Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 10
10 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR Hringdu í síma ef blaðið berst ekki STJÓRNMÁL Stækkun Atlantshafs- bandalagsins (Nató) er eitt helsta viðfangsefni þriggja daga leið- togafundar þess sem hefst í Búkarest í Rúmeníu í dag. Líklegt er að aðild þriggja ríkja á Balkanskaga, Albaníu, Króatíu og Makedóníu, sem fylgt hafa sér- stakri aðildaráætlun Nató síðustu misseri, verði samþykkt á fundin- um. Aðild þeirra nýtur almenns stuðnings Nató-ríkja ef frá eru skildar hótanir Grikkja um að leggjast gegn aðild Makedóníu. Ríkin tvö hafa deilt síðan Make- dónía varð sjálfstætt ríki og tók upp nafn sitt en samnefnt hérað er í Grikklandi. Sovétlýðveldin fyrrverandi, Georgía og Úkraína, hafa óskað eftir að hefja aðildarferli. Nokkur aðildarríki, með Þýskaland í farar- broddi, eru því andvíg en mest er þó andstaðan í Rússlandi. Þarlend stjórnvöld líta á Nató-aðild nágrannaríkjanna tveggja sem ögrun við sig. Bandaríkjamenn eru helstu stuðningsmenn þess að Georgía og Úkraína hefji aðildar- ferli en talið er að það gæti staðið í allt að áratug. George Bush Banda- ríkjaforseti ítrekaði stuðninginn á fundi með Jústsjenkó Úkraínufor- seta í heimsókn í Úkraínu í gær. Málefni Afganistans verða einn- ig í deiglunni og þau rædd sérstak- lega á morgun. Leiðtogar Nató- ríkja, og annarra ríkja sem sinna margháttuðu öryggis- og uppbygg- ingarstarfi í Afganistan, ráða þar ráðum sínum ásamt Hamid Karzai, forseta Afganistan, og Ban Ki- Moon, framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna. Búkarestfundurinn verður fjöl- sóttasti leiðtogafundur Atlants- hafsbandalagsins til þessa. Hann sitja leiðtogar auk utanríkis- og varnarmálaráðherra Nató-ríkj- anna 26, auk fulltrúa fjölmargra samstarfsríkja. Alls verða um 60 þjóðarleiðtogar í Búkarest. Vladímír Pútín Rússlandsforseti mun að líkindum sækja fund Nató- Rússlandsráðsins á föstudag og verður það í fyrsta sinn sem hann sækir Nató-fund. Um leið verður þetta síðasti Nató-fundur Bush Bandaríkjaforseta. Tvímenning- arnir munu svo verja saman helg- inni í Sochi við Svartahaf. Geir H. Haarde forsætisráð- herra og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra sitja fund- inn fyrir hönd Íslands. bjorn@frettabladid.is Umdeild stækkun til umræðu í Búkarest Aðild þriggja ríkja á Balkanskaga og tveggja fyrrverandi Sovétríkja verður efst á baugi á leiðtogafundi Nató sem hefst í Búkarest í dag. Rússar leggjast gegn aðild Georgíu og Úkraínu. Forsætis- og utanríkisráðherrar Íslands sitja fundinn. STUÐNINGURINN ÍTREKAÐUR Bush Bandaríkjaforseti ræddi við Jústsjenkó Úkraínu- forseta í gær og ítrekaði stuðning sinn við aðild Úkraínu að stækkunarferli Atlants- hafsbandalagsins, í trássi við vilja Rússa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP JÁKVÆÐUR Í GARÐ GEORGÍU OG ÚKRAÍNU Geir H. Haarde forsætisráðherra segir Ísland ekki hafa mótað sér- staka afstöðu til aðildar Georgíu og Úkraínu að Atlantshafsbandalaginu. „En það er mín skoðun að ef ríkin vilja aðild og uppfylla þau skilyrði og skuldbindingar sem bandalagið setur þá sé ekki óeðlilegt að þau fái aðild. En um leið þurfum við að gæta jafnvægis á svæðinu.“ Hann býst við að aðild Balkanríkjanna þriggja verði samþykkt, að því gefnu að Grikkir og Makedóníumenn jafni ágreining sinn. Þá verði mikið rætt um aðgerð- ir Nató í Afganistan. Geir hyggst ræða sérstaklega um lofthelgiseftirlit við Ísland. „Á sambærilegum fundi fyrir einu og hálfu ári fór ég fram á að bandalagið léti okkur í té lofthelg- is eftirlit og við því var orðið. Það fer í gang í vor með komu Frakka og Bandaríkjamenn koma síðar í sumar. Ég ætla að þakka þeim ríkjum sem hafa ákveðið að vera með í þessu.“ Geir segir það ennfremur munu setja sitt mark á fundinn að hann verður sá síðasti sem George Bush Banda- ríkjaforseti sitji. GEIR H. HAARDE Kaupauki fylgir vöru frá Oroblu Kynningar á n‡ju vorvörunum frá Oroblu í Lyfju Mi›vikudag, kl. 13-17 á Smáratorgi Fimmtudag, kl. 13-17 í Lágmúla

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.