Fréttablaðið - 25.02.2008, Page 16
16 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
TENNESSEE WILLIAMS, LEIK-
SKÁLD, LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1983, 73 ÁRA AÐ ALDRI.
Við erum öll tilraunadýr á
rannsóknastofu guðs. Mann-
kynið er bara hluti af til-
rauninni.
Tennessee Williams var banda-
rískt leikskáld sem skrifaði
meðal annars verkin Köttur á
heitu blikkþaki og Sporvagn-
inn Girnd.
MERKISATBURÐIR
1570 Píus V páfi bannfærir
Elísabetu 1. með páfabull-
unni Regnans in Excelsis.
1920 Jón Magnússon verður
forsætisráðherra Íslands í
annað sinn og situr ríkis-
stjórn hans við völd í tvö
ár.
1942 Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna er stofnuð.
1944 Alþingi samþykkir ein-
róma að sambandslögin
um konungssamband Ís-
lands og Danmerkur séu
fallin úr gildi.
1975 Ragnhildur Helgadóttir er
fyrst kvenna kosin forseti
Norðurlandaráðs á þingi
þess í Reykjavík.
1966 Bandaríska söngkonan
Ella Fitzgerald kemur til Ís-
lands og heldur tónleika í
Háskólabíói.
Fyrir fimm árum seldist síðasti hlutinn af
eign ríkisins í Landsbankanum á tveimur
mínútum. Þar með átti íslenska ríkið ekk-
ert í Landsbanka Íslands lengur. Þetta var
útboð upp á 640 milljónir og það voru
Landsbréf sem sáu um útboðið.
Gengi þessara viðskipta var ákveðið 3,73
og voru hlutirnir afgreiddir í þeirri röð sem
tilboð bárust. Ekki var sett hámark á ein-
stök viðskipti og kláraðist skammturinn í
tæplega 40 viðskiptum. Meðalhlutur var
því ríflega sextán milljónir króna. Þetta var
í annað sinn sem ríkið seldi eignir sínar
á þennan hátt í gegnum viðskiptakerfi
Kauphallar Íslands. Landsbréf sáu um sölu
á um 20 prósenta hlut í Landsbankan-
um með þessari aðferð áður og reynslan
af henni þótti góð en þau bréf seldust á
parti úr degi sumarið 2002.
ÞETTA GERÐIST : 25. FEBRÚAR 2003
Ríkið selur Landsbankann
Elskuleg eiginkona mín,
Margrét Guðmundsdóttir
Hveragerði,
er látin. Jarðsett verður í kyrrþey.
F.h. fjölskyldunnar,
Sigmundur Bergur Magnússon.
Móðir okkar og tengdamóðir,
Arnóra Friðrikka Salóme
Guðjónsdóttir
síðast til heimilis að Sléttuvegi 13
Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn
17. febrúar sl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 26. febrúar nk. kl. 14.00.
Eiríkur Valdimarsson
Arnfríður H. Valdimarsdóttir Ólafur Árnason
Magnúsína G. Valdimarsdóttir Þór G. Þórarinsson
Sigurjóna Valdimarsdóttir Kristjón Sigurðsson
Arnór V. Valdimarsson Guðlaug Jónsdóttir
Páll G. Valdimarsson Soffía Gísladóttir
Sigurborg Valdimarsdóttir Jón Egilsson
Guðjón Valdimarsson Ólafía G. Einarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
Hrafnkell Helgason
Holtabyggð 2, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 25. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
LAUF, Landssamtök áhugafólks um flogaveiki.
Helgi Kristjánsson Edda Guðmundsdóttir
Steinar Helgason
Alfa Hraundal varð í öðru sæti.
