Fréttablaðið - 06.02.2008, Side 10
● fréttablaðið ● verktakar 6. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR2
Í Mosfellsbæ er byggt sem
aldrei fyrr. Ásbjörn Þorvarðar-
son, byggingarfulltrúi þar,
var beðinn um að lýsa helstu
framkvæmdum á sínu svæði.
„Hér er unnið á mörgum vígstöðv-
um í einu þótt þær framkvæmdir
séu ekki á vegum Mosfellsbæjar
sjálfs nema að litlu leyti. Svo við
byrjum á Leirvogstungu þá miðar
gatnaframkvæmdum þar vel. Þar
er gert ráð fyrir 450 íbúðum í sér-
býli og fyrstu íbúarnir hafa þegar
flutt inn. Ístak er jarðvinnuverk-
takinn og svo eru margir bygg-
ingaverktakar og einstaklingar og
um jólaleytið voru blikkandi ljós
byggingarkrananna eins og risa-
jólaskreyting. Þarna verður til-
tölulega dreifð byggð með græn-
um svæðum á milli húsaraða.
Svæðið teygir sig niður að leir-
unni og nálgast íþróttasvæði bæj-
arins. Útlit er fyrir að mikið verði
byggt í Leirvogstungu á þessu ári
og fram á næsta ár.
Á Leirvogstungumelum,
þar sem heitir Byggðafljót og
Brúarfljót, hefur Ístak sett sig
niður með stóran hluta af sinni
starfsemi og er með áform um
uppbyggingu þar fyrir fleiri stór-
fyrirtæki.
Helgafellsland er líka að rísa.
Þar er gert ráð fyrir um 1.000
íbúðum, þar af um 400 í fjölbýli.
Búið er að selja hluta lóðanna og
byrjað að byggja eitt einbýlis-
hús og nokkur par- og raðhús. Eitt
fjölbýlishús með þrjátíu íbúðum
er líka farið af stað. Svæðinu er
áfangaskipt og áfangarnir mis-
jafnlega langt komnir. Suma er
ekki enn búið að deiliskipuleggja.
Þeir ná langleiðina upp í Skamma-
dal.
Krikahverfið er næst miðbæn-
um af þessum nýju hverfum. Þar
eru um 200 íbúðir í blönduðu hús-
næði. Fjölbýlishúsin fimm eru í
byggingu og sérbýlið er lengra á
veg komið.
Svo hafa orðið eigendaskipti
á Blikastaðalandi sem var í raun
á undan bæði Leirvogstungu og
Helgafellslandi í verkefnaröðinni.
Margt bendir til að þar geti farið
af stað uppbygging innan skamms
tíma og þar munu þá Mosfellsbær
og höfuðborgin mætast. Sú byggð
sem þar kemur liggur nærri
golfvellinum okkar nýja sem er
mjög vel á veg kominn og reynd-
ar Korpuvelli líka. Ætti að verða
áhugavert fyrir golfáhugamenn
að búa þar á næstu grösum.
Öllum þessum hverfum fylgja
svo skólabyggingar á vegum bæj-
arins. Verið er að byrja á skólan-
um í Krikahverfi og skólar bæði
fyrir Leirvogstungu og Helgafell
eru á teikniborðinu.“ - gun
Í kuldatíðinni undanfarið er ekki ólíklegt að frosið hafi í
vatnslögnum víða og hvað er þá til ráða?
Þorsteinn Ásgeirsson pípulagningameistari segir að bíða verði
þíðunnar til að sjá hvort einhver skaði er skeður.
Hann hvetur sérstaklega alla sumarbústaðaeigendur að fara
í bústaðinn um leið og þiðnar til að huga að lögnum og hvort
skemmdir hafi orðið. Ekki þarf endilega að vera að rör hafi
sprungið í frostinu en ef það hefur gerst er nauðsynlegt að vita
hvar vatnsinntakið er í húsinu svo hægt sé að skrúfa fyrir vatnið
strax.
„Þetta er bara eins og að vera á vel viðhöldnum bíl með mótor-
inn í lagi og vatnsvarinn þegar veðrið versnar,“ segir Þorsteinn.
„Það þarf að kanna hvort þrýstijafnararnir og ofnkranarnir séu í
lagi í húsinu, loki bæði fyrir og opni, og passa að hafa engin her-
bergi köld, það er lokuð og með opinn glugga. Þetta er oft algengt
með lítil gestasalerni og lagnir geta frosið þar. Svo er nauðsynlegt
að vita hvar inntakið fyrir vatnið er í húsinu svo fljótt megi
skrúfa fyrir ef rör springur og vatn fer að fossa út úr vegg. Annað
er svo ekki hægt að gera en hringja á pípara.“
Þorsteinn segir að sumarbústaðaeigendur verði undantekninga-
laust að skrúfa fyrir vatnið í bústaðnum og tæma rörin áður en
farið er úr bústaðnum. Hann segir oft misbrest á því að fólk kynni
sér vatnskerfin þegar það kaupir bústaði og húseignir en það geti
minnkað skaðann umtalsvert ef hægt er að skrúfa fyrir strax.
„Það hefur örugglega frosið í mörgum sumarbústöðum um
allt land í frostinu núna undanfarið og ég hvet fólk til að athuga
bústaðina strax og þiðnar. Fólk verður að hafa á hreinu hvernig
kerfið virkar í sumarbústaðnum, kynna sér hvar lokar eru og hafa
greiðan aðgang að krönunum svo hægt sé að skrúfa fyrir fljótt.“
Þorsteinn hvetur hitaveituna til að kynna fyrir fólki hvernig
á að halda við kerfunum en sé þeim vel við haldið skapist ekkert
vandræðaástand í svona tíð.
„Ofnkrani getur verið mjög fljótur að festast, það tekur
kannski 4-5 ár. Það þarf að halda kerfinu hreyfanlegu og liðka það
t.d. með því að opna glugga og hurðir að sumarlagi og kæla niður
húsið, þá fara allir kranar af stað og liðkast,“ segir Þorsteinn. - rt
Hvar er vatnsinntakið?
VIÐ FJÁRMÖGNUM
ÞAÐ SEM UPP Á VANTAR!
Ertu að spá í atvinnutæki?
Nýttu þér upplýsingar og reiknivélar á
www.gf.is eða hafðu samband við ráðgjafa
okkar í síma 440 4400.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
2
3
5
Þorsteinn Ásgeirsson
pípulagningameistari
segir mikilvægt að sýna
fyrirhyggju.
M
YN
D
/Þ
O
RS
TE
IN
N
Allnokkur hús eru frágengin í Leirvogstungu og fyrstu íbúar fluttir inn.
MYND/BJARNI GUÐMUNDSSON.
Mikið byggt í Mosfellsbæ
Einhvern veginn svona á Helgafallshverfi eftir að líta út samkvæmt skipulagi.
Krikahverfið eins og það leit út á teikniborðinu. Bleiku byggingarnar eru fjölbýlishús.
„Við erum líka að endurskoða deili-
skipulag miðbæjarins,“ segir Ásbjörn
Þorvarðarson, byggingarfulltrúi Mos-
fellsbæjar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR.