Fréttablaðið - 02.04.2008, Side 17

Fréttablaðið - 02.04.2008, Side 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Anna Jóna Dungal, fyrsta árs nemi í MR, fór í spennandi ferðalag með bræðrum sínum til Buenos Aires í Argentínu „Ég fór til Buenos Aires um síðustu jól til að heimsækja pabba minn. Hann hefur búið þar í tæpt eitt og hálft ár og vildi endilega að við systkinin fengjum að kynnast þessu landi og menningu þess. Við bróðir minn flugum saman til New York, stoppuðum þar yfir nótt, flugum svo til Miami og hittum elsta bróður okkar og pabba í Buenos Aires.“ Anna Jóna segir að það sem hafi komið henni mest á óvart við borgina sé hversu evrópsk hún er. „Maður hefur alltaf einhverja staðlaða ímynd um að í Suður- Ameríku séu bara glæponar og fátækt og þrátt fyrir að það sé eflaust líka til staðar þá varð ég lítið vör við það. Borgin er afar græn og þar liggja endalaus- ar flottar götur með fallegum byggingum. Það kom mér líka á óvart hversu mikið af æðislegum fötum eru eftir argentínska hönnuði.“ Að sögn Önnu Jónu voru tveir dagar eftirminni- legastir í ferðinni. „Annars vegar var það dagur þegar við fengum unga stelpu til þess að keyra okkur um alla borgina og veita okkur leiðsögn. Við þræddum borgina endilanga og fræddumst um sögu hennar og arkitektúr. Síðara skiptið var þegar við fórum saman fjölskyldan í jólamáltíð á Palacio Duhau - Park Hyatt Buenos Aires hótelið. Það er í gamalli höll sem er búið að gera upp og við fengum þar stærsta og ljúffengasta hádegisverð sem ég hef nokkurn tíma snætt.“ Anna Jóna mælir með því að ferðalangar kynni sér Palermo-hverfið, sem er fullt af smart búðum og veitingastöðum. „Mikið er af skemmtistöðum og klúbbum í Buenos Aires og þá mæli ég sérstaklega með El Living. Á hverjum laugardegi er 80‘-þema þar og þá er myndböndum varpað á veggina sem skapar skemmtilega stemningu. Svo er líka upplagt að fara á einhvern af hinum geggjuðu tangóstöðum í borginni, eða jafnvel prófa að fara í tangótíma sem ég gerði einmitt!“ Anna Jóna segist mæla eindregið með því að fólk kynni sér Argentínu sem sé afar spennandi áfanga- staður. „Buenos Aires er æðisleg borg, bæði sögulega og menningarlega séð, og það er mjög gaman að versla þar. Argentína heillar mig mikið og næst þegar ég fer þangað langar mig að ferðast meira um landið og skoða til dæmis Iguazú-fossana og saltháslétturnar hjá Salta.“ amb@frettabladid.is Anna Jóna fór meðal annars í skoðunar- ferðir, á tangónám- skeið og í tískubúðir í Buenos Aires. FR ÉT TA B LA Ð IÐ ‘/ A N TO N Borgarferð til Buenos Aires FYRSTA ÁSTIN Í Hljóðfæraverslun Pálmars má fá lítil rafmagnspíanó í ýmsum litum sem henta byrjendum vel. Kókakóla-rauði liturinn hefur verið vinsælastur að sögn Pálmars. BÖRN 4 GULIR OG GLAÐLEGIR Útfararstjórar eru líklegastir til að kaupa sér gula bíla sam- kvæmt breskri könnun á því hvaða litir á bílum höfða mest til hinna ýmsu starfstétta. BÍLAR 2 WWW.N1.ISN1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA SSR. Fáanlegt í 35”-38”, 15”-18” felgur. JEPPI ÓSKAST IROK. Fáanlegt í 33”-49”, 15”-18” felgur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.