Tíminn - 28.06.1981, Síða 32
Sunnudagur 28. júni 1981
læti útaf list
29. mai 1913 var frumfluttur i
Théatre des Champs Élysées i
Paris ballet sem sá frægi dansari
Nijinsky haföi samiö við tónlist
eftir Igor Stravinski. Ballettinn
hét Vorblót. Og er skemmst frá
þvi aö segja að tónlistin var svo
byltingarkennd að mörgum
áhorfendum og hlustendum
fannst hún ekkert vera nema
anarki. Ekki bætti úr skák að Nij-
insky dansaði á mjög svo eggj-
andi máta! Fjölmargir áhorfenda
urðu svo hneykslaðir að þeir tóku
aðkalla frammi, blistra og láta á
annan hátt i ljósi óánægju sina.
Aðrir reyndu að stilla lýöinn en
gekk illa. Það kom til handalög-
mála á göngum leikhússins og
hermenn mættu á vettvang til að
stilla til friðar. Aður en varði
brutust óeirðir aftur út og héldu
áfram allt til loka sýningarinnar.
Mörgum árum siðar lét Pierre
Boulez, tónskáld og hljómsveitar-
stjóri, þau orð falla að Vorblótið
væri eitt mesta tónverk nútima-
tónlistar...
Þegar fjórða sýning á leikriti
Sean O’Caseys, Plógur og stjörn-
ur, stóð yfir i Abbey-leikhúsinu i
Dublin á Irlandi þann 11. febrúar
1926 kom til mikilla óeirða. 1 öðr-
um þætti gerist það meðal annars
i leikritinu — sem fjailar um
sjálfstæðisbaráttu Ira gegn Bret-
um — að nokkrar irskar frelsis-
hetjur sem taka þátt i Páskaupp-
reisninni koma með irska fánann
inná sviðið og nota hann fyrir
borðdúk. Mörgum góðum írum
meðal áhorfenda fannst þetta hin
versta móðgun við þá menn sem
látið höfðu lif sitt i Páskaupp-
reisninni og á f jórðu sýningu kom
til mikilla slagsmála. Ekki tókst
að hemja þau og brátt höfðu
leikararnir blandast inni þau.
William Butler Yeats, það fræga
skáld, var leikhússtjóri og hann
kallaði I lögregluna en steig siðan
uppá svið til að reyna að róa fólk-
iö áður en lögreglan kæmi.
Nokkru siðar barst honum hótun
um að leikhúsið yrði sprengt i loft
upp. A öllum sýningum sem eftir
voru var lögreglan viðstödd til að
koma i veg fyrir uppþot en
áhorfendur létu nærveru hennar
ekki aftra sér frá þvi að kalla si-
fellt svivirðingar aö leikurunum
eða þá kasta að þeim fýlusprengj-
um.
Það var i Paris i desember árið
1930 að tveir frægir listamenn,
Luis Bunuel og Salvador Dali
hugðust frumsýna kvikmynd sem
þeir höfðu gert i sameiningu. Hún
hét L’Age d’Or og er um illsku
mannsins og hræsni borgaralegs
þjóðfélags. 1 myndinni er gert
miskunnarlaust gys að siðum og
venjum sem tiökuðust i þjóðfé-
laginu, sem og þeim stofnunum
sem borgararnir reistu allt sitt á.
Einsog viö mátti búast var þeim
ekki skemmt. Eitt dagblaö sagði
myndina vera „klámfengna,
subbulega og ógeðslega” og ann-
aö tók fram i varúðarskyni að i
myndinni væru „föðurlandið,
fjölskyldan og trúarbrögðin dreg-
in niður i skitinn.” Harðorð grein
i mjög hægrisinnuðu dagblaði
varö til þess að öfgamenn til
hægri gerbu stöðugar árásir á
kvikmyndahúsið þar sem myndin
skyldi sýnd. Arásunum linnti ekki
i sex daga en þá höfðu öfgamenn-
irnir eyöilagt húsbúnaö og inn-
réttingar biósins að verðmæti 120
þúsund franka. Vegna þessara
miklu deilna var myndin ekki
sýnd opinberlega fyrr en eftir 35
ár.
