Fréttablaðið - 24.12.2007, Side 64

Fréttablaðið - 24.12.2007, Side 64
60 24. desember 2007 MÁNUDAGUR KÖRFUBOLTI Tiffany Roberson, miðherji Grindavíkurliðsins í Ice- land Express-deild kvenna, á mik- inn þátt í að lið hennar er búið að vinna sex leiki í röð í deildinni. Roberson hefur skorað 27,7 stig og tekið 17,7 fráköst í leik í sigur- göngunni en það er frammistaða hennar í þremur leikjum gegn aðalkeppinautum liðsins í desem- ber sem gerir Grindavíkurliðið að líklegum meistaraefnum í deildinni. Roberson átti stórleiki í öllum þremur leikjum mánaðar- ins en sá besti hjá henni var þegar Grindavík vann KR, 86-84. Þetta var í annað skiptið í röð sem Grindavík stöðvar langa sigur göngu og vinnur topplið deildarinnar á heimavelli sínum í jólamánuðinum en Roberson var með 30 stig og 20 fráköst í 92-90 sigri á Keflavík 1. desember. Keflavíkurliðið var þá á toppnum líkt og KR fyrir leikinn á mið- vikudagskvöldið og hafði auk þess unnið átta fyrstu leiki sína á tímabilinu. KR hafði unnið sex leiki í röð þegar það mætti í Röst- ina en réð engan veginn við Roberson sem var með 39 stig, 26 fráköst og 5 stoðsendingar í leiknum og fékk 61 stig í fram- lagseinkunn fyrir leikinn. Roberson hefur hækkað stigaskor, fráköst og framlagt sitt í hverj- um mánuði tímabils- ins til þessa eins og sjá má í töflu sem fylgir greininni. Hún hefur farið frá því að vera með 21 stig og 17,5 fráköst í októ ber í að vera með 33,7 stig og 18,3 fráköst að meðaltali í jólamánuðin- um. Roberson var með 29,0 í framlagi í fyrsta mán- uði sínum hér á landi en var komin upp í 44,0 í framlagi fyrir desember. Það má leiða líkur að því að Tiffany sé nú fyrst að komast í sitt besta leikform sem sést ekki síst á spilatíma hennar. Hún hefur farið úr því að spila 33,3 mínútur í leik í október í það að spila 41,0 mín- útur að meðal tali í leik í desember en Grindavík lenti þá í framlengingu í einum leik sinna. Nú hljóta Grindvíkingar bara að vona að hún tapi ekki miklu af forminu í veisluhöldum fjölskyld- unnar í Bandaríkjunum yfir hátíð- arnar. - óój TÖLFRÆÐI TIFFANY EFTIR MÁNUÐUM Í VETUR: Framlag í leik Október 29,0 Nóvember 32,2 Desember 44,0 Stig í leik Október 21,0 Nóvember 24,2 Desember 33,7 Fráköst í leik Október 17,5 Nóvember 18,0 Desember 18,3 Nýting (Skot utan af velli - víti) Október 51,6% - 70,8% Nóvember 44,9% - 71,4% Desember 55,9% - 82,1% Grindavíkurliðið er komið á skrið í Iceland Express-deild kvenna og hefur unnið sex deildarleiki í röð: Frábær desembermánuður hjá Tiffany RÆÐUR ENGIN VIÐ HANA? Tiffany náði tveimur leikj- um í desember þar sem hún skoraði yfir 30 stig og tók jafnframt 20 fráköst eða fleiri. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Inter Milan náði sjö stiga forskoti í ítölsku deildinni með því að vinna nágranna sína í AC Milan 2-1 í gær. Inter er með 43 stig en næst koma lið Roma með 36 stig og Juventus með stigi minna. Það dugði ekki Evrópumeistur- unum að Andrea Pirlo kom þeim yfir eftir 15 mínútur því Argent- ínumennirnir Julio Cruz og Esteban Cambiasso tryggðu Inter sigur. Inter er enn ósigrað í deildinni í vetur og vann þarna sinn sjötta deildarleik í röð. Tapið hjá AC Milan þýðir það hins vegar að liðið á enn eftir að vinna ítalskt lið á heimavelli sínum á tímabilinu og er nú 25 stigum á eftir nágrönnum sínum. AC Milan á reyndar þrjá leiki inni á Inter og möguleikarnir á ítalska meistaratitlinum eru orðnir afar litlir. - óój Stórleikur ítalska fótboltans: Inter vann ná- grannaslaginn EKKERT GENGUR Liðsmenn Inter klöpp- uðu fyrir AC Milan í upphafi leiks en tóku síðan öll stigin. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Hornfirðingurinn Pálmar Hreinsson er tekinn við sem aðal styrktar- og þolþjálfari sænska liðsins Djurgården en hann hefur verið í þjálfarateymi liðsins undanfarið ár. Pálmar tekur við stöðu Ola Johansson en þjálfari Djurgården er Íslendingurinn Sigurður Jónsson og gerði hann frábæra og óvænta hluti með liðið á síðasta tímbili. - óój Sænska fótboltadeildin: Pálmar tekur við Djurgården HANDBOLTI Ólafur Stefánsson og félagar hans í Ciudad Real unnu spænska deildarbikarinn fimmta árið í röð í gær þegar liðið vann 25-23 sigur á Asemar Leon í úrslitaleik. Ólafur skoraði 2 mörk í leiknum, bæði með langskotum, en hann misnotaði aftur á móti bæði vítaköstin sín. Þeir Siarheir Rutenka og Alberto Enterrios voru markahæstir í liðinu með 6 mörk hvor en Ciudad lét Danijel Saric verja fjögur af sex víta- köstum liðsins í leiknum. Ólafur átti mjög góðan leik og skoraði sex mörk úr átta skotum þegar Ciudad Real vann heima- menn í Valladolid 34-28 í undan- úrslitaleiknum á laugardags- kvöldið. Rutenka var maður helgarinnar en hann skoraði 16 mörk úr aðeins 21 skoti í leikjunum tveimur. Ciudad Real hafði unnið Portland San Antonio í þremur síðustu úrslitaleikjum en fyrsta árið vann liðið Barcelona. - óój Ciudad deildarbikarmeistari: Vann fimmta árið í röð TVÖ MÖRK Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FRÁBÆRT MARK Julio Baptista fagnar sigurmarki sínu í gær. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Real Madrid vann 1-0 sigur á Barcelona á Nou Camp í risaleik spænska boltans í gær- kvöldi. Það var Brasilíumaðurinn Julio Baptista sem skoraði eina mark leiksins tíu mínútum fyrir hálfleik. Þetta var aðeins annar sigur Real Madrid í 25 leikjum á Nou Camp en Barcelona hafði unnið 16 af 24 leikjum liðanna á vellinum fyrir leikinn í gær. Real Madrid er komið í frábær mál í baráttu sinni fyrir því að verja spænska meist- aratitilinn því eftir leikinn í gær er liðið komið með sjö stiga for- skot á Barcelona. Enginn Eiður Smári Það má segja að það hafi farið smá sjarmi af El clásico fyrir íslenska knattspyrnuáhugamenn þegar það kom í ljós að Frank Rijkaard hafði ákveðið að breyta liði Barcelona sem lék svo vel í 3-0 sigri á Val- encia um síðustu helgi. Sú breyt- ing hollenska þjálfarns gekk alls ekki upp og meistaradraumar liðs- ins urðu nánast að engu með þessu tapi því með því náði Madrídar- liðið sjö stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar. Eiður Smári Guðjohnsen þurfti sem sagt að sætta sig við það að setjast á bekkinn og þeir Ronald- inho og Deco voru báðir komnir inn í byrjunarliðið. Eiður settist því á varamannabekkinn við hlið manna eins og Gianluca Zam- brotta, Thierry Henry og Lilian Thuram. Þar voru líka ungstirnin Giovani og Bojan sem skorti kannski að mati Rijkaard reynslu fyrir leiki sem þennan. Rijkaard valdi hins vegar að senda þá Giovani og Bojan inn á völlinn í seinni hálfleik og okkar maður sat því á bekknum allan leikinn. Dómari leiksins, Mejuto Gonz- ález, var ekkert að gefa leikmönn- um Barcelona mikið af ódýrum aukaspyrnum í þessum leik og skipti þar engu máli þótt risa- stjörnur liðsins engdust um af að því er virtist ímynduðum sársauka. Í nokkur skipti höfðu leikmenn Bar- celona þó eitthvað til síns máls. Barcelona var mun sterkari aðilinn framan af leik og leikmenn Real Madrid gátu þakkað fyrir það að lenda ekki undir á fyrsta hálftíma leiksins. Fyrst bjargaði Casillas boltanum af tánum á bæði Samuel Eto’o og Deco í sömu sókn- inni og síðan varði hann frábær- lega frá Ronaldinho í dauðafæri beint fyrir fram markið. Það voru hins vegar leikmenn Real Madrid sem skoruðu fyrsta markið og það mark var ekki af lakari gerðinni. Julio Baptista og Ruud van Nistelrooy spil- uðu hálofta þríhyrninga- spil í gegnum vörn Börs unga og Baptista afgreiddi boltann síðan viðstöðulaust upp í fjær- hornið rétt innan víta- teigs. Liðsheild Real Madrid var sterk í þessum leik en einstaklings- framtakið var oftast í fyrir- rúmi hjá heimamönn- um í Barce- lona. Þeir reyndu að sækja á þéttskip- aða vörn Real Madr- id í seinni hálfleik en lítið gekk. Það skipti engu þótt Rijkaard setti þá Giovani og Bojan inn á til þess að reyna að lífga upp á leik liðsins. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir hollenska þjálfarann, sem ákveð- ur að breyta sigurliði og stendur uppi bæði stiga- og markalaus. Leikurinn er líka tvöföld von- brigði fyrir okkar mann sem gerði sér miklar vonir um að fá að byrja leikinn. Eitthvað segir manni þó að í næsta leik, sem verður gegn CD Alcoyano í bikarnum 2. jan- úar, verði Eiður Smári Guðjohn- sen aftur kominn inn í byrjunarlið Barcelona. ooj@frettabladid.is STÓR MISTÖK? Frank Rijkaard tók Eið Smára Guðjohnsen út úr byrjunarliðinu og stóð uppi marka- og stigalaus. NORDICPHOTOS/AFP FRÁBÆRT ÚTHLAUP Iker Casillas bjargaði Real Madrid með vel tímasettu úthlaupi í fyrri hálfleik. NORDICPHOTOS/AFP Real Madrid að stinga Barcelona af Eiður Smári Guðjohnsen var settur út úr liði Barcelona fyrir El clásico í gærkvöldi og þurfti að horfa upp á sína menn tapa 0-1 á heimavelli og lenda sjö stigum á eftir erkifjendum sínum í Real Madrid. KVARTAÐ OG KVEINAÐ Ronaldinho stóð sig best í að biðla til dómarans þegar hann vildi ítrekað fá vítaspyrnu dæmda. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.