Fréttablaðið - 24.12.2007, Side 57
MÁNUDAGUR 24. desember 2007 53
Alicia Keys vill að Jamie Lynn
Spears tali fyrir því að unglingar
stundi öruggt kynlíf. Alicia telur að
Jamie Lynn, sem eins og margir
vita tilkynnti í vikunni að hún ætti
von á barni, aðeins sextán ára
gömul, ætti að nýta stöðu sína til að
koma í veg fyrir að aðrir unglingar
stökkvi upp í rúm.
„Ég held að hún gæti notað þetta
tækifæri til að tala um hversu mikil-
vægt það er að stunda öruggt
kynlíf, og að það sé erfitt
fyrir unglinga að halda aftur
af sér en að það sé að sama
skapi afar mikil vægt, því
þetta breytir öllu lífinu.
Þetta er mjög alvarlegt
mál,“ segir söng konan.
Alicia sagði við sama
tækifæri að hún héldi
að frægð og frami Jamie Lynn gæti
hafa verið ein orsök þess að hún
byrjaði að stunda kynlíf svo ung.
Hún segir að skemmtanaiðnaðurinn
sé þess eðlis að fólki finnist engin
takmörk fyrir því hvað það geti
fengið eða gert. „Þú færð allt sem
þú biður um. Þú gætir verið þrett-
án, þú gætir verið níu, þú gætir
verið fjörutíu og sjö. Það skiptir
engu máli,“ segir Alicia. „En málið
er að þetta verður mjög erfitt,
því flestir í bransanum eru
mjög ungir, og það er auð-
velt að hafa áhrif á okkur,“
bætir hún við.
Tali fyrir öruggu kynlífi
Á AÐ NOTA TÆKIFÆRIÐ Alicia Keys segir
að Jamie Lynn Spears ætti að nota
tækifærið til að segja öðrum unglingum
að stunda öruggt kynlíf.
SEXTÁN OG ÓLETT Fréttir af
þungun Jamie Lynn Spears
bárust í vikunni, en hún er
aðeins sextán ára. gömul.
Leikstjórinn
Woody Allen
ætlar á næsta
ári að
leikstýra
sinni fyrstu
kvikmynd
í heima-
borg sinni
New York í
nokkur ár. Allen
sagði skilið við
heimaland sitt fyrir nokkrum árum
og ákvað að taka upp myndir sínar
í Evrópu vegna þess að honum
þótti það auðveldara. Nú virðist
honum hafa snúist hugur. Talið er
að sinnaskiptin eigi rætur sínar að
rekja til vandamála sem tengjast
myndinni Vicky Christina Barce-
lona, sem var tekin upp í spænsku
borginni í sumar.
Leikarinn Kiefer Sutherland, sem
þarf að eyða jólahátíðinni á bak við
lás og slá, fær enga stjörnumeðferð
í fangelsinu. Hann þarf að elda
fyrir samfanga sína og þvo óhreina
tauið af heimilislausu fólki sem
fær að gista í fangelsinu af og til.
Vegna þess hve fólkið
er óhreint þegar það
mætir á staðinn hefur
Kiefer leyfi til að fara
tvisvar á dag í
sturtu. Honum
verður sleppt úr
haldi í janúar
eftir að hann
hefur afplán-
að dóm sinn
fyrir ölvunar-
akstur.
Leikarinn Rupert Everett segir það
litlu skipta þótt leikkonan Jodie
Foster hafi komið út úr skápnum
á dögunum. Hún sé orðin allt of
gömul til að hafa einhver áhrif á
gang mála í Hollywood. „Hún er 45
ára og nennti bara ekki að standa
í þessu lengur. Eftir að hafa náð
ákveðnum aldri getur fólk verið
samkynhneigt í
Hollywood. Fyrir
þann tíma er
það ekki bara
slæmt fyrir
ferilinn heldur
ómögulegt,“
segir Rupert,
sem er sjálfur
samkynhneigður.
Söngkonan og vandræðagemling-
urinn Amy Winehouse á sölu-
hæstu plötu ársins í
Bretlandi. Hún hefur
selt yfir 1,5 millj-
ónir eintaka
af plötu sinni
Back to Black
síðan hún kom
út í október í fyrra.
Fyrsta plata hennar,
Frank, sem kom út
2003, hefur jafn-
framt selst í yfir 300
þúsund eintökum
á árinu vegna
vinsælda Back to
Black.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Chris Martin, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Coldplay, hefur getið
sér gott orð sem pípari í athvarfi
fyrir heimilislausa í London. Sam-
kvæmt heimildarmanni í athvarf-
inu hefur hann verið duglegur við
að hjálpa þar til undanfarin ár.
„Chris hefur séð um pípulagnirn-
ar fyrir athvarfið. Hann gerir þetta
frítt á hverju ári. Hann þykir víst
mjög handlaginn,“ sagði heimildar-
maðurinn. Talsmaður athvarfsins
vildi ekkert tjá sig um pípulagn-
ingahæfileika söngvarans. „Um sjö
þúsund sjálfboðaliðar hjálpa okkur
um jólin. Sumir eru frægir en við
getum ekki nefnt þá á nafn sem
vilja ekki að sagt sé frá starfi
þeirra.“
Chris er góður pípari
CHRIS MARTIN Forsprakki Coldplay
þykir afar fær pípulagningamaður.
Bee Movie TM & © 2007 DreamWorks Animation L.L.C. All Rights Reserved
BEEMOVIE.COM
LUK
KULEIKUR
BY
RS
OG
HONEY NUT CHEERIOS
Milljón ástæður til að taka þátt!
Vinningur að verðmæti
300.000,-
Ferðavinningur fyrir tvo
50.000 króna ferðaávísun
Gjafakörfur frá Nathan &
Olsen
Árskort í bíó
Miðar í bíó
DVD myndir
VINNINGAR Í LUKKULEIKNUM
Nældu þér í Honey Nut Cheerios í næstu búð og
taktu þátt í léttum leik. Fjöldi glæsilegra vinninga!
Heildarverðmæti
vinninga er
1 milljón króna!