Tíminn - 03.04.1981, Page 1
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 ■ Afgreiðsla og áskrift 86300 Kvöldsímar 86387 & 86392
„Óskir um 66% aukningu birgðarýmis”, segir Ólafur Jóhannesson um Helguvíkurmálið:
„Ólíklegt að teknar verði
ákvarðanir á næstunni”
JSG — Ólafur Jóhannesson,
utanrikisráðherra, skýrði frá
þvi á Alþingi i gær, að óskir
varnarliðsins á Keflavikurflug-
velli hvað varðar byggingu
nýrra eldsney tisgey ma i
grennd við völlin, fælu i sér
bvggingu geymarýmis er næmi
samtals 186 þúsund rúmmetr-
um. Þar af væri um að ræða 154
þúsund rúmmetra rými i
Helguvik, en 32 þúsund rúm-
metra rými á flugvallarsvæðinu
sjálfu. Jafnhliða byggingu þess-
ara nýju geyma væri ætiunin að
afieggja mikið geymarými en
að teknu tiliiti til þess þýddu
óskir varnariiðsins að birgðar-
rými fyrir flugvéiaeldsneyti
vegna Kefla víkurstöðvarinnar
yrði aukið um 66%.
Núverandi tankarými her-
stöðvarinnar nemur 65.183
rúmm. i Keflavik, 50.874 rúmm.
i NATO tönkum i Hvalfirði, og
46.471 i leigutönkum i Hvalfirði.
Þessa leigutanka er hugmyndin
að afleggja og ennfremur allt
tankarýmið við Keflavik.
Til viðbótar þeim birgðum sem
neíndar hafa verið, hefur
bandariski flotinn geymslurými
i Hvalfirði fyrir oliu á skip, sem
nemur 45.787 rúmm. Er hug-
myndin að halda þessu rými,
sem einnig er i leigutönkum,
áfram. Sé þetta rými fyrir
skipaeldsneyti reiknað inn i
heildargeymslurými Banda-
rikjamanna á Islandi, myndi
aukning geymslurýmisins að
uppfylltum öskum varnarliðsins
nema 36%.
Óláfurkvaðst hafa viljað gera
grein fyrir þessum tölum til
þess að imyndaðar tölur yrðu
úr sögunni i þessu máli.
Menn gætu séð að hér væri ekki
um að ræða tvöföldun, þre-
földun, eða jafnvel fjórföldun
birgðarýmis.eins og haldið hafi
verið fram.
Eingöngu óskir
varnarliðsins.
Ólafur lagði áherslu á að hér
væru eingöngu um óskir varn-
arliðsins að ræða. ,,Ég hef að
sjálfsögðu aldrei fallist á þessa
aukningu, enda hefur engin
ákvörðun verið tekin i málinu,
og ekki liklegt að svo verði gert
á næstunni,” sagði Ólafur.
Samkvæmt áætlun sem nefnd
utanrikisráðuneytisins og varn-
arliðsins varð sammála um,
fara fram jarðvegsathuganir á
Helguvikusvæðinu á þessu ári,
en siðan er ætlunin að vinna að
hönnun framkvæmdanna á
næsta ári. Verklegar
framkvæmdir gætu þá hafist
1983, en þeim er ætlað að standa
i sjö ár.
Ólafur Jóhannesson kvaðst
hafa talið, og telja enn, nauð-
synlegt að endurnýja, og jafn-
framt flytja, þá tanka sem nú
væru i Keflavik m.a. vegna
mengunarhættu, og skipuiags-
vandamála.
„Frá minu leikmannssjónar-
miði,” sagði ráðherra hins
vegar, ,,þá virðist mér það nú
vera helst til nærri byggð sem
tönkunum er ætlað að vera, i
Helguvik”.
Umræður um Helguvikur-
málið spunnust vegna þings-
ályktunartillögu nokkurra
Reykjanesþingmanna um aö
framkvæmdum i Helguvik yrði
hraðað. Utanrikisráöherra
kvaðst i gær lita svo á að yrði
þessi tillaga samþykkt i þing-
inu, hefði ákvörðun um að ráö-
ast i framkvæmdirnar verið
tekin. Sú ákvörðun næði þó ekki
stærðar birgðarýmisins.
(Timam. GE)
Stundakennarar hefja
verkfallsvörslu í H.Í.
AB — Samstaða
stundakennara við Há-
skóla íslands I verk-
fallinu sem skall á 1.
april sl. hefur verið
mjög góð. Þó hafa
nokkrir stundakennar-
ar við H.í. haldið uppi
kennslu i sinum grein-
um, og til þess að koma
i veg fyrir að nokkur
stundakennsla fari
fram i H.í. á meðan á
verkfallinu stendur,
hafa Samtök stunda-
kennara stofnað verk-
fallsnefnd og verður
frá og með deginum i
dag verkfallsvarsla i
Félagsstofnun stúdenta
frá kl. 10 til 17 daglega.
1 samtali við Helga borláks-
'son sem situr i stjórn Samtaka
stundakennara, i gær kom fram
að lítil brögö hafa verið að þvi.
að stundakennarar hafi kennt I
verkfallinu. Sagði Helgi að sam-
staðan væri mjög góö i heim-
spekideild og félagsvisinda-
deild.
Sagði Helgi að það heföi
spurst i Verkfræöi- og raunvis-
indadeild i gærmorgun aö sér-
fræðingar þeir sem þar kenna,
og höföu taliö sig knúna til þess
að halda uppi kennslu, þvi Félag
háskólakennara semdi fyrir þá,
hefðu a.m.k. fjórir þeirra
ákveðið að fara i verkfall, til
þess aö lýsa yfir stuöningi viö
kröfur stundakennara. Stunda-
kennarar eru aö sjálfsögðu
ánægðir meö þennan stuöning
og telja að hann styrki málstað
þeirra til muna.
Miðstjórnarfundurinn hefst í dag
Stór-
bruni
í Borg-
artúni
Stórbruni varö i Borgartuni 3 i
fyrrinótt er Uilamalun Ein-
ars Guömundssonar, brann
Skemmdir urcu emnig a Gler-
iðjunni h.l . sem þarna er til liusa.
en grunur leikur a aö upptok
eldsins liati veriö ai vöklum
ikveikju og vinnur Kannsóknar-
lögreglan nú að rannsókn a því.
Ljost er að tjonið at völdum
brunans nemur hundruöum
þúsunda krona.
Sjá nánar
á bls. 3
HEI — Miðstjórnarfundur Fram-
sóknarflokksins verður settur i
dag kl. 13.30 að Hótel Heklu,
Rauðarárstig 18 i Reykjavik.
Dagskráin hefst aö vanda með
þvi aö formaður flokksins, Stein-
grimur Hermannsson, heldur
yfirgripsmikla ræðu um
stjórnmálaviöhorfið og þau mál
sem elst eru á baugi. Gjaldkeri
flokksins, ritari hans og fram-
kvæmdastjóri Timans flytja siö-
an sinar skýrslur. Að þvi loknu er
komið aö miðstjórnarmönnum aö
láta ljós sitt skina i almennum
umræðum.
1 gær var allt útlit fyrir að mjög
vel veröi mætt á fundinn.