Fréttablaðið - 03.02.2008, Síða 2
2 3. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
frábær verð um veröldina
- bókaðu í dag!
Kairó
Dubai
Bankok
Manila
Verð eru flug fram og til baka frá Reykjavík (4 flug á viku) og fela í sér þjónustugjald, skatta og flugvallargjöld. Einn smellur
á www.klmiceland.is fyrir besta miðaverðið, bókun á netinu, upplýsingar um flug, flugpunkta og þar fram eftir götunum.
Rafræn miðakaup gera ferðalagið þitt auðveldara.
klmiceland.is
frá ISK 68.900
frá ISK 85.400
frá ISK 101.500
frá ISK 110.700
STJÓRNMÁL „Það ætti að vera
umhugsunarefni fyrir alla borgar-
fulltrúana í Reykjavík af hverju
þeir láta meiri-
hluta borgarinnar
standa og falla
með einum
manni,“ segir
Ragnheiður
Ríkarðsdóttir,
þingmaður
Sjálfstæðisflokks
og fyrrverandi
bæjarstjóri í
Mosfellsbæ. „Af
hverju koma þeir
sér ekki upp stærri og sterkari
meirihluta? Ég hefði kosið að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði
myndað sterkari meirihluta en þeir
hafa gert, það hefði verið vænlegra
fyrir borgina.“
Hún segir horfa öðruvísi við í
borginni sem er með 15 borgarfull-
trúa en í bæjarstjórn Mosfellsbæj-
ar með sjö fulltrúa en þar var hún í
eins manns meirihluta. - jse
Ragnheiður Ríkarðsdóttir:
Gagnrýnir
borgarfulltrúa
RAGNHEIÐUR
RÍKARÐSDÓTTIR
RÚSSLAND, AP Kosningabaráttan í
Rússlandi hófst formlega í gær
en gengið verður til kosninga 2.
mars. Í framboði eru Dmitry
Medvedev aðstoðarforsætisráð-
herra, Gennady Zyuganov,
formaður Kommúnistaflokksins,
Vladimir Zhirinovsky, leiðtogi
Frjálslyndra demókrata og
Andrei Bogdanov, leiðtogi
Demókrataflokksins.
Vladimir Putin núverandi
forseti má ekki bjóða sig fram
aftur.
Hann hefur hins vegar lýst
yfir stuðningi við Dimitry
Medvedev sem þykir líklegastur
til að fara með sigur af hólmi. -rt
Baráttan hafin í Rússlandi:
Medvedev tal-
inn líklegastur
SJÁVARÚTVEGUR Útflutningur á óunninni ýsu hefur
aukist um rúm 1.400 tonn eða sem nemur 32
prósentum á fjórum fyrstu mánuðum þessa
fiskveiðiárs miðað við sama tímabil í fyrra.
Útflutningur á óunnum þorski hefur á sama tímabili
aukist um 674 tonn eða sem nemur 13 prósentum.
Gunnar Bragi Guðmundsson, formaður Samtaka
fiskframleiðenda og útflytjenda, segir afnám
kvótaálagsins í byrjun þessa fiskveiðiárs helstu
skýringuna á þessu. Álagið virkaði þannig að tíu
prósenta aukakvóti dróst af heildarkvóta fyrirtækja
þegar þau fluttu afurðina út óunna.
„Það er alveg rétt að útflutningur á óunnum fiski
hefur aukist á þessum fyrstu mánuðum fiskveiði-
ársins sé miðað við sama tímabil í fyrra,“ segir
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra. „En ef
þetta er skoðað í stærra samhengi til dæmis frá
árinu 2005 blasir önnur mynd við. Þá sést að
útflutningur á óunnum þorski hefur aðeins aukist
um tvo hundruð tonn. Aukningin skýrist nánast að
öllu leyti með auknum útflutningi á óunninni ýsu.
Ég tel að meginskýringin á því sé sú að ýsuaflinn
hefur aukist í kjölfar niðurskurðar í þorski og það
eigi meiri þátt í þessu en afnám kvótaálagsins.“
Gunnar Bragi gefur lítið fyrir þessi rök Einars.
