Fréttablaðið - 18.02.2008, Side 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn
18. febrúar, 49. dagur ársins.
9.15 13.42 18.09
9.07 13.26 17.47
Fyrir ellefu árum varð Skotinn John McGuinnes fyrir því
óláni að vinna ógrynni fjár – um
tvo milljarða íslenskra króna − í
lottói. Þegar McGuinnes var
orðinn ríkur gerði hann ýmsa
skynsamlega og skemmtilega
hluti. Til dæmis fjárfesti hann
fyrir 540 milljónir í uppáhaldsfót-
boltafélaginu sínu, Livingstone
(ekki Huddersfield), og kom
rausnarlega fram við ættingja og
vini. McGuinnes hafði tröllatrú á
fasteignamarkaði og keypti hús í
Skotlandi og niðri við Miðjarðar-
haf. Svo splæsti hann í Jagúar,
skartgripi og annað smálegt sem
milljóna mæringar þurfa að eiga.
ÞVÍ MIÐUR fór allt í handa-
skolum hjá fótboltafélaginu og á
endanum tók McGuinnes lán með
veði í eigum sínum til að koma
klúbbnum til hjálpar. Fasteign-
irnar skiluðu ekki heldur
áætluðum hagnaði, það féll á
skartgripina og Jagúarinn bilaði.
Þessi vesalings maður er nú alls-
laus og lifir á bótum frá samfélag-
inu. Þar að auki skuldar hinn fyrr-
verandi auðkýfingur 270 milljónir
en hafði séð vel út úr skuldum
áður en hann varð ríkur.
ÞESSI SORGARSAGA kemur
Íslendingum að sjálfsögðu ekki
nokkurn skapaðan hlut við. Íslensk
auðsæld byggist ekki á spilafíkn
og lottóvinningum heldur á við-
skiptaviti og vinnusemi. Þótt
Skotar kunni ekki með fé að fara
mundi engum Íslendingi detta í
hug að gera sig að fífli með
nýfengnu ríkidæmi.
PERSÓNULEG RAUNASAGA
Skotans sem fór með auð sinn til
andskotans segir okkur aðeins að
að léttfengið fé er laust í hendi.
Það er því ástæða til að vara lág-
launafólk og ellilífeyrisþega við
því að ofmetnast yfir því óverð-
skuldaða ríkidæmi sem næstu
kjarasamningar færa mann-
skapnum og steypa sér í bílífi.
Skynsamlegast hefði verið að taka
enga áhættu og semja um óbreytt
kjör, enda eru meira að segja laun-
in á Litlahrauni svo há að lög-
reglan okkar þarf að nota
rafbyssur og piparúða til að
verjast Lettum og Lithauga-
mönnum sem heimta að komast í
vinnu á letigarðinum. Sagan af
Skotanum nýríka segir okkur
aðeins að peningar eru betur
komnir í höndum auðmanna en
fátæklinga sem ekki kunna með fé
að fara. Annars væru þeir ekki
fátæklingar. Eða eins og máltækið
segir: Margur verður af aurum
api.
Harmsaga
auðmanns