Fréttablaðið - 31.03.2008, Blaðsíða 19
fasteignir
31. MARS 2008
Fasteignasalan Remax hefur til sölu stórt einbýli
með góðum garði.
Um er að ræða einbýlishús á einni hæð með góðum
garði á Furuvöllum 11 í Hafnarfirði sem stendur á
869,1 fermetra hornlóð en húsið sjálft er alls 194,7
fermetrar þar af 40 fermetra bílskúr. Bílaplan er
hellulagt með hitalögn. Á palli er birtustýrð lýsing
og blómabeð. Lóðin er lögð náttúrutorfi sem ekki
þarf að hugsa um. Gólfhiti er í húsinu og flísar á
öllum gólfum.
Í forstofu eru flísar á gólfi og fataskápar. Frá for-
stofu er komið inn í hol, þaðan er gengið inn í þvotta-
hús og bílskúr. Til vinstri er eldhús og sjónvarpshol
og beint áfram er stofa. Þvottahús er með góðri
vinnuaðstöðu og útgengt er þaðan út á pall með
potti. Bílskúrinn er flísalagður með millilofti og
gluggum. Eldhús er mjög rúmgott, stór innrétting
úr gegnheilli eik. Uppþvottavél og ísskápur fylgja.
Stór borðkrókur er í eldhúsi og þaðan er gengið út á
pall. Inn af eldhúsi er sjónvarpshol. Innst í stofunni
eru mjög stórir gluggar og virkar sá hluti stofunn-
ar því eins og nokkurs konar sólstofa. Frá stofunni
eru tveir útgangar út á pall. Á svefnherbergisgangi
eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Svefnher-
bergin eru öll með skápum. Baðherbergið er flísa-
lagt í hólf og gólf, með bæði nuddhornbaðkari og
gufusturtuklefa.
Nánari upplýsingar fást hjá Remax í Skeifunni.
Birtustýrð lýsing á palli
Fasteignasalan Remax hefur til sölu einbýlishús. Stór og falleg lóð fylgir eigninni.
Við hjá
Eignamiðlun Suðurnesja
erum flutt á Hafnargötu 91
230 Reykjanesbæ
Verið ávallt velkomin!
Hafnargata 91 • 230 Reykjanesbær
Sími 421 1700 • www.es.is
EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA
stofnað 1978 – Sími 421 1700
Fr
u
m
Brúarlán Netbankans er þægileg leið til að brúa bilið frá kaupum
á nýrri íbúð til sölu á þeirri gömlu. Farðu á www.nb.is og kynntu
þér málið eða fáðu nánari upplýsingar í síma 550 1800.