Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 2
2 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
Ísólfur, gengur þú ekki á und-
an með góðu fordæmi?
„Að sjálfsögðu. Ég á fjögur börn
með sömu konunni sem þykir
merkilegt nú til dags. Þannig að ég
hef fórnað mér fyrir málstaðinn og
hvet aðra til dáða.“
Fræðslunefnd Hrunamannahrepps hefur
áhyggjur af mannfæð í hreppnum og
skorar á fólk að geta fleiri börn. Ísólfur
Gylfi Pálmason er formaður sveitarstjóri í
Hrunamannahreppi.
Fljótlegt og gott
DÓMSMÁL Rannsókn á nauðgunar-
máli tók lengst 1.050 daga á árabil-
inu 2002 til 2006. Stysti rannsókn-
artími á nauðgunarmáli á sama
tímabili var tíu dagar, samkvæmt
upplýsingum frá embætti ríkissak-
sóknara.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksókn-
ari hefur gefið út fyrirmæli til lög-
reglustjóra um málsmeðferðartíma
í nauðgunarmálum. Meðferðartím-
inn telst frá því að kæra er lögð
fram, eða frá
þeirri stundu að
upplýst er hver
kærður er, og
þar til rannsókn
lýkur og málið
er sent til ríkis-
saksóknara.
Rannsókn lög-
reglu á nauðgun-
armáli skal ekki
standa lengur
en í sextíu daga,
samkvæmt fyrirmælunum, nema
að rannsóknarhagsmunir eða „...
aðrar alveg sérstakar ástæður
standi því í vegi“ að því er segir í
bréfi ríkissaksóknara til lögreglu-
stjóranna í landinu. Sjálfur skal
ríkissaksóknari taka ákvörðun um
saksókn innan þrjátíu daga frá því
að mál berst embættinu.
Kannanir starfshóps ríkissak-
sóknara á meðferð nauðgunarmála
hjá lögreglu og ákæruvaldi hafa
sýnt að meðaltími rannsókna á
nauðgunarmálum hefur lengst
jafnt og þétt, úr 96 dögum árið 1998
í 167 daga árið 2001. Meðaltíminn
var enn lengri á árabilinu 2002 til
2006, því hann náði 210 dögum á
síðastnefnda árinu.
Niðurstaða starfshópsins var sú
að rannsókn mála taki yfirleitt of
langan tíma.
„Ástæða þessa virðist oftast sú
að óútskýrð hlé verða á rannsókn,“
segir í skýrslu hópsins. „Í nokkrum
málum hefur málsmeðferð tafist
við það að beðið hefur verið eftir
bótakröfum þótt mál teljist
fullrannsakað... Þá líður oft langur
tími frá beiðni þar til dómskýrsla
er tekin. Almennt virtust sjö til tíu
dagar líða frá beiðni þar til skýrsla
var tekin. Í einu máli liðu 28 dagar
þar til skýrsla var tekin.“
Starfshópurinn lagði til að ríkis-
saksóknari gæfi fyrirmæli um
hámarkstíma málsmeðferðar í
nauðgunarmálum sem skyldi að
jafnaði ekki vera lengri en 45 dagar
hjá lögreglustjórum, en þrjátíu
dagar hjá ríkissaksóknara. Ríkis-
saksóknari óskaði í kjölfarið
umsagnar lögreglustjóranna um
þessa tillögu. Að þeim fengnum var
talið raunhæft að setja markið við
að ljúka rannsókn í þessum mála-
flokki á sextíu dögum. Reglur um
þessi tímamörk taka gildi frá og
með 1. júlí næstkomandi.
jss@frettabladid.is
Rannsókn á nauðgun
tók tæplega þrjú ár
Ríkissaksóknari hefur sett lögreglu tímamörk á rannsókn nauðgunarmála. Rann-
sókn slíkra mála skal að óbreyttu ekki taka lengri tíma en sextíu daga. Lengst
hefur nauðgunarmál verið í rannsókn hjá lögreglu í 1.050 daga, styst í tíu daga.
