Fréttablaðið - 25.02.2008, Síða 2
2 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
Ýsa
í raspiNóatún mælir með
1.098 kr.kg.
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Gott á mánudegi
SJÁVARÚTVEGUR Skipstjórar á 22
loðnuveiðiskipum kannast ekki
við að hafa rætt við Grétar Mar
Jónsson, þingmann Frjálslynda
flokksins, og segja miður að hann
geri þeim upp skoðanir í viðtali
við Fréttablaðið á föstudag.
Í yfirlýsingu sem loðnuskip-
stjórarnir sendu mótmæla þeir
þeim orðum Grétars að margir
loðnuskipstjórar segi ástandið
þannig að rétt sé að stöðva
loðnuveiðar í tvö ár.
„Við skipstjórarnir á þeim
skipum sem hafa verið á miðun-
um erum sannfærðir um að
ástand loðnustofnsins er betra en
Hafrannsóknarstofnun telur,“
segir í yfirlýsingunni. - bj
Saka þingmann um óheilindi:
Aldrei rætt við
loðnuskipstjóra
LOÐNA Loðnuskipstjórar eru sannfærðir
um að ástand stofnsins sé betra en
Hafrannsóknarstofnun telur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Enginn fangi hefur setið jafn lengi í
einangrun í Færeyjum og 25 ára Íslendingur sem
handtekinn var í september í tengslum við Pól-
stjörnumálið. Hjá manninum fundust tæplega 800
grömm af amfetamíni og um kíló af af e-töflum.
Hann hefur nú verið í einangrun í 130 daga. Þórarinn
V. Hjaltason, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun,
segir svo langa einangrunarvist ekki tíðkast hér á
landi. Lengsta vist sem hann muni eftir hin síðari ár
sé einn og hálfur mánuður en hér á landi séu yfirvöld
mjög meðvituð um þær fjölþættu afleiðingar sem
löng einangrunarvist getur haft á fólk. Færeyska
dagblaðið Dimmalætting hefur leitað svara hjá Lindu
Hesselberg, saksóknara í máli Íslendingsins, um
hvers vegna honum sé haldið svo lengi í einangrun.
Hún hefur þó engin svör viljað gefa.
Íslendingurinn var fyrst settur í einangrunarvist
18. september. Í október fékk hann að vera í opinni
gæslu en í lok þess mánaðar var hann settur aftur í
einangrun. Gæsluvarðhaldsvist hans rennur út 7.
mars, að sögn saksóknara, en þá verður maðurinn
leiddur fyrir dómara á nýjan leik. Hann hefur ætíð
kært úrskurð undirdóms, en æðra dómstig staðfest
hann. Málsmeðferð hefst 7. apríl.
Samkvæmt heimildum blaðamanna á Dimmalætt-
ing eru líkur á því að hann muni sitja í einangrun í
um 170 daga í allt. „Þessi vist er met hér í Færeyj-
um,“ segir Heini Gaard, blaðamaður á Dimmalætt-
ing. Hann segir fjölmiðla þar í landi hafa reynt að
benda á að breyta þurfi reglum um einangrunarvist
þar sem fólk hafi áhyggjur af því hve lengi sé hægt
að halda mönnum í slíkri vist.
„Hann ber sig vel miðað við aðstæður,“ sagði
móðir mannsins þegar Fréttablaðið hafði samband
við hana en hún segist fá að heyra frá syni sínum
vikulega. Hún vildi þó ekki tjá sig frekar um málið
af ótta við að spilla fyrir máli hans og auka enn á
erfiðleikana.
Maðurinn hefur verið búsettur í Færeyjum um
skeið en þar á hann fjölskyldurætur og hefur verið
við störf. Hann á ekki að baki afbrotaferil.
Saksóknari segir ljóst að maðurinn verði að
minnsta kosti dæmdur í fjögurra ára fangelsi, hann
geti þó fengið allt að tíu ára dóm og ævilanga
brottvísun frá Færeyjum. Dæmt var í Pólstjörnumál-
inu hér á landi 15. febrúar.
