Fréttablaðið - 02.04.2008, Síða 6
6 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
DANMÖRK Í þaulskipulögðu ráni
höfðu í fyrrinótt grímuklæddir og
þungvopnaðir ræningjar á brott
með sér andvirði um 480 milljóna
króna úr peningaflutningafyrirtæki
í Glostrup á Sjálandi.
Ræningjarnir brutust inn í fyrir-
tækið með því að aka vörubíl í gegn-
um vegg. Þeir voru vopnaðir vél-
byssum, mæltu ekki orð af vörum
og höfðu hröð handtök við að koma
peningakössum í flóttabíla sína.
Þeir torvelduðu lögreglu eftirför
með því að strá nöglum á götuna og
skilja eftir kassa með einhverju
sem leit út fyrir að vera sprengja.
Við rannsókn kom í ljós að í kassan-
um var sprengiefni en það var gert
óskaðlegt af sprengjusérfræðing-
um hersins.
Miðstöð peningaflutningafyrir-
tækisins Loomis er rétt hjá lestar-
stöðinni í Glostrup og hin meinta
sprengjuhætta olli því að loka þurfti
stöðinni um hríð af öryggisástæð-
um. Þetta stöðvaði morgunumferð
grenndarlestanna í Kaupmanna-
höfn.
Að því er lögregla greindi frá
varð ræningjunum það reyndar á að
missa nokkra peningakassa í götuna
út um opinn afturhlera á einhverj-
um flóttabílanna þriggja.
Að sögn vitna voru bílar ræn-
ingjanna stórir, dökkir fólksbílar
með sænsk eða þýsk skráningar-
númer. Talsmaður dönsku lögregl-
unnar segir að fleiri vísbendingar
séu um að ræningjarnir tengist Sví-
þjóð en nokkur nýleg rán þar í landi
hafa verið framin með mjög svipuð-
um aðferðum.
Fljótlega eftir ránið voru tveir
menn í bíl sem ók hratt eftir hrað-
brautinni suður af Glostrup hand-
teknir. Þeir reyndust hins vegar
ekki tengjast ráninu.
„Við höfum enga grunaða, engir
hafa verið handteknir. En við höfum
margar vísbendingar sem við erum
að safna saman,“ hefur fréttavefur
Politiken eftir Bent Isager-Nielsen
hjá Kaupmannahafnarlögreglunni.
Engan sakaði í ráninu.
Síðdegis fundust tveir flóttabíl-
anna, annar á hvolfi við á nærri
Hvidovre, hinn við höfnina í Ishöj. Í
honum fundust leifar af sprengi-
efni, að sögn Avisen.dk.
audunn@frettabladid.is
KJARAMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu og líkams-
ræktarstöðvar World Class hafa
gert með sér samning um að allir
starfsmenn lögreglu embættisins
fái frítt í líkamsrækt.
Lögreglumenn geta því haldið
sér í formi án endurgjalds. Sá
böggull fylgir þó skammrifi að
ef starfsmaður mætir ekki
minnst einu sinni í viku missir
hann fríðindin. Þá þarf hann að
greiða sjálfur fyrir líkamsrækt-
ina.
Samningurinn er tilraunaverk-
efni, en lögregluembættið
hvetur starfsmenn til að hugsa
um heilsuna og eigin vellíðan. - sgj
Ókeypis líkamsræktarkort:
Lögreglumenn
fá frítt í ræktina
HEFST Á FÖSTUDAG
KL. 21.00 Á SKJÁEINUM
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja
sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstarétt-
ar á hendur tveimur mönnum, Algis Rucinskas og
Sarunas Urniezius, vegna brota gegn valdstjórninni.
Mennirnir voru sakaðir um að hafa ráðist á lögreglu-
menn fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu aðfaranótt föstudagsins 11. janúar.
Með ákæru útgefinni 5. febrúar 2008 höfðaði
ríkissaksóknari mál á hendur þremur mönnum fyrir
brot gegn valdstjórninni með því að ráðast á
lögreglumennina þar sem þeir voru við skyldustörf í
miðborginni. Lögreglumennirnir slösuðust, einn þó
sýnu mest. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði alla
mennina af broti gegn valdstjórninni en sakfelldi
einn þeirra, Algis Rucinskas, fyrir líkamsárás. Hann
var dæmdur í 60 daga fangelsi.
Ríkissaksóknari mun una sýknudómi yfir þriðja
manninum sem ákærður var í málinu.
„Eftir að hafa farið yfir dóm héraðsdóms og
upptökur af framburði vitna fyrir dómi telur
ríkissaksóknari að við meðferð málsins fyrir
héraðsdómi hafi verið færðar sönnur á það að
ákærðu, Algis og Sarunas, hafi í umrætt sinn gerst
sekir um þá háttsemi sem þeir voru ákærðir fyrir,“
segir í niðurstöðu ríkissaksóknara.
Ákvörðun ríkissaksóknara um dóm manna sem réðust á lögreglumenn:
Dómi yfir tveimur árásarmönn-
um áfrýjað til Hæstaréttar
Bíræfið rán á Sjálandi
Grímuklæddir ræningjar komust á brott með andvirði hátt í 500 milljónir króna úr
dönsku peningaflutningafyrirtæki í fyrrinótt. Vísbendingar eru um sænsk tengsl.
FRÁ VETTVANGI Lögregla með sporhunda á vettvangi ránsins í Glostrup í gær. LJÓSMYND/NYHEDSAVISEN
ALÞINGI Þingmenn allra flokka ítrekuðu mikilvægi
Sundabrautar í umræðum á Alþingi í gær.
Birkir Jón Jónsson Framsóknarflokki sagði mikil-
vægt að ráðast sem fyrst í lagningu Sundabrautar og
taldi að víðtæk samstaða væri að nást um svokallaða
ytri leið, það er, jarðgöng.
Átaldi hann seinagang málsins enda hefði Sunda-
braut verið á skipulagi Reykjavíkurborgar um
ára raðir og mikilvægi hennar ótvírætt fyrir íbúa höf-
uðborgarsvæðisins jafnt sem landsbyggðarinnar.
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði undir-
búningi Sundabrautar miða vel; mat á umhverfis-
áhrifum jarðgangaleiðar væri að hefjast. Benti hann
á að það yrði í fjórða eða fimmta sinn sem umhverf-
ismat væri gert en jafnoft hafi hugmyndir um nýja
legu brautarinnar komið upp.
Kristján kvaðst vonast til að hægt yrði að bjóða
framkvæmdir út á næsta ári en eftir væri að ákvarða
fjárframlög til hennar. Þegar væri samþykkt að verja
átta milljörðum af Símapeningunum til verksins en
kostnaðaráætlun hljóðar upp á 35 milljarða. Mis-
munurinn er 27 milljarðar. - bþs
Samgönguráðherra segir títt mat á umhverfisáhrifum hafa tafið Sundabraut:
Þarf að finna 27 milljarða
BIRKIR JÓN JÓNSSON KRISTJÁN MÖLLER
MONTE CARLO
Í nágrenni stað-
arðins var ráðist á
lögreglumennina.
Ertu hlynnt(ur) byggingu sam-
göngumiðstöðvar í Vatnsmýri?
Já 75%
Nei 25%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hljópstu 1. apríl?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN