Fréttablaðið - 22.01.2008, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 22. janúar 2008 19
AFMÆLI
ERLA
ÞORSTEINS-
DÓTTIR
söngkona
75 ára.
MARÍA
ELLINGSEN
leikkona 44
ára.
DIANE LANE
kvikmynda-
leikkona 43
ára.
MARGRÉT
KRISTÍN
BLÖNDAL
tónlistar-
kona og
bókarvörður
40 ára.
Í Hafnarhúsinu verð-
ur boðið upp á dagskrá af
ýmsu tagi á fimmtudags-
kvöldum, sem verður hér
eftir opið til kl. 22.00.
Listasafn Reykjavíkur
hefur af þessu tilefni geng-
ið til samstarfs við ýmsa
aðila sem munu koma að
dagskránni með einu eða
öðru móti. Meðal samstarfs-
aðila er félag um heimild-
armyndagerð sem kallast
Reykjavík Documentary
Workshop, en fyrsta mynd
félagsins verður sýnd í
Hafnarhúsinu fimmtudags-
kvöldið 24. janúar kl. 20.00.
Titill myndarinnar er
Borgarmúrar: Mín eigin
Teheran (2006, enskur texti)
eftir íranska leikstjórann
Afsar Sonia Shafie. Leik-
stjórinn verður sjálf við-
stödd sýninguna og svarar
spurningum að henni lok-
inni. Laugardaginn 26. jan-
úar kl. 14-16 býður félagið
einnig upp á heimildar-
myndaspjall með Shafie þar
sem hún ræðir um verk sín
með áherslu á persónulega
nálgun í heimildarmynda-
gerð. Spjallið fer fram í
Hafnarhúsinu og er að-
gangur ókeypis og allir vel-
komnir. Í fréttatilkynningu
frá Listasafni Reykjavíkur
kemur fram að myndin fjall-
ar um söguna af ömmu henn-
ar, móður og henni sjálfri. Á
afar persónulegan hátt segir
myndin okkur frá baráttu
kvenna um réttinn til fram-
fara. Heillandi mynd um
sterkar konur í Íran.
Leikstjórinn Afsar Sonia
Shafie fæddist árið 1968 í
Teheran í Íran. Árið 1988
lauk hún gráðu í félagsvís-
indum og hagfræði frá Fat-
emieh-skólanum í Teher-
an og 1992 lauk hún BA-
gráðu í heimspeki frá
Tabriz-háskólanum. Hún
nam við ECAL-skólann í
Sviss (École Cantonale de
l’Art Lausanne) frá 2000
til 2001. Hún lauk við gerð
fyrstu heimildarmyndar
sinnar árið 1997, undir The
Great Archer of the Mount-
ains.
Reykjavík Document-
ary Workshop er félag um
heimildarmyndagerð sem
hefur það markmið að vera
leiðandi afl meðal heimildar-
myndagerðarfólks hér-
lendis. RDW býður reglu-
lega til landsins erlendum
heimildarmyndaleikstjór-
um úr fremstu röð sem eru
viðstaddir opinberar sýn-
ingar á eigin verkum ásamt
því að leiða fræðandi spjall
um iðn sína. Að auki vinnur
RDW að uppbyggingu bóka-
safns sem saman stendur af
mynddiskum, myndbands-
spólum, bókum og tímarit-
um sem fjalla á einn eða
annan hátt um heimildar-
myndagerð. Með starfsemi
sinni vil RDW ryðja braut-
ina fyrir alþjóðlegt sam-
starf og skapa farveg fyrir
frjóa og þverfaglega um-
ræðu um sérhvert málefni
er heimildarmyndagerð
kemur við.
www.rdw.is.
Langur fimmtudagur í
Listasafni Reykjavíkur
FIMMTUDAGAR FRAM Á KVÖLD Næsta fimmtudag verður kvikmynda-
listin í hávegum höfð. Fram undan eru síðan fleiri viðburðir næstu
fimmtudaga í Hafnarhúsinu vetur.
Um helgina var opnaður
ferða- og upplýsingavefur-
inn www.visitakureyri.is.
Þar er að finna allar helstu
upplýsingar fyrir þá sem
ferðast til Akureyrar til
dæmis um hótel og gisti-
staði, veitingastaði, afþrey-
ingu og samgöngur.
Vefurinn er bæði á ís-
lensku og ensku og mark-
miðið er að sögn Akureyrar-
stofu að notendur upp-
lifi vefinn sem þægilegan
og einfaldan. Elín Margrét
Hallgrímsdóttir, formaður
stjórnar Akureyrarstofu,
opnaði vefinn á kynningu
sem Akureyrarstofa hélt
í Ketilhúsinu á laugardag-
inn og við sama tækifæri
var merki Akureyrarstofu
kynnt. Merkið er bókstafur-
inn A sem er myndaður úr
nútímalegu kassalaga formi
og gamaldags flúri. Flúrið
er fengið úr stafnskrauti
Menntaskólans á Akur-
eyri. Hönnuður er Þórhallur
Kristjánsson og hann segir
að merkið hafi vísan í fortíð
og framtíð og margbreyti-
legt hlutverk Akureyrar-
stofu.
Nýr ferðavefur
fyrir Akureyri
HEIMBOÐ NORÐUR Nýr vefur á vegum Akureyrarstofu var vígður um
helgina.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Kristjana E. Vigfúsdóttir,
Hvammi, Húsavík,
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
26. janúar kl. 14.00.
Guðbjartur V. Þormóðsson Auður Guðjónsdóttir
Leifur Kr. Þormóðsson María Aðalsteinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
Sigrúnar M. Magnúsdóttur
Bernburg,
Hörðalandi 20, Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 9. janúar á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli. Jarðsett var í kyrrþey 17. janúar að
ósk hinnar látnu.
Ásdís Bernburg
Elsa Bernburg Haraldur Baldvinsson
og fjölskyldur þeirra.
Helgi Sigurðsson,
Dvalarheimilinu Skálarhlíð á Siglufirði,
lést á sjúkrahúsi Siglufjarðar að morgni fimmtu-
dagsins 17. janúar. Útför hans verður gerð frá
Siglufjarðarkirkju laugardaginn 26. janúar kl. 14.00.
Jóhanna Helgadóttir Guðmundur Magnússon
Elínborg Helgadóttir Guðmundur Þór Kristjánsson
Símon Helgason Helen Meyers
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Gunnþórunn Jónasdóttir,
Gnoðarvogi 56, Reykjavík,
andaðist á heimili sínu föstudaginn 18. janúar síðast-
liðinn. Útförin verður auglýst síðar.
Einar S. Ingólfsson
Ásta Einarsdóttir
Dagur Freyr Ingason
og barnabörn.
Ástkær sambýliskona, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Elín Inga Hreiðarsdóttir
frá Raufarhöfn,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 11. janúar.
Útförin fór fram 18. janúar í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Þakkir til alls starfsfólks deildar 2c í Sóltúni
fyrir alla þá hlýju og umhyggju sem hún naut.
Sérstakar þakkir fyrir hlýhug og stuðning við
fjölskylduna í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Davíð Zophaníasson
Sigurbjörg Björnsdóttir
Soffía Björnsdóttir Guðjón S. Snæbjörnsson
Hreiðar Björnsson Bozena Björnsson
Guðmundur Björnsson Arnhildur H. Arnbjörnsdóttir
Ingi Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og langa-
langamma,
Ósk Hallsdóttir
frá Hrísey, Tinnubergi 6, Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn
16. janúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstu-
daginn 25. janúar kl. 13.00.
Garðar Sigurpálsson
Hulda Garðarsdóttir Erling Jóhannesson
Alma Garðarsdóttir Jón Guðmundsson
Sigurpáll Hallur Garðarsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
Sigmundur Sigurgeirsson
húsasmíðameistari, Þorragötu 9,
lést þriðjudaginn 15. janúar. Útförin fer fram frá
Seltjarnarneskirkju föstudaginn 25. janúar kl. 15.00.
Ásdís Sigurðardóttir
Sigurgeir Ó. Sigmundsson Ingunn Mai Friðleifsdóttir
Margrét Sigmundsdóttir Bjarni Ólafur Ólafsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Guðjónsson,
Laugalæk 40, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 19. janúar síðastliðinn.
Hjördís Georgsdóttir
María Jóna Gunnarsdóttir Jóhann Bergmann
Erla Gunnarsdóttir Vilhelm Fredriksen
Guðný Gunnarsdóttir Björn Jónsson
Guðríður Helga Gunnarsdóttir Bjarni Hákonarson
Kolbrún Viggósdóttir Jón S. Magnússon
Benóný Viggósson Alda Björnsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragnhildur Steinunn
Halldórsdóttir (Stella)
Reyrengi 31, áður Gautaborg,
lést á heimili sínu laugardaginn 19. janúar. Útför
hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju föstudaginn
25. janúar og hefst athöfnin kl. 13.00.
Sonny Andersson
Sæmundur Steinar Sæmundsson
Halldóra Lára Svavarsdóttir Hjálmar Kristjánsson
Jökull Svavarsson
barnabörn og barnabarnabörn.