Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 20
[ ]Leikfangavagn er skemmtilegt að fara með út þegar fer að vora; stuttar ferðir með bangsann sem farþega eða að keyra nesti í vagninum í ævin-týraferð um hverfið.
Þegar börnin byrja í tónlistarnámi þarf að
vanda valið á fyrsta hljóðfærinu.
„Fyrstu skrefin“ og „Fyrsta ástin“ heita lítil
rafmagnspíanó hjá Hljóðfæraverslun Pálmars sem
henta byrjendum vel.
„Það sem gerir þau sérstök er að í þeim er
hamraverk sem er óvanalegt í rafmagnspíanóum
og þau líkjast því venjulegum píanóum í áslætti,“
segir Pálmar Árni Sigurbergsson hljóðfærasmiður
og eigandi Hljóðfæraverslunar Pálmars. Hann
segir litlu rafmagnspíanóin því henta vel krökkum
sem eru að læra á píanó og einnig sem fyrsta
hljóðfæri því verðið sé gott. En oft er líka misjafnt
hversu lengi krakkar endast í
tónlistarnáminu.
„Þau eru líka ágæt
sem annað hljóðfæri
þar sem píanó er
fyrir því oft er
truflun af þeim
sem þarf að æfa
sig mikið. Það er
auðveldlega
hægt að stinga
píanóinu inn í herbergi og æfa sig þar
því þau eru bæði lítil og létt.“
Píanóin er auðvelt að taka í sundur og
skella þeim í bílinn en Pálmar segir algengt
að fólk taki þau með í sumarbústaðinn.
Þau eru framleidd í Kína og fást í
nokkrum litum en rauði liturinn er
vinsælastur að sögn Pálmars. „Þetta er
kókakóla-rauður eins og þeir kalla hann.“
Pálmar er lærður píanósmiður og hefur sjálfur
spilað á hljóðfæri síðan hann man eftir sér og lærði
á píanó í mörg ár. Í gamla daga spilaði hann í
hljómsveit en lærði svo hljóðfærasmíðina eins og
afi hans og langafi.
„Ég spilaði lengi í öllum mögulegum hljómsveit-
um í gamla daga, aðallega til að vinna fyrir mér. Ég
hætti 1962 því afi minn sagði að annað hvort yrði
ég hljóðfærasmiður eða héldi áfram að spila í
hljómsveit og yrði heyrnarlaus,“ segir Pálmar, sem
hefur á næsta ári verið fimmtíu ár í faginu. heida@
frettabladid.is
Fallegt fyrsta hljóðfæri
Pálmar Árni er hljóðfæra-
smiður og lærði sjálfur á
píanó í mörg ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Burstavinir
PERLUHVÍTAR TENNUR SMÁ-
BARNA ER MIKILVÆGT AÐ HIRÐA
MEÐ TANNBURSTUN UM LEIÐ
OG FYRSTA TÖNNIN KEMUR UPP.
Nöldri barn og mótmæli í hvert
sinn sem bursta á tennur er gott
ráð að kaupa tannbursta
með eftirlætis teikni-
myndahetjunni, en
reynsla margra sýnir að
börn verða ginnkeypt
fyrir tannburstun með
slíkan félaga sér við hlið.
Einnig er sniðugt að eiga
tannbursta í mismunandi
litum og leyfa barninu að
velja sér lit eftir skaps-
munum hverju sinni.
Dálítið flúor í tannkremi
gerir tönnum barna gott, en
steinefnið kemur í veg fyrir
tannskemmdir með styrk-
ingu glerungs og mótstöðu
gagnvart sýru og skaðleg-
um bakteríum. - þlg
Í píanóunum er
hamraverk svo þau
líkjast venjulegum
píanóum í áslætti.
, U U T
] L Y S
(S SHY ] L [
m
Nýjar
sumarvörur
frá LEGO á
gamla verðinu
Gling-gló ehf
Laugavegur 39
101 Reykjavík
S. 552-7682
www.glingglo.is
glingglo@glingglo.is
Fæst í apótekum um land allt
Ofnæmisprófuð og mild lína sem er sérstkalega þróuð fyrir
viðkvæma húð ungbarna
Ungbarna andlitskrem – Verndar húðina gegn óæskilegum áhrifum umhverfis og útfjólubláum geislum. Sólarvörn SPF 18, vítamín A&E.
Bossakrem – Mýkir og verndar bleyjusvæðið gegn ertingu, útbrotum og þurrki. Býr til verndandi lag á húðina. A&B5 vítamín. Mjög gott á bruna.
Bossablautklútar – Handhægir klútar í ferðapakkningu. Húðlæknisfræðilega prófaðir. Úr 100% trefjum. Alkóhól- og litefnalausir. Ph gildi 5,5.
Ungbarna baðsápa – Sérlega mild og rakagefandi kremsápa “sápulaus”. Innih. A&E vítamín.
Ungbarna sjampó – Milt sjampó (tearless). Hefur góðan ilm og gerir hárið silkimjúkt.
Ungbarna húðmjólk – Mild og rakagefandi húðmjólk. Inniheldur E&B5 vítamín. Ph gildi 5,5.
Ungbarna olía – Mild olía sem mýkir og hefur róandi áhrif á húðina. Inniheldur A&E vítamín.
Sensitive
ungbarnalína
Laugavegi 53 • s. 552 3737
opið mánudag til föstudag 10-18
laugardag 10-16
Full búð af spennandi vor-vörum
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
Mó›ir og barn
N‡ fimm vikna námskei› hefjast 5. febrúar.
firi›judaga og fimmtudaga kl. 9:15-10:15 og 10:30-11:30.
Áhersla er lög› á líkamsstö›u, grindarbotn, kvi›vö›va,
almenna styrktarfljálfun, li›kandi æfingar og fræ›slu.
Bo›inn er frjáls a›gangur a› tækjasal Hreyfigreiningar me›an
á námskei›inu stendur.
Sandra Dögg Árnadóttir, sjúkrafljálfari B.Sc sér um námskei›i›.