Þau svör fengust frá utanríkisráðuneytinu að vel
væri fylgst með líðan fangans en að undanförnu
hefur Eiður Guðnason, aðalræðismaður Íslands í
Færeyjum, fengið að hitta hann vikulega.
karen@frettabladid.is
Enginn setið jafn
lengi í einangrun
Útlit er fyrir að Íslendingurinn sem situr í gæsluvarðhaldi í Færeyjum í tengsl-
um við Pólstjörnumálið muni sitja í einangrun í 170 daga. Hann hefur verið í
einangrun í 130 daga. Enginn hefur verið svo lengi í einangrun þar í landi.
DÆMDIR Þeir fengu langa fangelsisdóma Íslendingarnir
sem dæmdir voru fyrir þátt sinn í Pólstjörnumálinu 15.
febrúar. Sá sem fékk lengstan dóm var dæmdur til níu og
hálfs árs fangelsisvistar, annar í sjö ár og fimm mánuði og
sá þriðji í sjö ár. Fleiri menn voru dæmdir fyrir aðild að
málinu en samtals hljóðuðu fangelsisdómarnir upp á 32
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
SMYGLSKÚTAN
OG VARÐ-
SKIPIÐ ÆGIR
Nærri 40 kíló
af fíkniefnum
voru gerð upp-
tæk í skútunni
að morgni
fimmtudagsins
20. september
á síðasta ári.
SÁDI-ARABÍA Saksóknarar í Sádi-
Arabíu hafa til meðferðar mál 57
pilta sem voru handteknir
síðastliðinn fimmtudag fyrir að
daðra við stúlkur í verslanamið-
stöðvum í heilögu borginni Mekka.
Mennirnir eru sakaðir um að
hafa klætt sig ósiðlega, spilað
háværa tónlist og dansað til að ná
athygli stúlknanna. Talsmenn
piltanna telja að þeir hafi ekki
gert neitt rangt. Þeir hittist
einfaldlega reglulega í verslana-
miðstöðvunum um helgar til að
skemmta sér án þess að brjóta lög
um aðskilnað kynjanna. -fb
57 piltum stungið í fangelsi:
Sakaðir um
ósiðlegt daður
MENNTAMÁL Háskólaráð Háskóla
Íslands hefur samþykkt að stofna
afreks- og hvatningasjóð til
styrktar afburða-
nemendum.
Þetta kom
fram í ávarpi
Kristínar
Ingólfsdóttur
rektors við
brautskráningu
skólans í
fyrradag.
Úthlutað
verður úr
sjóðnum í fyrsta sinn í haust
annars vegar styrkjum til
nemenda sem ná afburðaárangri
á stúdentsprófi og innritast í
Háskóla Íslands og hins vegar til
nemenda sem skara fram úr í
námi sínu við Háskólann.
Kristín vék einnig að því í ræðu
sinni að hún hefði fyrir skemmstu
undirritað samstarfssaming við
Auðlindastofnun Indlands að
frumkvæði Rachendra Pachauri
sem hlaut nýverið friðarverðlaun
Nóbels. - þo
Háskóli Íslands:
Styrkir til bestu
nemendanna
KRISTÍN
INGÓLFSDÓTTIR
KÚBA Raúl Castro var í gær formlega kjörinn
forseti Kúbu af þingi landsins. Hann tekur
því við embætti af eldri bróður sínum Fidel
sem setið hefur við völd á Kúbu í nær hálfa
öld.
Raúl, sem er 76 ára að aldri, hefur verið
starfandi forseti landsins síðan Fidel dró sig í
hlé vegna veikinda árið 2006. Kjörið kom því
fáum á óvart.
Hins vegar vakti nokkra athygli að Raúl
skyldi útnefna José Jamon Machad Ventura
sem varaforseta þar sem margir vonuðust til
þess að einhver af yngri kynslóð kommúnista
yrði fyrir valinu. Að því er fram kemur á
fréttavéf BBC krafðist Raúl þess að einn af
upprunalegum leiðtogum byltingarinnar á
Kúbu fengi embættið og því varð hinn 78 ára
gamli Ventura fyrir valinu.
Vonir standa til þess að Raúl takist að bæta
efnahag landsins sem er bágur og að staða
mannréttindamála fari batnandi.
