Fréttablaðið - 02.04.2008, Síða 21
][ París er borg kaffihúsahangs og rómantíkur. Í París búa meira en tvær milljónir manna svo auðvelt er að hverfa í fjöldann og slappa af við harmóníkuspil og rauðvínsdrykkju.
Ingibjörg Guðjónsdóttir,
leiðsögumaður hjá Íslenskum
leiðsögumönnum, fór með hóp
af Íslendingum til Marokkó í
ferð sem fól meðal annars í sér
stuttar fjallgöngur.
Ferðin til Marokkó tók sex daga
og var farin um nýliðna páska.
Sautján manna hópur fór frá
Íslandi ásamt Ingibjörgu, sem var
að koma til Marokkó í fjórða sinn.
Frá því hún heimsótti Marokkó í
fyrsta skipti hefur landið og
menningin heillað hana.
Þátttakendur í þessari ferð voru
á öllum aldri, frá unglingsaldri og
til fólks sem komið var yfir sex-
tugt. „Við flugum til London og
þaðan til Marrakech í Marokkó.
Þar gistum við eina nótt á hóteli í
góðu yfirlæti. Morguninn eftir
vorum við keyrð upp í fjöllin og
sú keyrsla tók nánast heilan dag.
Á leiðinni stoppuðum við í einu
þorpi og fengum þar ekta innlend-
an mat ásamt því sem við keypt-
um birgðir fyrir komandi göng-
ur,“ segir Ingibjörg. Þegar komið
var á upphafsreit göngunnar biðu
þar múlasnar sem voru hlaðnir
farangri hópsins og með þeim var
gengið í tvo tíma þar til tjaldað
var og gist yfir nótt.
Hópurinn gekk í fjóra daga og
meðal annars á Siroua-tindinn,
sem er 3.305 metra hár. Útsýnið á
leiðinni á toppinn var stórkostlegt
og miklir og stórir klettar og
gljúfur hvarvetna. Hópurinn var
mjög ánægður með ferðina í alla
staði og margt að sjá sem hann
hafði aldrei séð áður. Með í för
var kokkur sem sá um að elda
ofan í alla og hann kynntist um
leið eldamennsku að hætti Mar-
okkóbúa.
„Ég fór með hópinn í gegnum
nokkur þorp og í einu af þessum
þorpum keyptum við saffran. Það
er eitt dýrasta krydd í heimi og
má segja að verðmunur í Marokkó
og á Íslandi hafi verið mikill. Þetta
nýtti hópurinn sér og var vel
keypt af saffrani en í leiðinni var
öllum boðið að koma inn í hús inn-
fæddra og það þótti fólki mikil
upplifun.“ mikael@frettabladid.is
Í Marokkó yfir páskana
Tindinum náð á Siroua-fjalli.
Falleg náttúra mætti hópnum í hverju
skrefi.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
Ógleymanleg ævintýri
Á FERÐ UM HEIMINN
www.fjallaleidsogumenn.is · sími: 587 9999
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
Á
gú
st
sd
ót
ti
r
SUÐUR GRÆNLAND
18. - 25. júlí
25. júlí - 1. ágúst örfá sæti laus
1. - 8. ágúst
MAROKKÓ
6. - 13. september
NEPAL
18. október - 10. nóvember
AUSTUR PÝRENEAFJÖLL
21. - 27. apríl
KILIMANJARO
7. - 22. júní
Mt. BLANC
21. - 29. júní
UMHVERFIS Mt. BLANC
1. - 9. júlí
Við stöndum upp úr
Atvinna í boði... ...alla daga
24,5%
At
vi
nn
a
–
M
or
gu
nb
la
ði
ð
39,3%
Al
lt
–
A
tv
in
na
sk
v.
k
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
1
. n
óv
. 2
00
7–
31
. j
an
. 2
00
8 Atvinnublað Fréttablaðsins er með 60%
meiri lestur en atvinnublað Morgunblaðsins
miðað við 20–40 ára