Dadaistar voru sem kunnugt er
„anti-listamenn” sem lögðu sig
fram um að vekja hneykslun og
andúð almennings með þvi að
virða aðengu hefðir i listum. Allir
mestu dadaistarnir tóku þátt i
sýningu sem fram fór i Salle
Gaveau i Paris 26. mai 1920. Var
það einn af hápunktum dada-
hreyfingarinnar. Listamennirnir
gengu á svið og kynntu ljóð sin,
stefnuyfirlýsingar og teikningar
klæddir hinum furðulegustu bún-
ingum. André Breton var meö
tvær skammbyssur, Paul Eluard
var klæddur einsog ballerina og
sumir hinna voru með nokkurs
konar strompa á höfðinu. Þessir
búningar ásamt með þvi efni sem
þeir fluttu — en það innihélt gróf-
ar árásir á listina,heimspekinga,
siðfræðina, og um það bil allt sem
hið borgaralega hjarta taldi
nokkurs vert — kveiktu þvilika
reiði i brjóstum áhorfenda að
þeim fannst þeir ekki geta setið
þegjandi undir þessu. Tómötum,
eggjum og heilum steikum var
fleygt i listamennina og mikil
slagsmál hófust. Að sjálfsögðu
litu dadaistar svo á að sýningin
hefði tekist hið besta...
Arið 1962 var hinn frægi banda-
riski skemmtikraftur Lenny að
skemmta á Establishment
klúbbnum i London. Hann er óor-
þódox með afbrigðum og
skemmtiþættir hans fólust aðal-
lega i þvi að hann lýsti skoðunum
sinum á svo viðkvæmum málum
'sem klámi, kynlifi og eiturlyfjum
og fleiru. A hverju einasta kvöldi
urðu einhver uppþot, margir köll-
uðu frammi og aðrir gengu út.
Þeirra á meðal var rússneska
skáldið Jevgeni Jevtúsénkó —
öldungis hneykslaður. Leikrita-
skáldið John Osborne fór sömu
leið. Framkvæmdastjóri klúbbs-
ins fékk marga pústra fyrir að
hafa boðið Lenny að skemmta
þarna og var stundum laminn
illa. Ekki hafði þetta gengið lengi
þegar Lenny var lýstur óæskileg
persóna i Bretlandi og fluttur aft-
ur til heimalandsins þar sem
hann var nokkru siðar dreginn
fyrir rétt — ásakaöur um klám...
15. september 1974 komu marg-
ir sovéskir málarar saman i
Moskvu og héldu sýningu. Þessir
málarar máluðu i öllum hugsan-
legum stiltegundum nema einni
— sósialrealisma sem stjórnin
fyrirskipaði og þvi voru þeir
álitnir mjög ómögulegir. Er þeim
tókst ekki að halda sýningu sina i
sjálfri borginni héldu þeir á úti-
svæði i úthverfi borgarinnar.
Sovéska leyniþjónustan mætti á
staðinn vopnuð jarðýtum og
sprautubilum sem ruddust um
sýningarsvæðið og sköpuðu mikla
hættu fyrir áhorfendur. Lögreglu-
menn réðust á málverkin og
skáru þau i sundur eða brenndu
þau, sflian börðu þeir listamenn-
ina. Lögreglan kvaðst aðeins hafa
verið að verja vinnuvélarnarsem
hafi verið að rýma til fyrir
skemmtigarð. Tveimur vikum
siðar var svipuð sýning leyfð i
Moskvu og var það gert fyrir
þrýstingfrá Bandarikjamönnum.
Þá var detente stefnan i hávegum
höfð.
VÉLA VERKSTÆÐI
SVEINBIÖRNSSON HF
ARNARVOGI - GARÐABÆ - SIMAR 52850 52661
Ný framleiðsla:
Splittvindur með sjáifvirkri útslökun
Autotrawl
Ný framleiðsla:
Deiligírar fyrir vökvadælur
Koma í staö framlenginga.
Tvær aöalgeröir 80 og 120 hö,
en sérsmíöað stærra ef
meö þarf.
-9,
Henta einkum fyrir
hæggengar vélar.
Fimm úttök:
fjögur hraögeng
eitt hæggengt.
Einnig sambyggöar togvindur fyrir 900 faöma af vír
fyrir veiöar á 300 faöma dýpi.
Höfum umboð fyrir:
Hæggengir, kraftmiklir vökvamótorar.
Vinsælustu vindumótorarnir í dag.
i^K*X
Alhliða vökvabúnaöur í háþrýstikerfi, a
þ.á.m. vindukerfi.