Fréttablaðið - 24.12.2007, Page 70

Fréttablaðið - 24.12.2007, Page 70
66 24. desember 2007 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 JÓLAMATURINN „Eins og alltaf borða ég hjá tengdamömmu á aðfangadag. Máltíðin er breytileg á milli ára en ávallt fjórrétta. Hún er ítölsk svo við fáum eitthvert ítalskt ljúfmeti, mjög ólíkt íslenskum jólamat.“ Hörður Torfason söngvaskáld „Nei, merkilegt nokk, þá hefur þetta ekkert minnkað eftir að maður hvarf af skjánum,“ útskýrir matreiðslumaðurinn Siggi Hall en hann er væntanlega meðal þeirra síðustu sem setjast að jólaborðinu á aðfangadagskvöld. Ástæðan er þó ekki að Siggi er svona seinn með allt heldur hringir fólk í hann nán- ast allan aðfangadag og óskar eftir aðstoð eða hreinlega fyrstu hjálp með jólamatinn. Og beiðnirnar geta verið af öllum stærðum og gerðum; allt frá því að brúna kart- öflur, búa til uppstúf og eiga við frosnu jólasteikina. „Mest eru það þó brúnuðu kartöflurnar og upp- stúfurinn sem eru að flækjast fyrir fólki,“ segir Siggi. Eiginkonan, Svala Ólafsdóttir, er fyrir löngu hætt að kippa sér upp við þetta og Siggi segist reyna að taka öllu með mestu ró. „Fólki finnst það bara hafa aðgang að manni og mér rennur blóðið til skyldunnar, fyrst ég var nú einu sinni svona vitlaus að gefa þjóðinni persónu mína,“ segir Siggi, sem jafnvel er stoppaður út á götu og spurður álits á hinu og þessu. „Ég verð nú samt pirraður þegar fylli- bytturnar hringja, þá nenni ég þessu ekki, en annars er ég bara blíður og þægur,“ segir Siggi. - fgg Siggi Hall bjargar jólunum á hverju ári Hafnfirsku skemmtikraftarnir Laddi og Björgvin Halldórsson, sem báðir halda upp á fjörutíu ára starfsafmæli sín í ár, hafa samanlagt velt um 385 milljónum króna á rúmu ári með geisladiskasölu sinni, tónleik- um og leiksýningum. Laddi hefur á þessu ári selt tæp sautján þúsund eintök af plötum sínum Hver er sinnar kæfu smiður og Jóla hvað? ásamt eldri plötum sem voru endurútgefnar. Vinsældir Ladda á plötumarkaðinum haldast í hendur við hina geysivinsælu sýningu hans Laddi 6-tugur sem var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í febrúar. 81 sýningu er nú lokið og alls hafa rúmlega fjörutíu þúsund manns hlegið sig máttlausa yfir uppátækjum Eiríks Fjalars, Saxa læknis og félaga. Björgvin hefur á árinu selt plötur sínar Íslandslög 7, Íslandslög 1-6, Jólagestir 4 og Jólagestir 1-3 ásamt safnplöt- unni Þó líði ár og öld sem kom út 2005 í tæpum tæpum tuttugu þúsund eintök- um. Að auki hélt Björgvin þrenna jólatónleika fyrir troðfullri Laugar- dalshöll á dögunum sem um níu þúsund manns sáu. Einnig eru teknir með í reikninginn þrennir tónleikar Björgvins með Sinfóníuljómsveit Íslands í lok september í fyrra fyrir framan níu þúsund manns og plata með tónleik- unum sem hefur selst í um átján þúsund eintök- um. Má því með sanni segja að þessir tveir stuðboltar hafi borið höfuð og herðar yfir aðra í skemmtanbransanum að undanförnu og uppskorið rækilega eftir því. Þótt þeir fái ekki nema hluta af veltunni í eigin vasa ættu þeir að eiga fyrir salti í jólagrautinn og rúmlega það. Með veltu er átt við það hversu mikið fólk hefur greitt fyrir plöturnar þeirra og aðgang að tónleikunum og sýningunum. Ekki er reiknað með skatti eða kostnaði sem þeir eða útgáfufyrirtæki þeirra hafa þurft að inna af hendi vegna verkefnanna. freyr@frettabladid.is LADDI OG BJÖRGVIN: KÓNGARNIR Í ÍSLENSKU SKEMMTANALÍFI Veltan hundruð milljóna á rúmu ári „Við keyptum hús á Selfossi í nóvember og erum að klára að standsetja það núna, en við ætlum að búa á báðum stöðunum,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem segir það ekki stórmál að standa í slíkum framkvæmdum í desember. „Við tókum okkur ágætan tíma í þetta og það einfaldar málin að við erum ekki að flytja heldur koma okkur fyrir á öðrum stað til viðbótar.