Raúl vottaði stóra bróður virðingu sína í
gær og greindi frá því að hann yrði áfram
hafður með í ráðum. - þo
Raúl Castro tekur formlega við forsetaembætti af stóra bróður sínum:
Kjörið kom ekki á óvart
ÞINGIÐ SAMHLJÓÐA Ljóst þótti að Raúl yrði næsti forseti en útnefning
varaforseta kom mörgum á óvart.
BANDARÍKIN, AP Neytendafrömuð-
urinn Ralph Nader tilkynnti í gær
að hann muni bjóða sig fram í for-
setakosningunum í Bandaríkjun-
um. Þetta verður í fimmta skiptið
sem Nader, sem á nokkra daga
eftir í 74 ára afmælið, býður sig
fram til forseta.
Nader verður óháður frambjóð-
andi, eins og þegar hann bauð
fram árið 2000 og árið 2004.
Árið 2000 sökuðu demókratar
hann um að hafa kostað Al Gore
sigur í kosningum gegn George W.
Bush með því að taka atkvæði sem
Gore hefði ella fengið. Óttast þeir
að Nader muni aftur taka atkvæði
frá demókrötum.
Nader tilkynnti um framboð sitt
í þættinum Meet the press, á sjón-
varpsstöðinni NBC. Þar sagði
hann Bandaríkjamenn ósátta við
bæði demókrata og repúblikana
eftir langt stríð í Írak og vegna
slæms efnahagsástands.
Nader gagnrýndi bæði John
McCain, sem sækist eftir útnefn-
ingu Repúblikanaflokksins, og þau
Hillary Clinton og Barack Obama,
sem sækjast eftir útnefningu
Demókrataflokksins. Ekkert
þeirra beiti sér fyrir heilbrigðis-
þjónustu fyrir alla landsmenn, né
væru þau tilbúin að skera niður
útgjöld til hernaðarmála.
Bæði Obama og Clinton reyndu
í gær að gera lítið úr áhrifum Nad-
ers. „Augljóslega hjálpar það ekki
hverjum þeim sem verður í fram-
boði fyrir demókrata. En þetta er
frjálst land,“ sagði Clinton. - bj
Ralph Nader verður óháður forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum í fimmta skiptið:
Demókratar óttast framboðið
VERÐUR Í
FRAMBOÐI Ralph
Nader blæs
á fullyrðingar
demókrata um
að hann taki
atkvæði frá
frambjóðanda
þeirra.
NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS
Friðrik, bylur ekki hæst í tómri
tunnu?
„Alla vega á Dalvík.“
Friðrik Ómar Hjörleifsson sigraði í undan-
keppni Eurovision og stríddi andstæð-
ingum sínum með því að hrópa „glymur
hæst í tómri tunnu“. Réttara þykir að
segja að það bylji hæst í tómri tunnu.
UMHVERFISMÁL Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, flutti
erindi um loftslagsbreytingar í
höfuðstöðvum Sameinuðu
þjóðanna í New York á föstudag.
Þar sagði hann að þær breytingar
sem orðið hefðu á orkunotkun
Íslendinga undanfarna áratugi
gætu orðið öðrum ríkjum
hvatning til þess að nýta hreina
orku.
Forsetinn sagði brýnt að
bregðast við loftslagsbreytingum
með uppstokkun á orkukerfum
heimsins og rakti hvernig
loftslagsbreytingar birtast okkur
í bráðnun jökla og heimskautaíss.
- þo
Forseti Íslands í New York:
Aðrir geta lært
af Íslendingum
GRÆNLAND Grænland hefur nú
fengið sína eigin Facebook-
heimasíðu eftir því sem græn-
lenski fjölmiðillinn Sermitsiaq
greindi frá í gær.
Þegar hafa 847 einstaklingar
skráð sig sem meðlimi á síðunni en
þar má einnig finna skemmtilegar
lýsingar um nágrannaþjóð okkar
og heimaslóðir þeirra. Eða eins og
grænlensku síðuhaldararnir segja:
„Hér er ekki bara verkstæði
jólasveinsins,“ en því næst mælast
þeir til þess að fólk lesi sér til um
„svalasta stað jarðarinnar“.
Þangað sé gott að koma og 56
þúsund eskimóar geti hreinlega
ekki haft rangt fyrir sér. - kdk
Svalasti staður jarðarinnar:
Grænlendingar
fara á Facebook