Auður Styrkársdóttir er forstöðu-
maður Kvennasögusafns Reykjavík-
ur. Hún leitaði til Fréttablaðsins með
visst erindi og við gefum henni hrein-
lega orðið:
„Árið 1930 voru svokallaðar Teofani-
myndir í gangi. Teofani var sígarettu-
tegund sem var flutt hingað inn. Það
var árið 1929 sem nokkrir ljósmynd-
arar sendu myndir af ungum íslensk-
um stúlkum og konum til innflytj-
anda þessara sígarettna og eflaust að
beiðni hans. Þetta voru 50 myndir sem
voru settar inn í sígarettupakkana og
síðan áttu kaupendur sígarettnanna
að senda inn bréf um það hvaða stúlka
þeim þætti fallegust. Auðvitað var
þetta til að auka söluna. Ef einhverj-
um tækist að safna öllum 50 mynd-
unum var í boði útsýnisflugferð yfir
Reykjavík. Þann vinning hreppti hinn
14 ára gamli Örn Johnson. Hann var
þó ekki reykingamaður heldur hafði
hann setið um tóma pakka til að safna
myndunum. Hann fékk að fara í þessa
15 mínútna flugferð og kannski hefur
hann smitast þá af flugbakteríunni. Að
minnsta kosti varð hann einn af frum-
kvöðlum flugsins á Íslandi.
En aftur að keppninni. Úrslitin voru
tilkynnt á Alþingishátíðinni á Þing-
völlum. Þó var það atriði ekki eitt af
þeim sem kynnt voru í prentaðri dag-
skrá heldur var þeim haldið einhvers
staðar til hliðar. Svo birti Fálkinn nöfn
þriggja efstu stúlkna í þessari kosn-
ingu í næsta tölublaði á eftir. 1. verð-
laun voru 500 krónur, 2. verðlaun 200
krónur og 3. verðlaun 100 krónur.
Þetta var dágóð upphæð í þá daga. Svo
birtust viðtöl við þær í DV 1982.
Við höfum sem sagt nöfn á þeim
stúlkum sem urðu í þriðju efstu sætum
keppninnar. Síðan hefur okkur tekist
að hafa uppi á nöfnum tveggja í við-
bót, annarri þeirra með hjálp Frétta-
blaðsins. Það kom þannig til að verið
var að rífa innan úr gamla Ríkinu
(Pósthúsinu) á Seyðisfirði og með frá-
sögn af því birtist mynd sem fannst á
milli þilja. Þar var komin ein af þess-
um Teofani-stúlkum og ömmubarn
hennar bar kennsl á hana.
Við eigum allar þessar 50 myndir og
þær eru líka til á Þjóðminjsafninu en
nöfnin vantar. Nú er spurningin hvort
Fréttablaðið vilji ekki birta eina og
eina mynd eða tvær og spyrja: „Þekk-
ir þú þessa konu?” Vonandi þekkja
einhverjir móður sína eða ömmu á
þeim. Þeir eru góðfúslega beðnir að
hafa samband við Kvennasögusafnið
í síma 525-5779 eða í tölvupósti á net-
fangið audurs@bok.hi.is Við yrðum
afar þakklát fyrir alla aðstoð í þessu
sambandi.“
gun@frettabladid.is
ÞEKKIR EINHVER ÞESSA STÚLKU?ÞEKKIR EINHVER ÞESSA STÚLKU?
Sigurbjörg Lárusdóttir varð í þriðja sæti.
KVENNASÖGUSAFNIÐ LÝSIR EFTIR NÖFNUM VIÐ LJÓSMYNDIR
Þekkir einhver þessar stúlkur?
Hildur Grímsdóttir varð í fyrsta sæti og hlaut
500 krónur að launum.
ÓÞEKKTAR STÚLKUR. Auður með myndirnar sem flestar eru ómerktar. Á næstu dögum og
vikum mun Fréttablaðið birta eina og eina mynd á Tímamótasíðunni með spurningunni:
Þekkir þú þessa stúlku? FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFMÆLI
GUÐRÚN
VILMUND-
ARDÓTTIR
leikhús-
fræðingur
er þrjátíu og
fjögurra ára
í dag.
JÓN ÓLAFS-
SON tónlist-
armaður er
fjörutíu og
fimm ára í
dag.
SIGURÐUR
B. STEFÁNS-
SON
hagfræðing-
ur er sextíu
og eins árs í
dag.
ÞORSTEINN
EGGERTS-
SON tónlist-
armaður og
textahöf-
undur er
sextíu og
sex ára í
dag.