Fréttablaðið - 25.02.2008, Síða 6
6 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
iRobot ehf.
Hólshraun 7, 220 Hfj. • S. 555 2585 • Irobot.is
Umsagnir frá eigendum iRobot Roomba
ryksuguvélmennisins:
...ég hreinlega Elska hana
Varist eftirlíkingarErt þú búin að fá þér eina?
TASKI swingo XP
TASKI swingo 3500 B
TASKI swingo 1250 B
TASKI swingo 750 B
Engin útborgun, engin fjárbinding,
aðeins mánaðarlegar greiðslur.
TASKI Swingo 1250 B
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum og ráðgjöfum RV
TASKI swingo gólfþvottavélar
Einfaldar í notkun - liprar og
leika í höndunum á þér
Bjarnþór Þorláksson,
bílstjóri hjá RV
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
01
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Gólfþvottavélar
á rekstrarleigu
Út af við Eyjakot
Bíll fór út af veginum við Eyjakot
um hálfsexleytið í fyrradag. Að
sögn lögreglunnar á Blönduósi
urðu engin meiðsl á fólki og litlar
skemmdir á bílnum. Ökumaðurinn
er á fertugsaldri en mikil hálka var
á veginum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Ölvaður á Neskaupstað
Maður á þrítugsaldri var handtek-
inn grunaður um ölvun við akstur í
Neskaupstað aðfaranótt föstudags.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Undir áhrifum fíkiefna
Karlmaður á þrítugsaldri var hand-
tekinn í Reykjanesbæ í gærkvöldi
grunaður um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Að sögn lögreglunnar í
Reykjanesbæ er málið í vinnslu.
MATREIÐSLA Norðmaðurinn Geir
Skeie vann Food and Fun-
keppnina sem var haldin í
Listasafni Reykjavíkur í fyrra-
dag. Á meðan á dvöl hans hér á
landi hefur staðið hefur Geir
eldað á veitingastaðnum Silfri.
Tólf meistarakokkar víðsvegar
að úr heiminum tóku þátt í
keppninni sem fólst í því að
matreiða besta fisk-, kjöt- og
eftirréttinn úr íslenskum
hráefnum. Bar Geir sigur úr
býtum fyrir að matreiða alla þrjá
réttina best að mati dómnefndar.
Höfðu kokkarnir þrjár klukku-
stundir til að ljúka við átta
skammta af hverjum rétti. - fb
Tólf kokkar á Food and Fun:
Norðmaður bar
sigur úr býtum
Ert þú búinn að panta utan-
landsferð í sumarfríinu?
Já 23,3%
Nei 76,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú sáttur við niðurstöðu
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um
framtíð hans í borgarstjórnar-
flokki Sjálfstæðisflokksins?
Segðu þína skoðun á visir.is
TIL HVAÐA STJÓRNMÁLAMANNS BERÐ ÞÚ
MEST TRAUST UM ÞESSAR MUNDIR?
TIL HVAÐA STJÓRNMÁLAMANNS BERÐ ÞÚ
MINNST TRAUST UM ÞESSAR MUNDIR?
Skoðanakönnun Frétta-
blaðsins 23. febrúar 2008
Skoðanakönnun Frétta-
blaðsins 10. febrúar 2007
40,7%
16,3%
9,1%
6,9% 4,4% 4,0%
29,1%
18,5%
9,0%
5,6% 4,3% 4,3%
SKOÐANAKÖNNUN Flestir segjast nú
bera mest traust til Geirs H.
Haarde, forsætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins, af
öllum stjórnmálamönnum sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. 40,7 prósent þeirra
sem afstöðu tóku sögðust bera mest
traust til Geirs.
Næst flestir, eða 16,3 prósent
segjast bera mest traust til Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, utan-
ríkisráðherra og formanns Sam-
fylkingarinnar. Fyrir ári sagðist
12,1 prósent þeirra sem afstöðu
tóku bera mest traust til Ingibjarg-
ar.
9,1 prósent nefnir nú Steingrím
J. Sigfússon, formann Vinstri
grænna. Fyrir ári sagði rúmlega
fjórðungur, eða 25,7 prósent, að
hann treysti Steingrími mest allra
stjórnmálamanna.
Algengt er að sömu stjórnmála-
menn séu meðal þeirra sem mest
og minnst traust er borið til. Fyrir
ári var Ingibjörg Sólrún sá stjórn-
málamaður sem flestir, eða 27,3
prósent, sögðust bera minnst traust
til og Geir H. Haarde var í öðru
sæti og nefndu 11,9 prósent hans
nafn. Nú deila þau tvö fimmta og
sjötta sæti yfir þá stjórnmálamenn
sem minnst traust er borið til og
nefnd í 4,3 prósentum tilvika.
Á hæla þeirra kemur svo Stein-
grímur J. Sigfússon, en 4,1 prósent
nefnir hann sem þann stjórnmála-
mann sem minnst traust er borið
til. Það eru því fleiri sem nefna þau
þrjú sem stjórnmálamann sem
mest traust er borið til en sem
stjórnmálamann sem minnst traust
er borið til.
