Fréttablaðið - 25.02.2008, Síða 10
25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
PÍTUBAKKI 2.390 kr.
ÁVAXTABAKKI
2.480 kr.
Vínber, melónur, ananas, appelsínur,
perur og fleiri gó›ir ávextir.
N†TT
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
*Frí heimsending gildir a›eins ef panta›ir eru 3 e›a fleiri bakkar.
Tikka masala kjúklingur,
jöklasalatog pítubrau›.
Reykt skinka, eggjasalat,
jöklasalat og pítubrau›.
Nánari uppl‡singar á somi.is
N†TT
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður
haldinn mánudaginn 3. mars 2008 kl. 14.00
í húsakynnum félagsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
M
I
41
14
3
02
/0
8
Aðalfundur 2008
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs.
4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
6. Kosning stjórnar félagsins.
7. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags).
8. Önnur mál löglega fram borin.
Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Aðalstræti 6, Reykjavík,
skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn
frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur
stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við
helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga
meira en 10% í félaginu.
Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu hluthöfum til sýnis viku
fyrir fundinn, en verða síðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Aðalstræti 6 / 101 Reykjavík / Sími 515 2000 / www.tm.is
Aðalfundur TM
STJÓRNMÁL „Allt frá því
ríkisstjórnin tók til starfa
hefur hún staðið frammi
fyrir miklum efnahags-
vanda. Verðbólgan er búin
að vera of mikil. Það verð-
ur ekki annað séð en að
ríkisstjórnin sé að missa
allt úr böndunum,“ segir
Guðni Ágústsson, formað-
ur Framsóknarflokksins.
Hann telur ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar standa „ráð-
þrota“ frammi fyrir erfið-
leikum í efnahagslífinu.
„Það var mikilvægt strax
eftir kosningar að ráðast í
að leggja verðbólguna að
velli. Ríkisstjórnin hefði
átt grípa þá til viðameiri
aðgerða en hún hefur gert.
Í stað þess stendur hún
frammi fyrir miklum
vanda,“ segir Guðni.
Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður Frjálslynda
flokksins, segir efnahags-
vandann er snýr að sjávar-
útveginum kalla á tafar-
lausar aðgerðir.
„Mótvægisaðgerðir vegna
niðurskurðar þorskafla-
heimilda voru ekki miklar.
Nú er búið að loka fyrir loðnuveið-
ar. Saman við mikla lægð á hluta-
bréfamörkuðum eru þetta grafal-
varlegar fréttir sem ríkisstjórnin
verður að bregðast við með skjót-
um hætti.“
Frá því að niðursveifla á hluta-
bréfamörkuðum gerði vart við sig
hér á landi, á haustmánuðum í
fyrra, hefur verðgildi
íslenskra fyrirtækja lækk-
að um meira en 1.300 millj-
arða. Það þýðir umtals-
verða tekjuskerðingu fyrir
ríkið vegna minnkandi
skatttekna. Ríkisstjórnin
hefur ekki tekið ákvörðun
um að hægja á fram-
kvæmdum eða hætta við
þær.
Guðjón Arnar segir rík-
isstjórnina þurfa að sýna
meiri ráðdeild og ábyrgð.
„Það er vitaskuld vandmeð-
farið að stýra efnahagsmál-
unum þegar ástandið er
eins og það er. En hún verð-
ur að bregðast við. Eflaust
verður ríkið fyrir tekju-
skerðingu upp á tugi millj-
arða og henni þarf að
mæta. Á móti kemur að
nauðsynlegt er að grípa til
aðgerða til þess að mýkja
lendinguna af því hrapi
sem blasir við í sjávarút-
veginum.“
Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri
grænna, segir ríkisstjórn-
ina ekki geta hundsað stöð-
una. „Það er augljóst mál
að aðhaldsleysi í ríkisfjár-
málunum síðustu árin er að valda
vandræðum nú þegar kreppir að.
Þenslan hefur verið alltof mikil og
hún er fyrst og fremst sjálfskapar-
víti.“
Ríkisstjórnin vinnur að endur-
skoðun mótvægisaðgerða vegna
vandamála í sjávarútveginum.
magnush@frettabladid.is
Ræður ekki við
efnahagsmál
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna telja ríkis-
stjórnina ekki ráða við efnahagsmálin. Stjórnin ráð-
þrota, segir Guðni Ágústsson. Stjórnin þarf að sýna
meiri ábyrgð, segir Guðjón Arnar Kristjánsson.
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON
GUÐNI
ÁGÚSTSSON
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
FÆREYJAR Söfnun er hafin fyrir
íbúa þorpsins Skálavíkur á Sandey
sem varð fyrir miklum ágangi
sjávar í óveðri sem gekk yfir Fær-
eyjar um síðustu mánaðamót.
Brim gekk þá langt á land og braut
mannvirki við höfnina, þar á meðal
fiskverkunarhús. Þá sukku nær
allir bátar í höfninni en þeir sem
voru á landi brotnuðu í spón. Sam-
tals sukku eða brotnuðu fimmtán
af sextán bátum þorpsbúa.
Óveðrið skolaði mestum hluta
brimvarnargarðsins inn í höfnina,
fyllti hana af grjóti og gerði ónot-
hæfa. Kirkjugarður Skálavíkur
fór einnig illa þar sem stórum
hluta garðsins skolaði á haf út.
Skálavík er 300 manna samfélag
sem byggir afkomu sína eingöngu
á sjósókn. Er atvinnulífið lamað
eftir þetta mikla áfall. Söfnunar-
reikningur númer 0565-14-607914
hefur verið opnaður í Glitni og er
kennitalan 270366-3419. „Er það
von okkar að íslenska þjóðin sýni
bræðraþjóð okkar þann hlýhug að
styrkja hana fjárhagslega í erfið-
leikum hennar,“ segir í tilkynn-
ingu frá aðstandendum söfnunar-
innar. Er þar minnt á rausnarlega
framgöngu Færeyinga í kjölfar
náttúruhamfara á Íslandi.
Söfnunin hefur farið vel af stað
en hún stendur til 14. mars. „Ég
vona að fyrirtæki og stofnanir
bregðist líka vel við,“ segir Níels
J. Erlingsson, einn aðstandenda
söfnunarinnar. - ovd
Nær allur bátafloti íbúa Skálavíkur á Sandey ónýtur og höfnin full af grjóti:
Söfnun fyrir íbúa Skálavíkur
FRÁ FÆREYJUM Mesta óveður sem
gengið hefur yfir Færeyjar í manna
minnum ógnar afkomu þrjú hundruð
manna samfélags.
Tveir undir áhrifum fíkniefna
Tveir ökumenn á þrítugsaldri voru
handteknir grunaðir um að aka undir
áhrifum fíkniefna á höfuðborgar-
svæðinu. Fyrst var maður handtekinn
í Hafnarfirði aðfaranótt laugardags og
síðan var annar tekinn á Miklubraut-
inni á laugardagsmorgun.
LÖGREGLUFRÉTTIR