RANNSÓKNARTÍMI NAUÐGUNARMÁLA
2002 2003 2004 2005 2006
Meðaltal dagafjöldi 195 204 153 195 210
Lengst 450 690 300 1050 599
Styst 10 10 30 36 24
Heimilid: Embætti ríkissaksóknara
EMBÆTTTI RÍKISSAKSÓKNARA Embætti ríkissaksóknara hefur sett reglur um
hámarkstíma málsmeðferðar nauðgunarmála. Rannsókn lögreglu á nauðgunarmáli
skal ekki standa lengur en í 60 daga, að óbreyttu.
FÓLK Á annað hundrað manns
lögðu leið sína á þjónustustöð
Skeljungs á Bústaðavegi í gær-
morgun eftir að Fréttablaðið sagði
frá því á forsíðu að í tvær klukku-
stundir myndi fólk fá verulegan
afslátt af eldsneyti. Flestir tóku
því vel þegar þeir áttuðu sig á því
að þeir höfðu hlaupið apríl, að
sögn stöðvarstjóra. Fjöldi manna
ætlaði að nýta sér þetta rausnar-
lega tilboð Skeljungsmanna en
þurftu frá að hverfa, lítið eitt rjóð-
ir í kinnum.
Eins og löng hefð er fyrir hljóp
landinn apríl þvers og kruss og
fjölmiðlar stóðu fyrir stórum hluta
þessara gönuhlaupa, að venju.
Fréttablaðið sagði frá því á for-
síðu að Skeljungur myndi lækka
verð á eldsneyti verulega í tvær
klukkustundir. Var afslátturinn
sem nemur olíugjaldi ríkisins,
sem hljómaði ákaflega vel í eyrum
neytenda eftir orrahríð síðustu
vikna.
Jóhanna Berndsen stöðvarstjóri
segir að fjöldi fólks hafi komið á
Bústaðaveginn til að nýta sér
afsláttinn. „Það komu örugglega á
annað hundrað manns hingað í
gærmorgun og fjöldinn allur
hringdi til að fá upplýsingar. Aðrar
stöðvar hjá okkur fengu líka við-
skiptavini sem vildu nýta tilboðið.
Einn hringdi utan af landi. Ég
stoppaði manninn þegar hann ætl-
aði að leggja af stað í bæinn.“ - shá
Fréttablaðið og Skeljungur létu fjölda Íslendinga hlaupa apríl í gær:
Aprílgabbi yfirleitt vel tekið
GABBAÐUR Þessi viðskiptavinur var einn
þeirra sem gáðu ekki að sér. Látbragð
hans segir allt sem segja þarf.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VALTÝR
SIGURÐSSON
FRAMKVÆMDIR Endurbætur á
sjóvörnum við Ánanaust eru
hafnar á vegum framkvæmda-
sviðs Reykjavíkurborgar. Eins og
þekkt er verða iðulega miklar
skemmdir á sjóvarnagarðinum
við Ánanaust þegar ágangur
sjávar er sem mestur. Sérstak-
lega hefur skapast vandræða-
ástand á þessum stað í miklum
óveðrum og háflóði.
Samhliða endurbótum á
sjóvarnagarðinum liggur fyrir
áætlun um allt að þriggja hektara
landfyllingu við Ánanaust.
Reykjavíkurborg fékk landslags-
arkitekt til að móta útlínur
sjóvarnagarðsins og landfylling-
arinnar. Undirbúningur fram-
kvæmda við landfyllinguna hefst
fljótlega en efni í hana mun koma
úr grunni nýs tónlistar- og
ráðstefnuhúss. - shá
Framkvæmdir við Ánanaust:
Sjóvarnagarður
byggður upp
ÁNANAUST Hér hefur sjór gengið ítrekað
á land með tilheyrandi vandræðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISMÁL Ljóst er að losun
gróðurhúsalofttegunda frá
olíuhreinsistöð á Vestfjörðum
rúmast ekki
innan losunar-
heimilda
samkvæmt
skuldbinding-
um Íslands til
ársins 2012.
Þetta kemur
fram í svari
Össurar
Skarphéðins-
sonar iðnaðar-
ráðherra við
fyrirspurn
Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns
Vinstri grænna.