„Það er ekki góð tölfræði að miða við árið 2005 en
þá hafði dregið verulega úr útflutningi á óunnum
fiski einmitt vegna kvótaálagsins. En sér Einar ekki
hvað er að gerast nú þegar það hefur verið lagt af?“
segir hann. - jse
Tölur Fiskistofu um útflutning á óunnum fiski:
Meira flutt út af óunnum fiski
EINAR K.
GUÐFINNSON
LÖNDUN HJÁ FARSÆLI Í GRINDAVÍK Deilt
er um það hvað valdi auknum útflutn-
ingi á óunnum fiski.
SKIPULAGSMÁL Stækka á Kringluna
yfir götuna til vesturs á svokallað-
an Morgunblaðsreit.
„Þessi stækkun er fyrirhuguð
þannig að það verði framhald af
húsinu í vestur,“ segir Sigurjón
Örn Þórsson, framkvæmdastjóri
Kringlunnar.
Að sögn Sigurjóns liggja nú
fyrir hjá borgaryfirvöldum tillög-
ur um nýtt deiliskipulag á reitnum
þar sem Morgunblaðshúsið, Sjóvá
og Hús verslunarinnar standa.
Hann segir að nú sé þess beðið að
borgin komist að niðurstöðu í mál-
inu.
„Við höfum beðið talsvert eftir
því fá niðurstöðu hjá borginni. Það
hefur ekki hjálpað til þessi öra
skipting á meirihluta. Við, eins og
eflaust margir aðrir, erum að
verða fyrir miklum seinagangi á
okkar málum,“ segir Sigurjón.
Framkvæmdastjórinn segist
lítið vilja upplýsa að svo stöddu
um hvernig nýja viðbyggingin
verður útfærð. Núverandi stærð
Kringlunnar er um 53 þúsund fer-
metrar. Sigurjón segir að þótt sú
tala verði ekki tvöfölduð með við-
byggingunni verði stækkunin
engu að síður veruleg. Hann
kveðst síður en svo óttast að
stækkunin verði of mikil.
„Ég held að þetta sé sá staður í
borginni sem hægt er að horfa til
eðlilegs framhalds á uppbyggingu
á verslunarhúsnæði. Það er miklu
meiri ásókn inn í húsið hjá okkur
en við getum nokkurn tíma orðið
við þannig að við kvíðum engu. Ef
við myndum setja saman lista yfir
þá sem eru áhugasamir um að
komast inn með sínar verslanir þá
erum við komnir langt með að
fylla það sem við fyrirhugum að
bæta við,“ segir Sigurjón.
Landic Property, sem er að
meðal annars í eigu Baugs og Ingi-
bjargar Pálmadóttur, á um 75 pró-
sent í Kringlunni. Sigurjón segir
að ásamt SPRON eigi Landic Prop-
erty þær lóðir sem nýja deiliskipu-
lagstillagan nái til. Fáist hún sam-
þykkt taki við um eins árs
hönnunartími og síðan um þriggja
ára framkvæmdatími við nýju við-
bygginguna . gar@frettabladid.is
Byggt við Kringluna
yfir götuna til vesturs
Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir fyrirhugað að stækka verslunarmiðstöð-
ina mjög mikið til vesturs yfir götuna. Geysimikil ásókn sé í verslunarrými í
Kringlunni. Ör meirihlutaskipti í borgarsjórn hafi tafið afgreiðslu málsins.
KRINGLAN Viðbygging á að
ná frá vesturhlið Kringlunn-
ar og yfir á reitinn þar sem
Sjóvá og Morgunblaðshús-
ið gamla standa.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIGURJÓN ÖRN ÞÓRSSON
UMFERÐ Mikil umferðarstífla
myndaðist í gær við lokun
Smáralindar klukkan sex.
Ökumenn voru í allt að þrjú korter
að komast frá byggingunni.
Ástæða umferðarteppunnar er
sú að aðeins ein akrein er nú opin
til austurs frá Smáralind á meðan
verið er að tengja bílastæði
Smáralindar við bílahús nýja
háhýsisins á Smáratorgi með brú.
Stíflan myndaðist rétt fyrir lokun
verslunarmiðstöðvarinnar þegar
flestum bílunum var einmitt
stefnt í austurátt frá byggingunni.