Þegar litið er til þeirra stjórn-
málamanna sem minnst traust er
borið til, segjast tæp 30 prósent
bera minnst traust til Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, oddvita sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík. Athygli vekur
að munur eftir búsetu er nánast
enginn og þá er jafnframt afar lítill
munur á afstöðu eftir kyni.
Þeim fjölgar verulega sem nefna
Össur Skarphéðinsson sem þann
stjórnmálamann sem minnst traust
er borið til. 18,5 prósent nefna hans
nafn nú en 2,2 prósent nefndu hann
fyrir ári síðan.
Þá nefna níu prósent nú Árna
Mathiesen, en einungis eitt prósent
nefndu hann sem þann stjórnmála-
mann sem minnst traust var borið
til fyrir ári. Í fjórða sæti yfir þá
stjórnmálamenn sem minnst traust
er borið til er svo Ólafur F. Magn-
ússon borgarstjóri og nefna hann
5,6 prósent.
Mikill meirihluti þeirra sem
nefna Ólaf eru búsettir á höfuð-
borgarsvæðinu.
Hringt var í 800 manns á kosn-
ingaaldri laugardaginn 23. febrúar
og skiptust svarendur jafnt eftir
kyni og hlutfallslega eftir búsetu.
Spurt var: Til hvaða stjórnmála-
manns berð þú mest traust um
þessar mundir? 62,0 prósent tóku
afstöðu til spurningarinnar. Þá var
spurt: En minnst? 55,4 prósent tóku
afstöðu til þeirrar spurningar.
svanborg@frettabladid.is
Mest traust til Geirs en
minnst til Vilhjálms Þ.
Rúmlega 40 prósent segjast bera mest traust til Geirs H. Haarde. Tæplega þrjá-
tíu prósent bera minnst traust til Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Fleiri segjast bera
mest traust til Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur en Steingríms J. Sigfússonar.
AÐRIR NEFNDIR SEM MINNST
TRAUST ER BORIÐ TIL
Steingrímur J. Sigfússon
Björn Bjarnason
Gísli Marteinn Baldursson
Árni Johnsen
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Einar K. Guðfinnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson
AÐRIR NEFNDIR SEM MEST
TRAUST ER BORIÐ TIL
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Guðni Ágústsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Ágúst Ólafur Ágústsson
Guðjón Arnar Kristjánsson
Sigurður Kári Kristjánsson
Svandís Svavarsdóttir
ÚR HVAÐA FLOKKI ÞAU ERU
SEM MEST TRAUST ER BORIÐ
TIL
Framsókn 3,2%
Sjálfstæðisflokkur 50,0%
Frjálslyndir 0,8%
Samfylking 33,9%
Vinstri græn 11,1%
Aðrir 1,0%
ÚR HVAÐA FLOKKI ÞAU ERU
SEM MINNST TRAUST ER
BORIÐ TIL
Framsókn 4,1%
Sjálfstæðisflokkur 58,0%
Frjálslyndir 1,6%
Samfylking 24,6%
Vinstri græn 5,9%
Aðrir 5,9%
Árni M.
Mathiesen
Vilhjálmur
Þ. Vil-
hjálmsson
Ólafur F.
Magnús-
son
Össur
Skarphéð-
insson
Geir H.
Haarde
Ingibjörg
Sólrún
Gísladóttir
Dagur B.
Eggerts-
son
Jóhanna
Sigurðar-
dóttir
Stein-
grímur J.
Sigfússon
Ingibjörg
Sólrún
Gísladóttir
Geir H.
Haarde
Össur
Skarphéð-
insson
KJÖRKASSINN
ÍRAK Að minnsta kosti 40 manns létu lífið og tugir til
viðbótar særðust í sjálfsmorðsárás sem gerð var í
bænum Iskandaria, sunnan við Bagdad í gær.
Árásin beindist gegn sjíta-pílagrímum sem áttu
leið um bæinn og voru á leið til borgarinnar Kerbala
fótgangandi. Þar fer nú fram ein helgasta hátíð sjíta-
múslíma. Að sögn sjónarvotta gekk tilræðismaðurinn
inn í hóp pílagríma og sprengdi sig síðan í loft upp.
Þetta var önnur árásin sem gerð var á pílagríma í
gær en fyrr um morguninn létust þrír og tæplega 50
særðust þegar árásarmenn sprengdu sprengju við
veg sem pílagrímar áttu leið um í Doura í Bagdad.
Að því er fram kemur á fréttavef BBC hefur oft
verið ráðist á pílagríma á þessari leið á undanförnum
árum og því var öryggisgæslan með mesta móti.
Tveir þeirra sem særðust í Doura voru einmitt lög-
reglumenn sem fylgdu pílagrímunum til að gæta
öryggis þeirra. - þo
Tvær mannskæðar árásir voru gerðar á sjíta-pílagríma í Bagdad í gær:
Tugir létust í sjálfsmorðsárás
MIKIÐ MANNFALL Fjölmargir særðust þegar tilræðismaður
sprengdi sig í loft upp innan um pílagrímana.