Fréttablaðið - 25.02.2008, Qupperneq 18
[ ]
Sú athöfn að borða er í hugum
okkar flestra í fastmótuðum
skorðum.
Venjulega setjumst við niður og
notum ákveðin áhöld til að veiða
upp úr pottum og til að matast
með. Kimberly Hu er ungur vöru-
hönnuður sem býður upp á
skemmtilega sýn á matmálstím-
ann.
Í verki sínu „Dinner Theater“
sem gæti útlagst sem kvöldmatar-
leikhús, brýtur Kimberly Hu alla
borðsiði. Borðbúnaðurinn er í raun
sjálfur til átu. Ljósakrónan er
gróft brauð, volgt af hitanum frá
perunni. Gestirnir brjóta sér bita
af ljósakrónunni og dýfa í smjör-
kertið sem logar á miðju borði.
Aðalrétturinn er skál úr hrísgrjón-
um sem hægt er að fylla með
grænmeti og hverju sem er og eft-
irrétturinn er diskamottan sem er
í rauninni súkkulaðikaka.
Hönnun snertir alla þætti okkar
daglega lífs, matinn líka og þetta
verkefni er hressandi sjónarhorn
á matartímann.
Hægt er að skoða nánar kvöld-
matarleikhúsið og nálgast upp-
skriftir á www.kimmu.com
heiða@frettabladid.is
Verði ykkur að góðu
Diskamottan er í raun þykk og ljúffeng
súkkulaðikaka. Ljósakrónan er úr brauði sem helst volgt í hitanum frá perunni.
Kvöldmatarboðið verður alveg ný upplif-
un þegar borðbúnaðurinn er til átu.
Gólfmottur má fríska upp á með því að skella
þeim á hvolf út í snjóskafl. Dusta þær svo duglega
áður en þær eru teknar inn aftur.
Le Creuset er heimsþekkt
vörumerki í pottum, pönnum
og eldföstum mótum. Emaler-
aðir og litríkir gripirnir hafa
sérstakt og fallegt útlit en eru
þó klassískir.
Margir safna pottum frá Le Creu-
set sem eru löngu orðnir klassísk-
ir. Líflegir litirnir færa með sér
sígildan, franskan stíl sem lífgar
upp á öflugt, steypt járnið. Hitinn
breiðist jafnt út í emalerað járnið
hvort sem pottarnir og mótin eru
notuð í ofni, á grilli eða hellu. Þetta
eru pottar sem endast vel og lengi
og erfast jafnvel manna á milli.
Hver gripur er steyptur í sand-
mót sem er bara notað einu sinni
og hentar hvers konar eldavélum.
Þessi nýi grænblái litur fæst ein-
ungis hjá John Lewis-verslunun-
um en þær eru einnig með vef-
verslun á www.johnlewis.com. og
má finna hina grænbláu Le Creu-
set-línu undir heitinu „Teal Le
Creuset Range“. Einnig fást ker-
amikdiskar í sama lit.
Nánari upplýsingar um Le Creu-
set-vörurnar má finna á heima-
síðu fyrirtækisins www.lecreuset.
com en verslunin Búsáhöld í
Kringlunni er með vörur frá Le
Creuset á boðstólum. -hs
Heiðblátt á
eldavélina
Nýi blái liturinn á pottunum frá Le
Creuset er mjög sérstakur og heillandi.
Gaman getur verið að blanda saman
litum.
Grensásvegi 12A
108 Reykjavík
UMBROT
AUGLÝSINGAR
Tökum að okkur að setja upp
prentverk, stór sem smá.
Auglýsingar, bækur, blöð,
dreifibréf, fréttabréf,
fermingarkort, gjafakort,
nafnspjöld, tímarit og hvað
eina sem þarf að prenta.
Útbúum auglýsingar í alla
prentmiðla.
Einnig skjá-, strætisvagna- og
skiltaauglýsingar.
Láttu þínar upplýsingar sjást.
sími: 568 1000// frum@frum.is// www.frum.is
Fr
um