Fréttablaðið - 06.02.2008, Blaðsíða 22
MARKAÐURINN 6. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR14
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
„Þær segja mér heimsviðskipta-
fréttirnar að mesti vöxturinn sé
í snyrtivörum fyrir karlmenn í
dag,“ segir Heiðar Jónsson, sem
verður að teljast til þeirra fróð-
ustu í snyrtivörufræðunum enda
með áralanga reynslu að baki.
Heiðar segir að nýjar snyrtivör-
ur fyrir karlmenn komi eins og
sprenging inn á markaðinn. „Eins
og ég veit ekki hvað,“ líkt og hann
tekur til orða. „Við erum í búmm-
inu núna! Það er mikil samkeppni
í gangi þar og engu líkara en að
karlmaðurinn hafi allt í einu risið
upp og kastað öllum fordómum
á braut,“ segir hann. Reyndar er
Heiðar varla búinn að sleppa orð-
inu þegar hann segist telja að karl-
menn hafi notað snyrtivörur í ár-
araðir án þess að gangast við því.
„Íslenski sjómaðurinn hefur
notað krem í áratugi til að verja
sig gegn veðrinu,“ segir Heiðar.
„Sjómanni sem fer út á dekk, inn
í lúkarn og aftur út á dekk verð-
ur rosalega illt í framan af kulda-
og hitabreytingum. Margir þeirra,
sem og aðrir í útivinnu, hafa upp-
götvað að krem klæðir þá, ver húð-
ina svipað því og að klæða andlit-
ið í föt,“ segir hann og bendir á að
karlmenn sem vinni mikið úti, svo
sem smiðir, hætti til að verða bláir
í framan af hitabreytingum og fá
það sem nefnt hefur verið brenni-
vínsnef. „Æðarnar á þeim þenjast
út til að vinna á móti kuldanum en
skreppa saman í hita. Á endanum
springa þær.“
Hann segir karlmenn á öllum
aldri nota snyrtivörur í meira mæli
nú en áður. Ekki síst ungir menn
sem eru móttækilegri fyrir mark-
aðssetningu og fræðslu. „Þetta er
rosalega skemmtileg þróun. Einu
sinni var þetta hliðarbúskapur við
kvensnyrtivörur en núna er þetta
alvöru bisness,“ segir Heiðar.
Snyrtivörur frá Nickel eru
Heiðari einkar hugleiknar þessa
dagana. Vörur fyrirtækisins eru
– ólíkt öðrum snyrtivörum – ekki
sprottnar upp úr fyrirtækjum sem
beina augum sínum að konum.
„Nickel er búið til af karlmönn-
um fyrir karlmenn og engin kven-
mannshönd á bak við það,“ bendir
Heiðar á. Stærstir í þessum karla-
geira er Zirh, sem er helsti keppi-
nautur Nickel.
Heiðar segir söguna á bak við
Nickel einkar skemmtilega. Upp-
hafsmaðurinn hafi verið ungur
Frakki sem hafi lært nudd og fleira
og hafi dottið í hug að opna snyrti-
stofu fyrir karlmenn fyrir um tólf
árum. „Honum fannst nuddolían
of bleik og með blómalykt sem
hentaði ekki karlmönnum. Hann
settist niður og hannaði línuna
sem er sérstaklega karlmannleg,“
bendir Heiðar á. Sem dæmi er
sturtusápan í smurolíudúnki sem
getur sómað sér á hvaða bensín-
stöð sem er, rakspírinn sé nefnd-
ur eftir slökkvistöð og svo fram-
vegis. „Hann hitti á þetta á svo
réttum tíma að strákbaukurinn er
púra milljóner í dag,“ segir Heið-
ar og skellir upp úr. Heiðar gerði
sér sjálfur dagamun fyrir nokkru
og skellti sér á snyrtistofu Nickel í
Lundúnum í Bretlandi. „Þarna var
ekkert sem minnti á snyrtistofu.
Hún er smart, með reipisdúk á
gólfinu og veggir úr grófum viði
og steinsteypu. Þar er boxherbergi
sem manni er hreinlega kastað
inn í til að svitna áður en farið er
í sturtu. Að því loknu tekur hrika-
legt nudd við og þar er ekki tekið á
með mjúkum höndum,“ segir hann
og hlær á ný. „Þetta er röff og töff,
algjört æði!“
Karlsnyrtivörurnar komnar á toppinn
MEÐ KARLMANNLEGAR SNYRTIVÖRUR FRÁ NICKEL Snyrtifræðingurinn Heiðar
Jónsson mælir með því að karlmenn láti taka vel á sér á snyrtistofum Nickel en þær má
finna víða um heim. „Þær eru röff og töff, algjört æði,“ segir hann. MARKAÐURINN/GVA