Tíminn - 28.06.1981, Blaðsíða 15
Sunnudagur 28. júni 1981
15
KAPPREIÐA veðmál
Landssamband hestamannafélaga
Fjórðungsmót á Suðurlandi
VERÐ MIÐA
AÐEINS KR.20.-
Albert Jóhannsson,
Skógum.formaður LH.
Þannig veðja ég.
Þetta er auðvelt. Geymið spána
og berið saman við aðrar spár.
Allir geta verið með.
Miðar seldir hjá umboðsmönn-
um, og hestamannafélögum.
250 metra skeið, úrslit
Roð Nafn hests
1 Skjóni
2 Villingur .
3 Frami
350 metra stökk, úrslit
Roð Nafn hests
1 Gjálp
2 Léttfeti
3 Kóngur
Getraun fyrir kappreiðar á fjórðungsmóti á Suðurlandi á
Hellu dagana 2. 5. júlí 1981. Geta á um nöfn þriggja fyrstu
hesta. A. í 250 m skeiði. B. í 350 m stökki.
Allir að reykja sömu
pípuna
Leiksýningin var byrjuð. Það
var leikflokkurinn Kraka. Sýn-
ingin fjallaði um hana KUnigUnd
sem fer grátandi Ut i heiminn en
svo finnur hUn drekann sinn. Það
var mög gaman aö fylgjast með.
— Hvað finnst þér um þetta,
spurði ég bóndann.
— Þetta var algjörlega óætur
djöfull.sagði Bondinn. — Ég á 450
rollur, bætti hann svo við.
— Er ekki hægt að lifa af þvi?
— Nei, það er ekkert upp Ur þvi
að hafa.
Ég þagði.
— Hvað helduröu að hafi komið
fyrir mig i gær, spurði böndinn.
— Ja, nU veitég ekki, sagði ég.
— Ég var boðinn i samkvæmi
hjá þessum Dönum, skyldmenn-
um mínum og það voru allir að
reykja þarna sömu bannsettu
pipuna. Það er undarlegur siður.
Það hefur nU bara hver sina pipu
fyrir sig i minni sveit. En ég
kunni ekki við annað en að gera
eins og hinir. Og allt i einu var ég
gjörsamlega lamaður. Ég gat
ekki hreyft mig. Djöfull brá mér.
— Og hvað gerðist svo, spurði
ég-
— Mér fannst ég vera kominn
heim í fjárhUs og þaö var alveg
furðulegur fjandi.
— NU, hvernig þá?
— Það varekkert nema hausinn
á mér i fjárhUsinu og mér fannst
hann alveg fylla upp i það. Ég var
að kæfa allar rollurnar. Svo var
ég allt f einu kominn hátt upp i loft
og sá bæinn ofan frá. Þá hætti
mér að litast á blikuna, skal ég
segja þér. Mér fannst ég þurfa að
leggjast upp i rUm en þegar til
átti aö taka gat ég ekki hreyft
mig. Ég sá fram á þaö að ég yröi
að skriða yfir stofugólfið og inn i
svefnherbergið. En ég gat ekki
látið Baunann horfa upp á það.
En'þá var ég svo heppinn að það
sprakk öryggi og á meðan fólkiö
fór fram að leita að kerti þá not-
aði ég tækifærið og skreið yfir
gólfiö. Mér fannst það vera
lengra en allur Sprengisandur.
Hver djöfullinn heldurðu að hafi
komið fyrir.’
— Hann er sterkur bjórinn
hérna i Kaupmannahöfn, sagði
ég.
— Þaö er vist alveg ábyggilegt
vinur, sagði bóndinn.
— Og hvað gerðist nU þegar þU
varst kominn upp i rUm, spurði
ég-
— Það var það skritnasta af öllu
saman. Mér fannst eins og bæjar-
lækurinn væri að renna i gegnum
mig. Og það er engin smáspræna
skal ég segja þér.
Mætti sjóða
kjötsúpu af honum
En nU byrjuðu Kamarorghestar
að spila. Það er hljómsveit skipuð
Islendingum búsettum i Höfn.
— Sérðu þennan feita sem er að
syngja, sagöi bóndinn.
— Já, sagði ég.
— Það mætti nU sjóða góða
kjötsUpu af honum. En sérðu
þennan mjóa við hliðina á honum.
Það er algjörlega óætur djöfull.
Það er ekki vitglóra i þessu.
— Enga vitleysu, sagði ég. —
Þetta er stórkostleg hljómsveit.
Ég var orðinn leiður á þvi að
hlusta á þennan bónda svo ég
ákvað að fá mér annan göngutUr
um salinn. Það var varla þverfót-
að. Svo barst ég upp á klósettið.