“ Björgvin og sambýliskona hans María Ragna Lúðvígsdóttir ætla ásamt sex börnum þeirra að skipta hátíðunum í tvennt og halda þær á báðum heimilunum, annars vegar í nýja húsinu á Selfossi og hinsvegar á bænum Skarði í Gnúpverja- og Skeiðahreppi þar sem þau hafa búið undanfarin ár. „Við verðum í Skarði um jólin en milli jóla og nýárs ætlum við að klára að koma okkur fyrir í húsinu á Selfossi. Áramótunum ætlum við svo að eyða þar.“ Björgvin segir að það henti fjölskyldunni einfaldlega betur að eiga tvö heimili. „Það er helmingi styttra fyrir mig að keyra í vinnuna frá nýja staðnum, styttir vegalengdina úr 100 km niður í 50 km. Það var annað hvort að flytja í bæinn eða flytja nær honum og við vorum öll mjög spennt fyrir því að flytja á Selfoss. Það hafði líka sitt að segja að við fundum hér skemmtilegt hús. Við gátum hins vegar ekki hugsað okkur að sleppa heimilinu uppi í hreppi og ætlum þess vegna að eiga það áfram.“ Jólahaldið á heimilinu er hefðbundið að sögn Björgvins en það er enn tvísýnt með jólamat- inn. „Það er hefð úr fjölskyldu konunnar að borða rjúpur á jólunum en ég er alinn upp við að borða hamborgarhrygg. Við tókum hennar hefð upp í því en ég held reyndar að ekki sé búið að útvega rjúpurnar núna svo það er heldur tvísýnt,“ sagði Björgvin fyrir helgina. Eflaust er þó búið að leysa úr þessu nú. - sók Heldur hátíðirnar á tveimur heimilum BJARGVÆTTUR JÓLAMATARINS Sím- hringingum hefur ekkert fækkað þrátt fyrir að Siggi Hall sé í pásu frá skjánum. LÁRÉTT 2. getraun 6. hæð 8. krá 9. skýra frá 11. íþróttafélag 12. goðmögn 14. masar 16. grískur bókstafur 17. þrí 18. einkar 20. tveir eins 21. steintegund. LÓÐRÉTT 1. máta 3. í röð 4. keppikefli 5. dýrahljóð 7. lengdareining 10. svif 13. veitt eftirför 15. land 16. fálm 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. gátu, 6. ás, 8. bar, 9. tjá, 11. kr, 12. tótem, 14. malar, 16. pí, 17. trí, 18. all, 20. kk, 21. talk. LÓÐRÉTT: 1. hátt, 3. áb, 4. takmark, 5. urr, 7. sjómíla, 10. áta, 13. elt, 15. ríki, 16. pat, 19. ll. NÓG AÐ GERA Í DESEMBER Björgvin G. Sigurðsson hefur haft nóg að gera í jólamánuðinum því hann, konan og sex börn þeirra eru að koma sér fyrir á nýju heimili. BJÖRGVIN HALLDÓRSSON Íslandslög 1-6: 5.000 eintök Íslandslög 7: 4.200 eintök Jólagestir 1-3: 4.500 eintök Jólagestir 4: 5.000 eintök Þó líði ár og öld: 500 eintök Sinfóníuplata: 18.000 eintök Sinfóníutónleikar: 9.000 manns Jólatónleikar: 9000 manns Velta samtals: Um 208 milljónir BJÖRGVIN HALLDÓRSSON Björgvin fyllti Laugardalshöll sex sinnum á rúmu ári. LADDI Þórhallur Sigurðsson, Laddi, ætti að vera sáttur við ársuppskeruna. ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON Hver er sinnar kæfu smiður: 8.500 eintök Jóla hvað?: 5.500 eintök Endurútgáfur: 2.500 eintök Laddi 6-tugur: 40.000 manns Velta samtals: Um 177 milljónir VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á blaðsíðu 8 1 Boston. 2 El clásico. 3 Landsvirkjun Power. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.