Fréttablaðið - 11.02.2008, Blaðsíða 8
11. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
SPRON Viðbót
– allt að vextir*
SPRON Veltubót
– allt að ársávöxtun*
SPRON Vaxtabót
– allt að vextir*15,05% 7,95% 14,59%
SPRON.IS
*Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. febrúar 2008.
Frábærir
Allt að 15,05% vextir
A
R
G
U
S
/
08
-0
05
5
MENNTUN „Þetta er fullkomlega
eðlilegt á meðan það eru engir
peningar lagðir undir,“ segir
Brynjar Guðnason, oddviti Lagn-
ingadagaráðs Nemendafélags
Menntaskólans við Hamrahlíð
(MH), en pókermót verður haldið
á Lagningadögum MH í næstu
viku.
„Þetta er eins og annað spila-
mót, eins og að spila vist,“ segir
Brynjar, „að því undanskildu að
notaðir eru spilapeningar. Spilið
gengur út á að enda með alla spila-
peningana en svo eru verðlaun
eins og í öðrum mótum.“
Brynjar segir Lagningadaga
vera þemadaga í kringum árshátíð
nemenda MH þar sem hefðbundin
kennsla víkur fyrir alls konar
atriðum. Fyrirlestrar og námskeið
eru haldin af nemendum, kennur-
um og utanaðkomandi aðilum. Sé
þetta gert til að lífga upp á
skammdegið og hafi Lagningadag-
ar verði haldnir frá árinu 1975.
„Við vitum af þessu og þetta
verður bara til skemmtunar eins
og annað,“ segir Sigurborg Matt-
hías dóttir, rektor MH, um póker-
mótið. „Ég held að það þurfi varla
að hafa áhyggjur af spilafíkn þó
að verið sé að spila á svona
dögum,“ segir Sigurborg, sem
telur ekki ástæðu til að hafa
áhyggjur þótt spilað sé í kennslu-
stofum, „enda starfsmenn á svæð-
inu“. - ovd
Lagningadagar í Menntaskólanum við Hamrahlíð:
Halda pókermót
í menntaskóla
MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ Nemendur halda Lagningadaga 13., 14. og 15.
febrúar næstkomandi.