Fréttablaðið - 22.01.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.01.2008, Blaðsíða 18
[ ]Hunang er gott að setja út í te þegar kvef og hálsbólga gera vart við sig. Það mýkir hálsinn og er betri kostur en hvítur sykur til að fá fram sætt og ljúffengt bragð. Einnig er gott að nota hunang í matargerð og bakstur og sumum finnst gott að nota það til náttúrulækninga. Eftir að læknar hurfu úr neyðar- bílum eiga landsmenn líf sitt undir bráðatæknum. Bráða- tæknar eru flestum kunnug- legir úr bandarískum spítala- þáttum en hvaða menntun býr að baki bráðatæknum? „Bráðatæknar hafa verið hið minnsta sex til tíu ár í sjúkraflutn- ingum, en áður en störf hefjast þurfa þeir að taka grunnnám sjúkraflutninga í Sjúkraflutninga- skólanum og síðan neyðarbíls- menntun eftir þrjú ár,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs- stjóri hjá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins, sem sér um ráðningar bráðatækna. „Eftir þessa grunnmenntun, auk starfsreynslu, geta menn sótt um að gerast bráðatæknar og þá velj- um við einstaklinga úr hópi umsækjenda og sendum til Pitts- burgh í Bandaríkjunum þar sem þeir sitja á skólabekk og eru í verk- legri þjálfun á sjúkrabílum, bráða- móttöku og ýmsum deildum sjúkra- húsa í níu mánuði,“ segir Jón Viðar og útskýrir betur hvers vegna Pittsburgh varð fyrir valinu. „Bráðatæknamenntun er upp- runnin í Bandaríkjunum og hefur þróast um allan heim. Eftir ráð- leggingar lækna hér heima ákváð- um við að senda okkar menn til Pittsburgh því þar er mjög mikið að gera og borgin mjög þróuð hvað varðar heilbrigðisgeirann eftir að stáliðnaður í Pittsburgh gaf sig. Við höfum einnig miðað okkur við Seattle, sem hefur afskaplega góðan árangur í sjúkraflutning- um, en í sjúkrabílum þar og almennt í Bandaríkjunum eru engir læknar í neyðarbílum,“ segir Jón Viðar og staðfestir að Pitts- burgh bjóði upp á allt sem Íslend- ingar þekkja úr bíómyndunum, og meira til. „Eftir námið vestra eru menn orðnir bráðatæknar og við höfum nú marga slíka. Þeir ganga nú inn í þetta nýja kerfi sem byggist á mjög öflugri fjarskiptaþjónustu við lækna og slysadeildir. Við erum jákvæðir gagnvart þessari þróun en því er ekki að leyna að við hefðum ekki verið tilbúnir í hana fyrir tíu árum vegna skorts á menntun á þessu sviði. Það er eftir- sjá að læknum sem hafa verið með okkur í sjúkrabílum frá árinu 1981, en án þeirra værum við ekki eins vel í stakk búnir né eins vel menntaðir til starfans, því læknar hafa frá upphafi hvatt menn á sjúkrabílum til að gera enn betur og ganga þetta langt í menntun á sviði sjúkraflutninga,“ segir Jón Viðar og tekur undir að starf bráða- tækna sé átakanlegt. „Við erum svo lánsamir að til okkar veljast eingöngu menn sem hafa gífurlegan áhuga á því að hjálpa og aðstoða, og það einkennir bráðatækna að hafa til að bera þá miklu manngæsku sem einkennir heilbrigðisgeirann. Þetta eru ævintýra- og aksjónmenn sem eru fljótir að taka ákvarðanir og mjög drífandi og duglegir í því sem þeir gera. Starfið er gefandi og upp úr stendur að mönnum er ekki sama. Það hreyfir alltaf við öllum þegar eitthvað bjátar á hjá öðrum,“ segir Jón Viðar og leggur áherslu á að engin áhætta verði tekin á slys- stað því bráðatæknar ráði vita- skuld ekki við allt. „Við búum við stuttar vega- lengdir og verðum í beinum fjar- skiptum við lækna, ásamt því að geta alltaf fengið lækna á staðinn. Bráðaatvik í sjúkraflutningum snúast mikið um endurlífganir, að stöðva blæðingar og greina ástand sjúklings. Fólk þarf ekki að vera hrætt og okkur þykir miður hvað fólk hefur skapað neikvæða sýn á þessa breytingu en höfum einsett okkur að láta verkin tala og vera dæmdir út frá þeim.“ thordis@frettabladid.is Ætla að láta verkin tala Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir bráðatækna fulla manngæsku og áhuga á að hjálpa náunganum. Þetta séu drífandi og dugmiklir ævintýra- og aksjónmenn með langa og mikla reynslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Tóbakslausi ein- staklingur ársins REYKSÍMINN OG LÝÐHEILSUSTÖÐ LEITA AÐ TÓBAKSLAUSA EINSTAKL- INGI ÁRSINS 2008. Reyksíminn og Lýðheilsustöð standa að verðlaunasamkeppn- inni Reyklaus 2008. Óskað er eftir sögum frá einstaklingum sem hafa hætt að reykja sem geta orðið öðrum hvatning til að gera slíkt hið sama. Samkeppnin er hluti af „European Smoke Free Awards 2008“ sem Evrópu- ráð reyksíma stendur að. Vinningshafinn á Íslandi fær ferð á evrópsku verð- launaafhendinguna í Am- sterdam ásamt 100.000 krónum í gjaldeyri. Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á vef Lýðheilsustöðvar, lyd- heilsustod.is. - ve Náttverður viss gildra HITAEININGARÍKAR MÁLTÍÐIR RÉTT ÁÐUR EN HÁTTAÐ ER GETA VERIÐ FITANDI. Góður náttverður rétt áður en farið er í rúmið er vani sem er varasamur ef vigtin er óvinur. Reyndar er ekkert eitt klukkuslag á sólarhringnum sem ræður því hve- nær líkaminn hættir að brenna en hitaeiningaríkir málsverðir seint að kveldi eru varasamir þeim sem ekki mega við því að bæta á sig og geta eyðilagt annars ágætan ár- angur í fæðuvali. Því telst hyggi- legra að borða síðustu máltíð dagsins að minnsta kosti tveimur tímum áður en gengið er til náða.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.