Margir voru orðnir nokkuð úrillir
þegar loksins leystist úr hnútnum
upp úr klukkan hálfsjö. Vonast er
til að brúarframkvæmdunum
ljúki innan tíðar. - gar
Umferðarteppa í Smáralind:
Þrjú korter að
komast burt
LÖGREGLUMÁL Fulltrúar heilbrigð-
is- og vinnueftirlits voru í
gærkvöld og fyrrakvöld á ferðinni
í miðborg Reykjavíkur og
fylgdust með hvort brotið væri
gegn reykingabanni á skemmti-
stöðum. Eigendur nokkurra staða
þar sem reykt var fengu áminn-
ingu fyrir vikið.
Hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu fengust þær upplýsingar
í gærkvöld að lögregla hefði ekki
haft sig sérstaklega í frammi
vegna boðaðra brota á tóbaks-
varnarlögunum á skemmtistöðum
borgarinnar. Engar kærur hefðu
borist þangað vegna meintra
brota reykingamanna og kráareig-
enda. - gar
Reykingabannið í Reykjavík:
Áminntir fyrir
innireykingar
Á ORGAN Á skemmtistaðnum Organ var
boðið upp á reykingar við barinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Bjarni, er þér nokkuð illa við
Egil?
„Nei, ég held að þetta hljóti nú að
vera einhver misskilningur.“
Egill Helgason er einn vinsælasti
sjónvarpsmaður landsins, nema á
meðal framsóknarmanna, ef marka má
könnun Fréttablaðsins. Bjarni Harðarson,
þingmaður Framsóknarflokksins, er tíður
gestur í Silfri Egils.
ÍRAK, AP Mikill óhugur og reiði
ríkir meðal írösku þjóðarinnar
eftir að fréttir bárust þess efnis
að hryðjuverkamenn í landinu
hefðu notað tvær konur með
Downs-heilkenni til að myrða um
hundrað manns í sprengjuárás á
tveimur gæludýramörkuðum.
Árásirnar eru þær mannskæð-
ustu sem gerðar hefur verið í
landinu frá því að fjölgað var í
herliði Bandaríkjamanna þar
síðasta vor. - sh
Ódæði í Írak vekur óhug:
Notuðu þroska-
heftar konur
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, menntamálaráð-
herra og varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, sagði á fundi flokks-
manna sem haldinn var í Valhöll í
gær að flokkurinn sem og stjórn-
málin almennt hefðu beðið nokk-
urn hnekki undanfarið.
„Ég tel að við höfum tímabundið
beðið hnekki vegna atburðanna
undanfarið,“ segir hún við Frétta-
blaðið. „Ekki aðeins við í Sjálf-
stæðisflokknum heldur einnig
ímynd stjórnmálanna í heild. Yfir-
bragðið yfir borgarmálunum
hefur verið með þeim hætti að
fólk virðist hafa misst trúna að
nokkru leyti og við fáum einna
mest að súpa seyðið af því. En þó
er tími fyrir mjög mikla bjartsýni
núna þegar athyglin færist frekar
yfir á málefnin en við erum vön
því að láta verkin tala eins og við
höfum þegar sýnt í borginni.“
Hún gagnrýnir einnig fráfarandi
meirihluta fyrir aðgerðaleysi. „Við
í ríkisstjórninni þurftum enga 100
daga til að fara í mjög viðamiklar
aðgerðir eins og til dæmis að sam-
þykkja áætlunargerð vegna hafnar,
til að samþykkja breytingar á lög-
gjöfinni varðandi útlendinga og
breytingar á stjórnarráðinu sem
búið var að tala um í áratugi. Þetta
gerðum við á innan við fimmtíu
dögum svo það er margt hægt að
gera ef viljinn og hugmyndafræðin
eru fyrir hendi en svo virðist ekki
hafa verið hjá fráfarandi meiri-
hluta sem talaði mikið en gerði
akkúrat ekki neitt.“ - jse
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins:
Segir flokkinn hafa beðið hnekki
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
Varaformaðurinn segir að Sjálfstæðis-
flokkurinn sem og ímynd stjórnmálanna
í heild hafa beðið hnekki.
SPURNING DAGSINS