Fréttablaðið - 22.01.2008, Qupperneq 18
[ ]Hunang er gott að setja út í te þegar kvef og hálsbólga gera vart við sig. Það mýkir hálsinn og er betri kostur en hvítur sykur til að fá fram sætt og ljúffengt bragð. Einnig er gott að nota hunang í matargerð og bakstur og sumum finnst gott að nota það til náttúrulækninga.
Eftir að læknar hurfu úr neyðar-
bílum eiga landsmenn líf sitt
undir bráðatæknum. Bráða-
tæknar eru flestum kunnug-
legir úr bandarískum spítala-
þáttum en hvaða menntun býr
að baki bráðatæknum?
„Bráðatæknar hafa verið hið
minnsta sex til tíu ár í sjúkraflutn-
ingum, en áður en störf hefjast
þurfa þeir að taka grunnnám
sjúkraflutninga í Sjúkraflutninga-
skólanum og síðan neyðarbíls-
menntun eftir þrjú ár,“ segir Jón
Viðar Matthíasson, slökkviliðs-
stjóri hjá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins, sem sér um ráðningar
bráðatækna.
„Eftir þessa grunnmenntun, auk
starfsreynslu, geta menn sótt um
að gerast bráðatæknar og þá velj-
um við einstaklinga úr hópi
umsækjenda og sendum til Pitts-
burgh í Bandaríkjunum þar sem
þeir sitja á skólabekk og eru í verk-
legri þjálfun á sjúkrabílum, bráða-
móttöku og ýmsum deildum sjúkra-
húsa í níu mánuði,“ segir Jón Viðar
og útskýrir betur hvers vegna
Pittsburgh varð fyrir valinu.
„Bráðatæknamenntun er upp-
runnin í Bandaríkjunum og hefur
þróast um allan heim. Eftir ráð-
leggingar lækna hér heima ákváð-
um við að senda okkar menn til
Pittsburgh því þar er mjög mikið
að gera og borgin mjög þróuð hvað
varðar heilbrigðisgeirann eftir að
stáliðnaður í Pittsburgh gaf sig.
Við höfum einnig miðað okkur við
Seattle, sem hefur afskaplega
góðan árangur í sjúkraflutning-
um, en í sjúkrabílum þar og
almennt í Bandaríkjunum eru
engir læknar í neyðarbílum,“ segir
Jón Viðar og staðfestir að Pitts-
burgh bjóði upp á allt sem Íslend-
ingar þekkja úr bíómyndunum, og
meira til.
„Eftir námið vestra eru menn
orðnir bráðatæknar og við höfum
nú marga slíka. Þeir ganga nú inn
í þetta nýja kerfi sem byggist á
mjög öflugri fjarskiptaþjónustu
við lækna og slysadeildir. Við
erum jákvæðir gagnvart þessari
þróun en því er ekki að leyna að
við hefðum ekki verið tilbúnir í
hana fyrir tíu árum vegna skorts á
menntun á þessu sviði. Það er eftir-
sjá að læknum sem hafa verið með
okkur í sjúkrabílum frá árinu
1981, en án þeirra værum við ekki
eins vel í stakk búnir né eins vel
menntaðir til starfans, því læknar
hafa frá upphafi hvatt menn á
sjúkrabílum til að gera enn betur
og ganga þetta langt í menntun á
sviði sjúkraflutninga,“ segir Jón
Viðar og tekur undir að starf bráða-
tækna sé átakanlegt.
„Við erum svo lánsamir að til
okkar veljast eingöngu menn sem
hafa gífurlegan áhuga á því að
hjálpa og aðstoða, og það einkennir
bráðatækna að hafa til að bera þá
miklu manngæsku sem einkennir
heilbrigðisgeirann. Þetta eru
ævintýra- og aksjónmenn sem eru
fljótir að taka ákvarðanir og mjög
drífandi og duglegir í því sem þeir
gera. Starfið er gefandi og upp úr
stendur að mönnum er ekki sama.
Það hreyfir alltaf við öllum þegar
eitthvað bjátar á hjá öðrum,“ segir
Jón Viðar og leggur áherslu á að
engin áhætta verði tekin á slys-
stað því bráðatæknar ráði vita-
skuld ekki við allt.
„Við búum við stuttar vega-
lengdir og verðum í beinum fjar-
skiptum við lækna, ásamt því að
geta alltaf fengið lækna á staðinn.
Bráðaatvik í sjúkraflutningum
snúast mikið um endurlífganir, að
stöðva blæðingar og greina ástand
sjúklings. Fólk þarf ekki að vera
hrætt og okkur þykir miður hvað
fólk hefur skapað neikvæða sýn á
þessa breytingu en höfum einsett
okkur að láta verkin tala og vera
dæmdir út frá þeim.“
thordis@frettabladid.is
Ætla að láta verkin tala
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir bráðatækna fulla manngæsku og áhuga á að
hjálpa náunganum. Þetta séu drífandi og dugmiklir ævintýra- og aksjónmenn með langa og mikla reynslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Tóbakslausi ein-
staklingur ársins
REYKSÍMINN OG LÝÐHEILSUSTÖÐ
LEITA AÐ TÓBAKSLAUSA EINSTAKL-
INGI ÁRSINS 2008.
Reyksíminn og Lýðheilsustöð
standa að verðlaunasamkeppn-
inni Reyklaus 2008. Óskað er eftir
sögum frá einstaklingum sem hafa
hætt að reykja sem geta
orðið öðrum hvatning til að
gera slíkt hið sama.
Samkeppnin er hluti af
„European Smoke Free
Awards 2008“ sem Evrópu-
ráð reyksíma stendur að.
Vinningshafinn á Íslandi
fær ferð á evrópsku verð-
launaafhendinguna í Am-
sterdam ásamt 100.000
krónum í gjaldeyri.
Nánari upplýsingar um
keppnina er að finna á
vef Lýðheilsustöðvar, lyd-
heilsustod.is. - ve
Náttverður viss
gildra
HITAEININGARÍKAR MÁLTÍÐIR RÉTT
ÁÐUR EN HÁTTAÐ ER GETA VERIÐ
FITANDI.
Góður náttverður rétt áður en
farið er í rúmið er vani sem er
varasamur ef vigtin er óvinur.
Reyndar er ekkert eitt klukkuslag á
sólarhringnum sem ræður því hve-
nær líkaminn hættir að brenna en
hitaeiningaríkir málsverðir seint
að kveldi eru varasamir þeim sem
ekki mega við því að bæta á sig
og geta eyðilagt annars ágætan ár-
angur í fæðuvali. Því telst hyggi-
legra að borða síðustu máltíð
dagsins að minnsta kosti tveimur
tímum áður
en gengið
er til náða.