Fréttablaðið - 11.02.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500011. febrúar 2008 — 41. tölublað — 8. árgangur
FASTEIGNIR
Tilboð á íbúðum á
Torrevieja-svæðinu
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Baðherbergið er án efa eitt dýrasta herbergi hússins. Þó svo að það sé yfirleitt minnsta herbergið í húsinu er það jafnframt rakasta herbergið og inniheldur mest af lögnum sem geta verið til vandræða.
Frú Sigríður Kjartansdóttir á vanalega ekki í
ástarsambandi við húsgögn, en er hjartfólginn
dömuskápur og kuðungur austan af fjörðum.„Almennt bind ég ekki taugar né tilfinningar við v
aldlega hluti, en ann því mjöfeðru
þegar mér hlotnaðist heimasætusvítan á unglingsár-
unum bauðst mér þessi dýrgripur. Hann var þá í upp-
runalegu horfi; handmálaður hvítbláum skýjum
slaufum og gyllingu, en orðinn lúinn og k
ára sinna Ég stífl k
Dömuskápur með sál
Sigríður Kjartansdóttir og virðulegur heimilis-hundurinn Brúnó við dömuskápinn fagra, en kommóðan sem einnig sést á myndinni er sömu-leiðis úr búi Sigfúsar Sveinssonar útgerðar-manns í Sigfúsarhúsi í Neskaupstað, frá því um aldamótin 1900.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Brauðdeig er sniðugt að setja í ofninn þegar selja á íbúð og verið er að taka á móti fólki. Það skapar hlýja og heimilislega stemningu og gæti lokkað
fólk frekar
til að
kaupa. Allt
í lagi er þó
að deigið sé keypt tilbúið.
Olíublettir eru ekki skemmtilegir og hið mesta ólán að fá þá í fötin sín, til dæmis eins og hvítlauks-olíuna góðu sem fylgir oft pizzunum okkar. Þegar það gerist er ráð að setja óblandaða lopa-sápu í blautan klút og nudda blettinn.
VEÐRIÐ Í DAG
MÁNUDAGUR
SIGRÍÐUR KJARTANSDÓTTIR
Lítill kuðungur og
dömuskápur kærast
heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
Ertu að spá í að selja?
Frítt söluverðmat
FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR
Annað hvort
eitthvað nýtt eða
að hætta
Strandamenn
2007
TÍMAMÓT 16
fasteignir 11. FEBRÚAR 2008
Tíu raðhús til sölu á Costa Blanca-ströndinni.
U m er að ræða tilboð á tíu raðhúsum við Costa Blanca-ströndina á Spáni. Húsin liggja á svo-kölluðu Torrevieja-svæði. Verið er að leggja lokahönd á húsin og munu þau verða afhent fullbúin í lok mars í ár. Íbúðirnar eru 160 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Allar íbúðirnar eru með þremur svefnherbergjum, tveimur snyrtingum og með tvenn-um svölum, þar af einum þaksvölum Viðgarður og
tryggðu láni til allt að 30 ára. Nóg væri fyrir kaup-
endur að leggja út fyrir kostnaði við kaupin, 15 þús-
und evrur. Það er spænski byggingaraðilinn Alfa
Noray SL og Bancaja bankinn á Spáni sem standa að
þessum húsum.
Unnt er að bóka skoðunarferð til Spánar í gegnum
þjónustufyrirtækið Costablanca.is og fasteignasöl-
una Breytling - Properties S.L. en fyrirtækin munu
bjóða áhugasömum kaupendum f íar næt
Þaksvalir og sundlaug
Tíu 160 fermetra raðhús með þaksvölum og garði eru nú til sölu á sérstöku tilboði.
Spánn, Torrevieja Costa Blanca ströndin
Verð aðeins 19.700.000
699 6165
899 0800
8200 301 661 7788
892 2982
661 6056
660 6085
895 8518
Verðmetum frítt fyrir þig!Hringdu núna 699 6165
SÓL – HITI – SPÁNN !
Laðar að sér leikara
Leikstjórinn Ólafur
Jóhannesson
sankar að sér
leikurum úr Sopr-
anos-þáttunum
vinsælu.
FÓLK 30
Spáir í spilin
Eurovision-geggjarinn Páll Óskar
er handviss um að Eurobandið og
Mercedes Club muni bítast um
sigurinn í Laugardagslögunum.
FÓLK 20
FÓLK Fjallað er um íslenska
hönnuðinn Unni Friðriksdóttur í
nýjasta tölublaði tímaritsins Elle
Oriental. Tímaritið er gefið út
bæði á frönsku og arabísku, en
því er meðal annars dreift í Líban-
on, Jórdaníu og í Sádi-Arabíu.
Fjallað er um handtöskur Unnar á
heilsíðu í blaðinu, en þær eru að
mestu leyti gerðar úr sjávarleðri,
sem unnið er úr íslensku fiskiroði.
Handtöskur Unnar eru nú
fáanlegar á Íslandi, í Ástralíu og í
Bandaríkjunum, þar sem Unnur
er búsett. Unnið er að samningum
um dreifirétt í Japan og nú einnig
í Sádi-Arabíu. - sun / sjá síðu 30
Vekur athygli í arabalöndum:
Viðtal við Unni
í arabíska Elle
HÆGT KÓLNANDI - Í dag verður
suðvestan 10-15 m/s allra austast,
annars hægari. Rigning austan til
fram að hádegi, síðan úrkomulítið.
