Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 8
8 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR Ármúla 23 108 Reykjavík Sími: 510 0000 Brekkustíg 39 Njar›vík Sími: 420 0000 Mi›ási 7 Egilsstö›um Sími: 470 0000 Grundargötu 61 Grundarfir›i Sími: 430 0000 www.besta.is EXPRESS MOPPUSKAFT fiú flarft enga fötu, fyllir bara handfangi› me› vatni og hreinsiefni! Ótrúlega einfalt! ULTRAMAX MOPPUSETT Blaut- og flurrmoppur fyrir allar ger›ir gólfa. Fatan vindur fyrir flig. Hrein snilld! ATTRACTIVE RYKKÚSTUR Afflurrkunarkústur sem afrafmagnar. Langir flræ›ir sem ná í afskekktustu afkima og skilja ekkert eftir! Ótrúlega sni›ugt! fiRIFIN LEIKUR VER‹A * EINN! Safnaðu Vildarpunktum Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir *Nánari upplýsingar um fargjaldaflokka Icelandair á netinu. Afslátturinn reiknast af fargjaldi án flugvallarskatta. Til og með 4. apríl bjóðum við 50% barnaafslátt af Economy og Best Price fargjöldum* fyrir börn, 11 ára og yngri, til allra áfangastaða okkar erlendis. Ferðatímabil er til og með 31. desember. + Bókaðu ferð á www.icelandair.is 50% AFSLÁTTUR FYRIR BÖRN HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ Auglýsingasími – Mest lesið UMFERÐARMÁL Ökumaður sem lést í umferðarslysi á Laugarvatnsvegi í ágúst í fyrra er talinn hafa ekið ölv- aður á 180 til 200 kílómetra hraða á klukkustund þegar slysið varð. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa (RNU). Var ökumaðurinn, ungur karl- maður, að reyna að stinga af frá lög- reglu sem hafði hætt eftirför vegna mikils hraða. Að mati RNU má rekja orsakir slyssins til ölvunar- og ofsa- aksturs en bifreið mannsins var afar öflugur þýskur fólksbíll. Voru kraftar þeir sem verkuðu á bílinn slíkir að toppur hans rifnaði af og kastaðist upp í háspennulínu sem liggur skammt frá veg- inum. Þá rifnuðu hurðir af bíln- um. Segir í skýrsl- unni að um 70 metra löng skriðför hafi verið á veginum þar sem bíllinn fór út af og að utan vegar, þar sem bifreiðin hafi farið í loftköstum og veltum meðfram veginum, hafi för eftir hana verið á alls 215 metrum. Þá hafi ökumaðurinn, sem ekki var í bílbelti, kastast út úr bílnum, að minnsta kosti 80 metra og hafnað 23 metrum frá staðnum þar sem bíll- inn staðnæmdist. „Þetta er því miður ekki eins- dæmi,“ segir Ágúst Mogensen, for- stöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa. „Ég man reyndar ekki eftir bíl á 200 kílómetra hraða áður en þetta eru svipaðar aðstæð- ur.“ Ágúst segist vilja opna umræðu um þessi mál. Ölvaðir ökumenn, stundum í andlegu ójafnvægi eftir rifrildi eða deilur, séu hættulegir öðrum ökumönnum og það sé ekki þeirra einkamál. Oft tilkynni aðstandendur um ökumenn þegar svona er. „Þetta tengist oft skemmt- anahaldi, sumarbústaðaferðum og stóru ferðahelgunum.“ Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu hvetur einnig til opinskárrar og vandaðrar umræðu. „Umræðan getur orðið til þess að koma í veg fyrir að aðrir taki upp á svona áhættuhegðun.“ Umferðarstofa hefur á undan- förnum árum haft í frammi margs konar áróður um alvarleika þess að aka undir áhrifum vímuefna. Segir Einar að því miður nái slíkur áróður ekki til ákveðins hóps. „Sá hópur er lítill en í stórkostlega mikilli hættu.“ Segir hann fulltrúa þessa hóps vera stórt hlutfall þeirra sem slasast, láta lífið eða valda öðrum slysum. „Án þess að ég sé að tjá mig um þetta til- tekna dæmi þá sjáum við því miður oft og tíðum alveg hörmuleg slys sem túlka má sem tilræði við sam- borgara okkar.