Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 1

Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Er ekki kominn tími á vorhreingerningu? Skráðu smáauglýsinguna á visir.is eða hringdu í síma 512 5000 og seldu gamla dótið með lítilli fyrirhöfn. Allt sem þú þarft – alla daga 18.– 29. febrúar. Verð frá 990 kr. Kompudagar í smáauglýsingunum Sími: 512 5000 MÁNUDAGUR 25. febrúar 2008 — 55. tölublað — 8. árgangur Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX Dorothea E. Jóhannsdóttir Sölufulltrúi 898 3326 dorothea@remax.is Bergsteinn Gunnarsson Löggiltur Fasteigna fyrirtækja og skipasali Ertu að spá í að selja? Frítt söluverðmat FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR SVÍÞJÓÐ, AP Svíar, sem hafa löngum verið framarlega í jafnrétti kynjanna, ætla að hefja framleiðslu á nýjum nærbuxum fyrir sjúklinga sem bæði kyn geta notað. Með því vonast stjórnvöld til að spara bæði pláss og peninga. Um er að ræða nýtísku „boxer“- nærbuxur sem eru taldar henta bæði konum og körlum sem liggja á sjúkrahúsum landsins. Hingað til hafa sænskir sjúklingar notað fjórar mismunandi tegundir af nærbuxum, tvær gerðir fyrir hvort kyn. Búist er við að nærbuxnatillagan verði samþykkt endanlega í apríl og að nýju nærbuxurnar verði teknar í notkun skömmu síðar. - fb Nýjung á sænskum spítölum: Eins nærbuxur fyrir bæði kyn HÍBÝLI - ELDHÚS Hnífunum strokið með virðingu Sérblað um eldhús FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG FASTEIGNIR Glæsileg íbúð í Gullengi Sérblað um fasteignir FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Þekkir einhver þessar stúlkur? Auður Styrkársdóttir hjá Kvennasögusafninu leitar eftir nöfnum stúlkna sem tóku þátt í Teofani-feg- urðarsamkeppni árið 1930. TÍMAMÓT 16 fasteignir 25. FEBRÚAR 2008 Fasteignasalan Stakfell hefur til sölu glæsilega 4-6 herbergja íbúð í fjölbýli. Í búðin er 132 fermetrar á annarri hæð í þriggja hæða fjölbýli við Gullengi. Eignin skiptist í fjög-ur svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Komið er inn í góða forstofu/anddyri með steinflísum á gólfi og fataskáp, þaðan er komið inn í samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús. Fallegt eik-arparket er á gólfum. Útgengi er úr stofu út á stórar suðursvalir. Í eldhúsi er gott skápapláss, eyja með helluborði og háfi og nýr ísskápur fylgir. Í eldhús- rýminu er flísalagt gólf og flísalagt milli skápa. Í miðrými íbúðarinnar er stórt sjónvarpshol. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, þrjú góð barnaherbergi með skápum og mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Baðherbergið er með sturtu og snyrtilegri innréttingu og steinflísum á gólfi. Gluggi er til suðurs í baðherbergi. Flísalagt þvottahús innan eignar með glugga. Á jarðhæðinni er hjóla- og vagnageymsla og rúm-góð sérgeymsla. Sameiginlegur garður með leiktækj-um. Björt og glæsileg eign með sérinngangi af svöl-um. Söluverð er 33.900.000 krónur Glæsileg íbúð í Gullengi Íbúðin er á annarri hæð í nýlegu fjölbýli við Gullengi. SÖLUSÝNING Í KVÖLD KL. 19.30 - 21.00 Ásakór 13-15, 203 KópavogurVerð frá 26.700.000 kr. Hestavað 1-3 og 5-7, 110 ReykjavíkVerð frá 27.300.000 kr. Glæsilegar íbúðir – afhent bæði fullbúið og styttra komið. Glæsilegar íbúðir – afhent bæði fullbúið og styttra komið. SÖLUSÝNING Í KVÖLD MILLI KL. 19.30 – 21.00 Verðmetum fyrir þig! Hringdu núna 699 6165 www.boas.is SÖLUSÝNING Í KVÖLD MILLI KL. 19.30 – 21.00 híbýli - eldhúsMÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 Þykknar upp um hádegi. Í dag kemur að suðurströndinni alldjúp lægð sem veldur strekkingi og úrkomu sunnan- og vestanlands. Á Norður- og Austurlandi verður hæg- ari vindur og éljagangur, en þurrt á Austfjörðum. VEÐUR 4 -2 -1 -4 -3 -1 STJÓRNMÁL Umrót í borgarstjórn- armálum hefur greinileg áhrif á nýja skoðanakönnun Fréttablaðs- ins, þar sem spurt var til hvaða stjórnmálamanna mest og minnst traust var borið. Flestir, tæplega þrjátíu prósent, segjast bera minnst traust til Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita sjálfstæðismanna í borginni. Hann hefur ekki áður birst á lista yfir stjórnmálamenn sem minnst traust er borið til. Annar nýliði á listanum er Ólafur F. Magnússon borgarstjóri og segjast 5,6 pró- sent bera minnst traust til hans. Flestir, eða rúmlega fjörutíu prósent, segjast hins vegar bera mest traust til Geirs H. Haarde, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Næstflestir, rúm sextán prósent, segjast bera mest traust til Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, utanríkisráð- herra og formanns Samfylkingar- innar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson til- kynnti í gær að opið væri af sinni hálfu hver taki við embætti borg- arstjóra í mars 2009 þegar emb- ættið fellur Sjálfstæðisflokki í skaut. Sátt virðist innan flokksins um þessa ákvörðun, sem tekin var í samráði við Geir H. Haarde, for- mann flokksins. Heimildarmenn úr innsta kjarna flokksins telja útilokað að Vilhjálmur verði aftur borgarstjóri. Bæði Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokks, munu sækjast eftir forystuhlutverkinu. „Ég hef sóst eftir því að leiða þennan hóp og áhugi minn á því hefur ekkert dvínað. Hins vegar finnst mér þessi umræða ótíma- bær á meðan staðan er eins og hún er, við afgreiðum þetta í okkar hópi en ekki í fjölmiðlum,“ segir Gísli Marteinn. - ss, bj/ sjá síður 4 og 6 Vilhjálmur Þ. nýtur minnsta traustsins Þrjátíu prósent aðspurðra segjast bera minnst traust til Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar af íslenskum stjórnmálamönnum. Vilhjálmur segir opið hver verði borgarstjóri í mars 2009. Hanna Birna og Gísli Marteinn sækjast eftir embættinu. FÓLK Eurobandið vann Eurovision-keppni RÚV með miklum yfirburðum. Lagið This is my life hlaut rúm fimmtíu þúsund atkvæði en Ho ho ho we say hey hey hey með Mercedez Club hlaut rúm 23 þúsund atkvæði. Önnur lög fengu mun minna en alls bárust 111 þúsund atkvæði. Nokkra athygli vakti að Friðrik Ómar lét stór orð falla þegar sigurinn var í höfn og sagði: „Glymur hæst í tómri tunnu.“ Friðrik sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki hafa beint orðum sínum til helstu keppinauta sinna í Mercedez Club heldur áhang- enda þeirra sem hefðu látið miður falleg orð falla meðan á keppninni stóð í Smáralindinni. „Systkini mín og börnin þeirra voru þarna rétt hjá, heyrðu þetta og tóku þetta til sín,“ segir Friðrik sem sér síður en svo eftir þessu. Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, telur Friðrik hins vegar vera að kasta steinum úr glerhúsi. -fgg/ sjá síðu 30 Friðrik Ómar Hjörleifsson ósáttur þrátt fyrir öruggan sigur í Eurovision: Sakar áhangendur um fordóma Villi bíður með brúðkaupið Vilhjálmur prins ætlar ekki að gifta sig fyrr en 2009. FÓLK 19 Nýir meistarar Snæfell og Grindavík urðu bikarmeistarar í fyrsta skipti á söguleg- um bikardegi í Höllinni. ÍÞRÓTTIR 24 OG 27 VEÐRIÐ Í DAG MENNING Þeir sem ekki náðu að kíkja inn í Hafnarhúsið á dögun- um til að skoða sýningu á vinn- ingstillögum um framtíðarskipu- lag Vatnsmýrarinnar geta tekið gleði sína. Ákveðið hefur verið að setja sýninguna upp á ný í vikunni, að þessu sinni á Háskóla- torgi Háskóla Íslands. Guja Dögg Hauksdóttir, sýningarstjóri sýningarinnar í Hafnarhúsinu, segir að sýningin hafi verið gríðarvinsæl og að meira en 5000 manns hafi lagt leið sína í Hafnarhúsið þessa viku sem sýningin var uppi. „Það er bara verið að bregðast við þessum mikla áhuga,“ segir Guja. Sýningin verður sett upp á miðvikudag. - þo Skipulag Vatnsmýrarinnar: Sýningin sett upp á ný GÓÐAR TILLÖGUR Sýningin á tillögum um skipulag Vatnsmýrarinnar verður sett upp á Háskólatorgi. DROTTNINGARNAR MÆTAST Þúsundir flykktust að hafnarbakkanum í Sydney í Ástralíu í gær þegar sannkallaðar drottningar hafs- ins mættust í hafnarmynninu. Skemmtiferðaskipin Queen Victoria, í forgrunni, og Queen Elizabeth II eru engin smásmíði. Þetta verður síðasta ferð Queen Elizabeth II til Ástralíu en ráðgert er að leggja skipinu síðar í ár eftir 39 ára notkun. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Tveir þjófar náðust eftir innbrot í skartgripaverslun í miðbænum um klukkan hálfníu í gærmorgun. Annar þeirra sást í eftirlitsmyndavél við Veltusund. Lögreglan kom fljóttt á vettvang. Þá hafði maðurinn náð þó nokkru þýfi úr gluggaútstillingu verslun- arinnar. Maðurinn tók á rás með hluta þýfisins og komst í bíl félags síns við Suðurgötu. Lögreglumenn veittu þjófunum eftirför og náðu þeim í Skerjafirði. Þar höfðu þjófarnir yfirgefið bílinn og haldið flóttanum áfram gangandi. Hluti þýfisins fannst í fórum þeirra og afgangurinn í bifreiðinni. Mennirn- ir eru á þrítugsaldri og hafa ekki fyrr komið við sögu lögreglu. - rh Innbrot í miðbænum: Náðust á flótta Græðgi er vond Árangur sumra íslenskra við- skiptamanna hefur vissulega verið ótrúlega góður – en hann hefur líka verið ævintýralega vondur hjá öðrum, segir Guðmundur Andri Thorsson í grein sinni. UMRÆÐAN 12

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.