Éljagangur vestan til en úrkomulítið
fyrir norðan. Hiti 0-8 stig, mildast við
austurströndina. Frystir víðast í kvöld.
VEÐUR 4
VIÐSKIPTI „Þetta er svo augljóst.
Stórir hluthafar, lífeyrissjóðir og
fleiri eiga að láta reyna á hvort
hlutafélagalögin eru til skrauts eða
eitthvað til að fara eftir,“ segir Vil-
hjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands og framkvæmdastjóri Sam-
taka fjárfesta, sem ætlar í mál við
stjórn Glitnis vegna kaupa á hluta-
bréfum af Bjarna Ármannssyni.
„Þetta snýst um kaup á 236 millj-
ónum hluta í Glitni á genginu 29
þegar markaðsgengi var á milli 26
og 27,“ segir Vilhjálmur, sem telur
gengið hafa farið hæst í 27,10 dag-
ana í kringum kaupin. Segir hann
Glitni hafa keypt af Bjarna á yfir-
verði.
„Með vísan til 76. greinar hluta-
félagalaga dreg ég í efa heimild
stjórnar til að kaupa af einstökum
hluthafa,“ segir Vilhjálmur en hann
telur að um ansi rúma túlkun sé að
ræða á heimild stjórnar til kaupa á
eigin bréfum.
Ætlar hann að sækja málið fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur og þá
sem hluthafi í Glitni. „Ég er búinn
að undirbúa þetta í nokkurn tíma
og er nánast tilbúinn með öll gögn í
málinu,“ segir hann. „Það sem
kemur á óvart er að ég skuli gera
þetta en ekki einhverjir aðrir hlut-
hafar,“ segir Vilhjálmur og vísar
þar til stærri hluthafa í Glitni.
Um áhrif málarekstursins segir
Vilhjálmur alla dóma hafa for-
dæmis gildi. - ovd
Segir stjórn bankans hafa keypt hlutabréf af Bjarna Ármannssyni á yfirverði:
Ætlar í mál við stjórn Glitnis
ERFÐADEILUR Lögmaður barn-
ungrar dóttur Bobby Fischer
heitins á Filippseyjum segir að
leitað verði sáttar utan dómstóla
við japanska ekkju hans um
tilkall stúlkunnar til arfs eftir
föður sinn. Frá þessu er greint í
filippseyska dagblaðinu The
Philippine Star í gær.
Sagt er frá því að lögmenn
stúlkunnar, sem heitir Jinky
Young, hafi tjáð tímaritinu The
Chess Plaza Weekender að þeir
hafi nú þegar tekið saman ýmis
sönnunargögn fyrir erfðatilkalli
hennar. Gert er ráð fyrir að þar á
meðal sé DNA-sýni.
Jinky og móðir hennar Marilyn
eru sagðar hafa heimsótt Fischer
á Íslandi í september 2005. - aa
Erfðir Bobby Fischer:
Lögmenn dótt-
ur leita sáttar
BOBBY FISCHER Skáksnillingurinn lét
eftir sig talsvert fé.
ALLT Á FLOTI ALLS STAÐAR Sjór flæddi yfir flóðgarða við Ánanaust í gær og umhverfis hringtorgið á mótum Hringbrautar, Ánanausta
og Eiðsgranda. Stöðva þurfti umferð vegna vatnselgsins og kalla til stórvirkar vinnuvélar til að leysa vandann. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fyrsti
sigur City
frá 1974
Manchester
City vann báða
leikina gegn ná-
grönnum sínum í
vetur.
ÍÞRÓTTIR 26
BORGARMÁL Nær útilokað er talið
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segi
af sér, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Líkleg niðurstaða
er að hann sitji áfram sem borgar-
fulltrúi en borgarstjórnarflokkur
Sjálfstæðisflokksins finni sér
annað borgarstjóraefni.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hafa ekki fundað síðan Vilhjálmur
kom fram í Kastljósi á fimmtu-
daginn. Þeir hafa hins vegar rætt
mikið saman í síma og hefur Geir
H. Haarde, formaður flokksins,
átt samtöl við Vilhjálm um stöðu
mála. Vilhjálmur hefur enn frem-
ur ráðfært sig við Davíð Oddsson,
seðlabankastjóra og fyrrverandi
formann Sjálfstæðisflokksins.
Heimildir blaðsins herma að
Vilhjálmur muni ekki taka neina
ákvörðun varðandi sín mál strax.
Forystumenn í flokknum hafi ráð-
lagt honum að taka ekki ákvörðun
fyrr en orrahríðin vegna REI-
málsins sé gengin yfir, þar sem
almenningsálitið breytist hratt.
Enn fremur þoli borgarstjórnar-
flokkurinn ekki átök um næsta
borgarstjóraefni undir núverandi
kringumstæðum. Hugsanlegt er
að Vilhjálmur taki ekki ákvörðun
fyrr en eftir nokkrar vikur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins funda í Ráðhúsinu í dag.
Sá fundur var löngu ákveðinn og
þó að mál Vilhjálms sé ekki form-
lega á dagskrá er ljóst að það verð-
ur rætt. Líklegt er að Vilhjálmur
tjái sig eftir fundinn. Fréttablaðið
hefur ekki náð í Vilhjálm síðan á
fimmtudaginn. - shá / - th
Vilhjálmur verður
áfram í borgarstjórn
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur ráðfært sig við Davíð Oddsson um pólitíska
framtíð sína. Honum er ráðlagt að sitja af sér mestu orrahríðina vegna REI-
málsins. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar í Ráðhúsinu í dag.