“ olav@frettabladid.is Kastaðist áttatíu metra eftir að hann ók út af Ökumaður sem lést í umferðarslysi í fyrra er talinn hafa verið á allt að 200 kílómetra hraða. Í skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa kemur fram að ökumaðurinn kastaðist tugi metra eftir útafakstur. Hvatt til opinnar umræðu. ÁGÚST MOGENSEN Umræðan getur orðið til þess að koma í veg fyrir að aðrir taki upp á svona áhættu- hegðun. EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON VERKEFNASTJÓRI HJÁ UMFERÐARSTOFU SKILTI Á SANDSKEIÐI Fjórir hafa látið lífið í umferðarslysum það sem af er árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FASTEIGNIR Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að fresta útboði íbúða- bréfa á fyrsta ársfjórðungi og mun hluti áætlaðrar útgáfu íbúða- bréfa verða færður til annars árs- fjórðungs 2008. Samkvæmt áætl- unum sjóðsins átti að gefa út íbúðalánabréf fyrir allt að þrettán milljarða króna á fyrsta ársfjórð- ungi. Þess gerist ekki þörf þar sem nægt fé er í sjóðnum til að mæta eftirspurn til skamms tíma. Guðmundur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir ástæðu þess að útboðinu var frestað einfaldlega að útlán sjóðs- ins hafa verið minni á fyrsta árs- fjórðungi en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Fjárhagsstaða sjóðsins var sterk um áramót og það hefur ekkert kallað á að við þyrftum að sækja okkur fjármuni.“ Guðmundur játar því að frest- un útboðsins sé nokkuð lýsandi fyrir stöðu fasteignamarkaðar- ins. „Já, hún er það kannski en þetta hefur verið nokkuð líflegt hjá okkur. Ég býst við að þeir sem eru að gera eitthvað séu hérna hjá okkur því lítið er að hafa hjá bönkunum. Það litla lánsfé sem er sótt til fasteignakaupa er sótt til okkar.“ Eins og kom fram í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær hefur velta á fasteignamarkaði verið 25 millj- örðum minni á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. - shá Íbúðalánasjóður ákveður að fresta útboði íbúðabréfa til annars ársfjórðungs: Sjóðurinn á nægt fé til útlána FRÁ EGILSTÖÐUM Íbúðalánasjóður þarf ekki að sækja sér rekstarfé með útgáfu íbúðabréfa. Nægt fé er til skiptanna vegna minni útlána. UMHVERFISMÁL Rafbílaeigendur geta hlaðið bíla sína endurgjaldslaust á orkupóstum sem Orkuveita Reykjavíkur hefur sett upp í samstarfi við Reykjavíkurborg, Kringluna og Smáralind. Er markmið framtaksins að hvetja íslenska bílaeig- endur og bílaumboð til að kynna sér kosti raf- magnsbíla í borgarumferðinni. Orkupóstarnir eru fimm talsins en hægt er að hlaða tíu bíla á hverjum þeirra. Eru þeir staðsettir á bílastæðum Smáralindar, Kringlunnar og í Bankastræti. Þá má leggja vistvænum bílum ókeypis í allt að 90 mínútur í hvert sinn í miðbæ Reykjavíkur. Í sameiginlegri tilkynningu Orkuveitunnar og Reykjavíkurborgar segir að spara megi um 190 þúsund krónur með því að reka rafmagnsbíl eins og þann sem Orkuveitan á í stað algengs fjöl- skyldubíls. Er þá ótalinn minni útblástur gróður- húsalofttegunda. Í tilkynningunni segir einnig að orkupósturinn sé ósköp venjuleg rafmagnsinnstunga í kassa, þannig að þá sé að finna í hundruðum þúsunda um alla borg og allt land. Bæði Reykjavíkurborg og Orkuveitan stefna að aukinni notkun á umhverfisvænum orkugjöfum fyrir bifreiðar sínar. Er meðal annars stefnt að því að árið 2013 verði meira en helmingur bíla Orkuveitunnar knúinn slíkum orkugjöfum. - ovd Eigendur rafbíla geta hlaðið bíla án endurgjalds á þremur stöðum í Reykjavík: Orkupóstar teknir í notkun Á REVA RAFMAGNSBÍL ORKUVEITUNNAR Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitunnar og Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs tóku fyrsta orkupóst- inn formlega í notkun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.