Þar segir ennfremur að miðað
við stöð af þeirri stærð sem
reikna megi með verði losunin
um 560 þúsund tonn á ári.
Hlutfall losunar miðað við
heildarlosun 1990 væri því 16,23
prósent. - bj
Ráðherra um olíuhreinsun:
Rúmast ekki
innan Kyoto
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
LANDBÚNAÐUR Verð á öllu fóðri frá
Fóðurblöndunni hækkar um 12 til
21 prósent á morgun. Á heimasíðu
fyrirtækisins er greint frá því að
ástæðurnar séu miklar hækkanir
á innfluttu hráefni til fóðurgerðar
og gengislækkun. Til að mynda
hafi gengi evru hækkað um tæp
fjörutíu prósent frá því í október
í fyrra og kostnaðarverð á því
hráefni sem þarf til fóðurgerðar
hækkað um tíu til fimmtán
prósent á sama tíma. Verð á fóðri
hefði á sama tíma aðeins hækkað
um þrettán prósent.
Fyrirtækið Lífland hefur einnig
tilkynnt að vegna áframhaldandi
verðhækkana á hráefnum og
fyrirsjáanlegrar veikingar
krónunnar þurfi að hækka verð á
kjarnfóðri þaðan á næstunni. - kdk
Verðhækkanir í landbúnaði:
Dýrara fóður
SAMGÖNGUR Borgarstjórn Reykja-
víkur skorar á samgönguráðherra
og formann samgöngunefndar
Alþingis að beita sér fyrir því að
hönnun Sundabrautar fari fram
samhliða mati á umhverfisáhrifum
til að flýta framkvæmdinni eins og
hægt er.
Tillaga um þetta var samþykkt
samhljóða á fundi borgarstjórnar í
gærkvöldi.Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður borgarráðs,
segir að þetta geti flýtt verkinu um
hálft ár. Hann segir fulla samstöðu
í borgarstjórn um að Sundabraut
verði í göngum. Ráðherra verði að
beita sér fyrir því að ákvörðun
verði tekin. - bj
Borgarstjórn um Sundabraut:
Undirbúningi
verði hraðað
FRÉTTABLAÐIÐ Björn Ingi Hrafnsson og Björgvin
Guðmundsson hafa verið ráðnir viðskiptaritstjórar á
Fréttablaðinu.
Þessi ákvörðun er liður í því að auka umfjöllun um
viðskipti, efnahagsmál og atvinnulífið í Fréttablað-
inu og Markaðnum. Viðskiptaritstjórar Fréttablaðs-
ins munu, jafnframt því að ritstýra Markaðnum,
hafa yfirumsjón með miðlun frétta um þessi efni,
undir merkjum Markaðarins, á öðrum miðlum 365.
Björn Ingi Hrafnsson var borgarfulltrúi í Reykja-
vík og formaður borgarráðs. Hann gegndi störfum
aðstoðarmanns utanríkisráðherra og aðstoðarmanns
forsætisráðherra, en starfaði áður lengi á fjölmiðl-
um. Hann var meðal annars blaðamaður og þing-
fréttaritari Morgunblaðsins og blaðamaður á Eintaki
og Morgunpóstinum. Hann hefur einnig unnið við
dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi auk þess sem
tvær bækur hafa komið út eftir hann.
Björgvin Guðmundsson er núverandi ritstjóri
Markaðarins og var áður fréttastjóri á Fréttablaðinu
og ritstjóri DV.
Viðskipta- og efnahagsmál fá aukið vægi hjá miðlum 365:
Björgvin og Björn Ingi ráðnir
viðskiptaritstjórar Fréttablaðsins
BJÖRN INGI HRAFNSSONBJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
Sofandi ók út á ísilagða á
Ökumaður fólksbíls slapp án meiðsla
þegar hann sofnaði undir stýri og
hafnaði úti á ísilagðri Seljadalsá í
Reykjadal á fjórða tímanum í gær. Að
sögn lögreglunnar á Húsavík brotnaði
ísinn undan framhluta bílsins, og er
ljóst að illa hefði getað farið.
LÖGREGLUMÁL
SPURNING DAGSINS