Fréttablaðið - 25.02.2008, Page 42

Fréttablaðið - 25.02.2008, Page 42
18 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Nú syrtir í álinn. Útlit er fyrir að kreppan verði dýpri og lengri en talið var í fyrstu. Ekki nóg með það, held- ur mætir hún líkast til fyrr til leiks en við héld- um. Það er sem sagt ekki seinna vænna að láta grafa dem- anta í tennurnar og gullhúða lúxu- sjeppann; það styttist í að slíkar skreytingar þyki bera vott um smekkleysi hins ríka í heimi fátækra. Almennt er fátt sem við óttumst eins mikið og kreppur. Kreppuótt- inn stafar ekki aðeins af því að við hræðumst að þurfa að gefa nautnir og neyslu upp á bátinn; við óttumst kreppur ekki síður vegna þess að innst í okkar kjarna trúum við því að efnahagskreppur séu þess megnugar að knésetja mannlegt samfélag eins og við þekkjum það og þurrka út alla siðmenningu. Við sjáum fyrir okkur að samfélag sem hefur lengi verið sligað af kreppu taki á sig einkenni hryllingsmynda; þannig óttumst við í raun að krepp- an slengi okkur beinustu leið inn í myndir á borð við I am Legend eða 28 Days Later þar sem mannlegar hetjur standa einar á móti full- komnu hruni siðmenningarinnar og sturluðum mannætum. Mannát, tja, við skulum vona að kreppan verði ekki svo langvinn. En víst er það svo að neyðin kennir naktri konu að spinna og allt er hey í harðindum. Þó verður að segjast að á þessu stigi málsins er óþarfi að slengja fram bölsýnum framtíðar- spám; kreppan er enn sem komið er bara lítil og pen. Lítum hana því björtum augum. Hruni siðmenning- arinnar fylgja nefnilega ýmsir kostir. Stöðumælaverðir gufa til að mynda upp sem starfsstétt og í kjöl- farið verður mögulegt að leggja bókstaflega hvar sem er án þess að eiga von á sekt. Það er frábært þar sem fæstir hafa efni á að borga stöðumælasektir þegar kreppan sverfur að. Íslendingar sýna nú þegar mikla færni og hugmynda- auðgi þegar kemur að því að leggja bílunum á skapandi og frumlegan hátt. Leiða má því líkur að því að kreppan muni færa okkur ný tilþrif á þessu sviði. Því ber að fagna. STUÐ MILLI STRÍÐA Fall siðmenningarinnar VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR REYNIR AF VEIKUM MÆTTI AÐ VERA BJARTSÝN Hæ! Gott jólahlað- borð? Hún Sesselja Fróða er nú ansi sæt. Sonur okkar beraði tennurnar og hvæsti á mig! Unglingar verða illa haldnir af þráhyggju. Að minnsta kosti á mánudögum! Kannski líka á þriðjudögum. Sjúkur, sjúkur maður! Klukkan hálf tvö hélt hann aðra ræðu! Þá átti hann sér draum um að fá sem flestar hjúkkur með sér heim í freyðibað! Ja hérna! Forstjórinn hélt ræðu fyrir matinn! Hann átti sér draum um að reka kraftmesta sjúkra- húsið í Norður-Evrópu, með hjálp skapandi og vinnufúsra starfsmanna! Já, já! Hverju?Solla, ef þú heldur áfram að gretta þig mun andlitið á þér festast svona einhvern daginn. Hvernig stendur á því að ég finn sokka úti um allt? Elskaðu þá og yfirgefðu þá. ...einn enn... Er ekki skrýtið að allir hérna inni séu eineggja tvíburar? Því trúi ég ekki! Spurðu bara pabba þinn. Nú, svo það er útskýringin á þessu. 27. febrúar 28. febrúar 2.mars

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.