Fréttablaðið - 02.04.2008, Síða 4

Fréttablaðið - 02.04.2008, Síða 4
4 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR BREIÐAVÍK Viðari Má Matthíassyni lagaprófessor hefur verið falið að smíða frumvarp um bætur til þeirra sem urðu fyrir varanlegu tjóni vegna vistunar á Breiðavík eða öðrum heimilum eða stofnunum á vegum ríkisins. VÍKKAÐU DEILDAR- HRINGINN! Tökum við umsóknum núna Kynntu þér námið á www.hr.is Nemendur Háskólans í Reykjavík geta farið í skiptinám til u.þ.b. 300 háskóla um allan heim. HVÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 6 0 8 NOREGUR Íbúarnir í nágrenni fjölbýlishússins sem hrundi nýlega í Álasundi hafa fengið að fara heim til sín aftur. Sumir hafa þó lýst því yfir að þeir þori ekki að vera heima, að sögn norska dagblaðsins Aftenposten, þar sem þeir telja ekki útséð um að meira hrynji úr klettabeltinu fyrir ofan húsin. Ástandið er stöðugt á hamfara- svæðinu og telja jarðfræðingar að lítil hætta sé á frekara hruni. Ekki hefur tekist að tæma gastankinn í kjallara fjölbýlis- hússins og er enn hætta á gassprengingu. Þar af leiðandi hefur ekki enn verið hægt að leita í rústunum að þeim sem saknað er. - ghs Álasund í Noregi: Enn ekki leitað í rústunum RÚSTIRNAR Gasleki í kjallaranum veldur því að enn hefur ekki reynst unnt að leita þeirra sem saknað er. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 8° 10° 6° 10° 8° 16° 14° 12° 9° 10° 21° 20° 12° 11° 26° 12° 29° 14° Á MORGUN 8-15 m/s á norðurhluta landsins annars 3-8 10 0 FÖSTUDAGUR 8-15 m/s austan til annars 5-10 m/s 2 3 1 0 3 3 5 3 2 1 7 5 6 5 8 18 8 8 6 8 2 2 3 4 4 -4 -4 -1 11 STORMUR Á STÓRHÖFÐA Síðdegis fer vindur almennt vaxandi á landinu og seint í dag eða í kvöld má búast við stormi á Stórhöfða og úti við suðurströndina. Samfara vindinum sækir úrkomuloft inn á landið, fyrst sunnan til og þá með rigningu. Hins vegar má búast við stöku éljum norð- austan til í dag. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur LÖGREGLUMÁL Lögreglan leitar til almennings eftir upplýsingum vegna þjófnaðar úr skartgripa- verslun. Aðfaranótt fimmtudagsins 27. mars brutust tveir menn inn í skartgripaverslun í miðborginni. Upptaka náðist af þjófunum. Rannsóknin hefur enn ekki leitt til handtöku þeirra. Lögreglan leitar því til almennings eftir upplýsing- um um annan þeirra, sem myndaður var á vettvangi. - jss Lögregla leitar eftir aðstoð: Upptaka náðist af þjófunum ÞJÓFURINN Lögregla biður fólk sem þekkir manninn á myndinni að veita upplýsingar í síma 444 1100. SAMGÖNGUR Ökumenn á þriðja hundrað bíla þeyttu flautur til að leggja áherslu á kröfur um lækk- un á álögum ríkis og olíufélaga á eldsneyti, þegar þeir óku að Alþingishúsinu seinnipartinn í gær. „Við viljum að álögurnar á bíl- eigendur verði lækkaðar,“ segir Halldór Sveinsson, félagi í Ferða- klúbbnum 4x4, einn þeirra sem stóðu að mótmælunum. Mótmælendur afhentu Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis, jeppadekk með ámáluðu slagorði og bréf þar sem skorað er á stjórn- völd að bregðast við. Halldór sagði mótmælin hafa gengið vonum framar. „Þetta eru fleiri hundruð bílar, örugglega nokkur þúsund manns.“ Halldór segir að nú verði beðið eftir svari stjórnvalda við áskorun mótmælenda. „Aðgerðir munu halda áfram í einhverri mynd þar til eitthvað verður gert, það eru allir komnir með gersamlega nóg.“ Fjölmennt lið lögreglu fylgdist með mótmælunum. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að lögregla hafi verið látin vita og hafi getað skipulagt sig miðað við það. Mótmælin fóru friðsamlega fram, en unglingur kastaði eggi í Alþingishúsið og hljóp lögreglan hann uppi. Sendibílstjórar lokuðu gatna- mótum Miklubrautar og Kringlu- mýrarbrautar í skamma stund í gær og hægðu á umferð um stund í Ártúnsbrekkunni. - bj Ökumenn mótmæltu álögum ríkis og olíufélaga á eldsneyti með hópakstri að Alþingi við Austurvöll í gær: Haldið áfram þar til eitthvað verður gert MÓTMÆLT Talsverður fjöldi var saman kominn á Austurvelli í gær til að mótmæla, en lögregla takmarkaði fjölda bíla á svæðinu við rúmlega tug. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ALÞINGI Þeir sem urðu fyrir varan- legu tjóni vegna vistunar á heimil- um eða stofnunum á vegum ríkis- ins, eða vanrækslu af hálfu ríkisins eða starfsmanna þess, fá bætur frá ríkinu. Viðari Má Matthíassyni lagaprófessor hefur verið að falið að smíða frumvarp þar um. Geir H. Haarde forsætisráð- herra segir að reynt verði að hafa þær bætur sanngjarnar þó erfitt og vandmeðfarið sé að ákvarða fjárhæðir. Hann segir að þær verði að taka mið af því sem gerist í skaðabótamálum. Menn geti þó ekki gert sér vonir um háar fjár- hæðir. „Þetta er miklu heldur opin- ber viðurkenning á ástandinu,“ sagði Geir í samtali við Frétta- blaðið. Rætt var um skýrslu nefndar um Breiðavíkurheimilið á Alþingi á mánudag. Í umræðunum upp- lýsti Geir um þríþætt viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Í fyrsta lagi að þolendur fái bætur, í öðru lagi að Breiðavíkurnefndinni verði falið að hefja könnun á öðrum vistheim- ilum og -stofnunum og í þriðja lagi að tryggt verði að ekkert líkt því sem átti sér stað á Breiðavíkur- heimilinu gerist aftur. Geir segir að með sérstakri lagasetningu eigi að auðvelda greiðslu bótanna og að ekki þurfi tímafrekar og kostnaðarsamar athuganir á hvort bótaskilyrði séu uppfyllt. Slíkt sé óþarft og ekki á neinn leggjandi. Vonast hann til að frumvarpið verði tilbúið fyrri- hluta maímánaðar og býst við að það fái hraða afgreiðslu í þinginu. Í þingumræðunum á mánudag var meðal annars kallað eftir afsökunarbeiðni af hálfu stjórn- valda til handa þolendum í Breiða- vík. Geir segir að slíkt verði að skoðast þegar málinu öllu sé lokið. „En það má segja að þessi rann- sókn og það sem á að gera sýni að núverandi valdhafar og sú kyn- slóð sem nú stjórnar vilji gera eins gott úr þessu og hægt er þó að menn beri ekki persónulega ábyrgð.“ Stefnt er að því að könnun nefndarinnar á öðrum heimilum verði lokið á þremur árum en að áfangaskýrslum verði skilað árlega. Hafa núverandi nefndar- menn lýst sig reiðubúna til að halda starfinu áfram. bjorn@frettabladid.is Breiðavíkurdrengirnir fái sanngjarnar bætur Ríkisstjórnin ætlar að tryggja þeim sem urðu fyrir varanlegu tjóni vegna vist- unar í Breiðavík sanngjarnar bætur. Sama á við um önnur vistheimili. Breiða- víkurnefndin á að skoða málefni annarra vistheimila og -stofnana ríkisins. NEYTENDUR Stjórnvöld hafa gengið til samstarfs við ASÍ, Neytenda- samtökin og Neytendastofu til að leita leiða til að vinna gegn verðhækkunum. Samstarfið var rætt á fundi í gær. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði að ákveðið hafi verið að gera átak í verðkönnunum til að fylgjast með þróun á verði á neysluvöru, að því er fram kemur á visir.is. Þar er haft eftir Grétari Þorsteinssyni, formanni ASÍ, að boðaðar verðhækkanir á matvöru upp á 20 til 30 prósent séu óásættanlegar. - bj Vinna gegn verðhækkunum: Átak í verð- könnunum ESB-sáttmáli staðfestur Pólska þingið samþykkti í gær lög sem heimila forseta lýðveldisins að fullgilda hinn uppfærða stofnsáttmála Evrópusambandsins, sem kenndur er við Lissabon. Með atkvæðagreiðsl- unni var endir bundinn á margra vikna togstreitu milli stjórnar og þjóðernissinna í stjórnarandstöðu um skilyrði fyrir staðfestingunni. PÓLLAND GENGIÐ 1.4.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 155,2227 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 76,97 77,33 152,38 153,12 120,34 121,02 16,137 16,231 14,913 15,001 12,825 12,901 0,7651 0,7695 125,78 126,52 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.