Þar stdð þá kunningi minn sem ég
hafði hitt fyrr um kvöldið.
— Ég á aðra viski upp á hóteli,
sagði hann.— A ég aö taka leigu-
bil og ná i þessa flösku.
Þegar ég kom aftur niður var
hljóðfæraleikur I myrkri á svið-
inu. Siðan féll ljósið á söngvar-
ann. Það stóð stUlka við hliðina á
mér og horfði bergnumin á.
— Hvað finnst þér, spurði ég.
— Hann er æðislegur maður,
vá, sagði stUlkan.
Allti'einu var bóndinn kunningi
minn kominn upp að hliðinni á
mér. Hann hélt á ölflösku og saup
af. Það var eins og hann væri aö
kyrkjast i jakkafötunum.
— Er þetta nU þessi Bubbi Mor-
teins, spurði bóndinn.
— Já, sagði ég.
— Ekki get ég nU séð hvað
blessaðar stUlkurnar sjá við
þennan mann.
— Enga afbrýðisemi, sagði ég.
— Sérðu, sagði bóndinn, nU fer
hann Ur skyrtunni. Hvað ætlar
bannsettur maðurinn að fara að
berhátta á sviöinu?
— Nei ætli það, sagöi ég.
— Það er nU ekki furöa að hann
skulifara Ur, hann er allur renn-
andi sveittur, sagði bóndinn og
það var samUðartónn i röddinni.
Ég þagði.
— Hann er allur tattóveraöur
drengurinn, sagöi bóndinn. Hvaö
erhann að æða þarna fram og aft-
ur getur hann ekki staöið kyrr
maðurinn.
Algjör kleppur
maður
Ég kom auga á svertingja og
datt i hug að fara og spyrja hvað
honum fyndist um ballið. En
bóndinn hnippti I mig.
— Þetta er algjör kleppur mað-
ur, sagði hann. En ég verö að
segja eins og er að ég get ekki séö
hvað kvenfólkið sér viö þennan
mann. Aumingja stUlkurnar. Ja,
mikið djöfull er maður heppinn að
vera ekki kvenmaður.
Ég gat ekki hlustað á þetta
lengur svo ég fór án þess að
kveðja og náði i negrann þar sem
hann stóð upp við vegg fölur og
fár.
— Hvernig list þér á dansleik-
inn, spurði ég.
— Hvað kemur þér það við,
sagði negrinn .
— Ég er oröinn að blaðamanni,
sagði ég.
— Ég hef farið fram og aftur
um alla Afriku, sagði negrinn, en
ég hef aldrei séð annað eins.
— Hvaö áttu við?
— Islendingar eru villimenn
(Your Icelanders are savages).
Það er það sem ég á við, sagði
negrinn.
Klukkan var farin að ganga tvö
svo ég kvaddi negrann og gekk
Ut Ur hUsinu i dyjnandi mUssIk-
inni. Ég átti hálfpartinn von á þvi
að Helgi Jónsson biði fyrir utan
með flugvélina. RáðubUinn að
fljUga mér aftur til Reykjavikur.
Móttökustöðvar: Hlíðartúo 22, Höfn, Hornafirði, Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri, Víkurskáli, Vík. Kf. Skaftf., Vik. Útibú
Kf. Þórs, Skarðshlið, Söluskálinn, Steinum, Söluskáli K. R., Hvolsvelli, Verslunin Björk, Hvolsvelli, Bensínafgreiðsla Kf.
Þórs, Hellu, Verslunin Grund, Flúðum, Félagsheimilið Árnes, Sundlaugin Brautarholti, Skeiðum, Fossnesti, Selfossi,
Þrastarlundur, Grímsnesi, Útibú Kaupfélags Árnesinga, Laugarvatni, Tjaldmiðstöðin, Laugarvatni, Eden, Hveragerði,
Allabúð, Hveragerði, Skálinn, Þorlákshöfn, Þverholt. Mosfellssveit. Húsgagnaverslun Á. Guðmundssonar, Skemmu-
vegi 4, Kópavogi, Rakarastofan Fígaró, Hamraborg, Verslunin Ösp, Hafnarfirði, Biðskýlið, Hvaleyrarholti. í Reykjavík:
Flestirsöluturnar
Getum afgreitt fljótlega UAZ-452 D
pick-up meö drifi á öllum hjólum á
sérstaklega hagstæðu verði
i
Verð m/palli ca. kr. 63.500.00
Verð án palls ca. kr. 59.800.00
UAZ-452 D pick-up