtali við People ætla að verja jólunum með syni sínum. „Öll fjölskyldan verður saman. Hvað við ætlum að gera? Ekk- ert. Þetta venjulega – horfa á kvikmyndir, borða mat og taka því rólega.“ Sonur Farrell tekur framförum LEIÐUR Á MISSKILNINGI Colin Farrell er þreyttur á því að fólk haldi að sonur hans sé alvarlega veikur. Hann gerir greinar- mun á heilkenni og sjúkdómi. NORDICPHOTOS/GETTY Mugison, Sprengjuhöllin, Hjaltalín og Jakobínarína voru á meðal þeirra sem komu fram á níundu jóla- tónleikum X-ins 977, X-mas, á Gauki á Stöng. Stemningin var prýðisgóð enda hafa tónleikarnir alltaf verið vel sóttir og vinsælir í gegnum árin. Alls stigu tólf hljómsveitir á svið og spiluðu jólalög með sínu sniði. Allur ágóði af tónleikunum rennur til samtakanna Foreldrahús. Jólastemning á X-mas ROKK OG RÓL Stemningin á Gauknum var góð enda rokkaði hver sveitin á fætur annarri sem mest hún mátti. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR SAMAN Á X-MAS Steinar, Silja og Þórdís létu sig ekki vanta á tónleikana. SKÁL! Fanney og Hreiðar skáluðu, enda virtust þau skemmta sér vel á tónleik- unum. Vilhjálmur prins var ekki lengi að nýta tækifærið þegar unnustan Kate Middleton kvaddi Bretland og hélt til Barbados þar sem hún dvelst ásamt fjölskyldu sinni yfir jólin. Kate var varla flogin yfir Big Ben þegar Vilhjálmur fór ásamt félögum sínum á einn fínasta bar Lundúna, Tramp, og ef marka má myndirnar frá heim- ferðinni fékk hann sér nokkuð ótæpilega í tána. En breskir fjölmiðlar telja sig sjá nokkur batamerki á hegðun prinsins, sem hingað til hefur ekki verið við eina fjölina felldur. Tramp er nefnilega mikill hefðarstaður og alls ólíkur þeim strippklúbbum sem Vilhjálmur hefur stundað ásamt bróður sínum Harry. Og Bretar binda miklar vonir við það að Vilhjálmur festi bráðum sitt ráð því Kate og prinsinn hafa verið nánari en nokkru sinni og þótt þau dvelji fjarri hvort öðru yfir jólin ætla þau að taka á móti nýju ári í sameiningu. Fór strax á barinn FARIN Kate verður á Barbados með fjöl- skyldu sinni um jólin en kemur heim í faðm hins aðalborna þegar nýju ári verður fagnað. VINKONUR Vinkonurnar Ásdís og Ólöf stilltu sér upp fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins. Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Samkvæmt lögum VR auglýsir kjörstjórn eftir framboðum í stjórn og trúnaðarráð félagsins. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn skriflegt erindi til kjörstjórnar á skrifstofu VR. Skrifleg meðmæli 10 félagsmanna þarf vegna framboðs til setu í stjórn. Framboð til setu í trúnaðarráði er hægt að senda rafrænt á kjorstjorn@vr.is Framboðsfrestur er til 8. janúar 2008 Kjörstjórn Hefur þú áhuga á að starfa í forystu VR? Jólaball FIT og TR Jólaball Félags iðn- og tæknigreina og Trésmiðafélags Reykjavíkur verður haldið fi mmtudaginn 27.desember kl. 16 í Kiwanissalnum við Engjateig. Gleðin verður með hefðbundnum hætti jólasveinar, nammipokar, kaffi og kökur. Verð 1000kr. fyrir fullorðna en frítt fyrir börnin. Stjórnir FIT og TR Auglýsingasími – Mest lesið DJAMMARI Vilhjálmi þykir fátt jafn skemmtilegt og að skála í góðu víni með félögum sínum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.