Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 30
folk@frettabladid.is
> EINKAKLÚBBUR PARISAR
Paris Hilton er að láta byggja einka-
klúbb í kjallaranum á nýja hús-
inu sínu í Hollywood Hills, sem hún
keypti nýlega á sex milljónir doll-
ara. Klúbburinn mun taka allt að tvö
hundruð gesti. Það er þó ekki allt
og sumt, því Paris ætlar líka að láta
gera upptökustúdíó í húsinu, þar
sem hún hyggst taka upp nýja
plötu.
Horfa má á öll myndböndin við Eurovision-
lögin 43 á Youtube. Gefinn hefur verið út
listi yfir vinsælustu myndböndin og sigraði
spænska framlagið með miklum yfirburð-
um, horft hefur verið á það 8.400.000
sinnum. Næstu lög koma langt á eftir:
tyrkneska rokklagið er næst (1.300.000), svo
írski kalkúninn (1.200.000), þá gríska gyðjan
Kalomira (1.100.000). Aðeins er sagt frá röð
tíu vinsælustu myndbandanna og er hið
íslenska ekki þar á meðal. Reyndar er
myndbandaframlag Íslands enn sem komið
er bara upptaka frá úrslitakvöldi Laugar-
dagslaganna, en á allra næstu dögum
stendur til að búa til alvöru myndband við
„This is my life“. Að sögn verður um frekar
„óhefðbundið“ myndband að ræða.
Spænski keppandinn Rodolfo Chikilicuat-
re – „spænski Eiríkur Fjalar“ – og lagið
„Baila El Chiki Chiki“ virðist vera á mikilli
siglingu þessa dagana eins og vinsældir
myndbandsins bera vitni um. Spánverjar
eru taldir til hinna „stóru landa“ og fara því
beint í úrslitaþáttinn, en þeir eyddu samt
miklu púðri í forkeppnina í ár með átakinu
„Björgum Eurovision“. Ef fram fer sem
horfir er aldrei að vita nema Spánverjar
vinni og yrði það þá í fyrsta skipti síðan
1969 þegar söngkonan Salomé sigraði með
laginu „Vivo cantando“.
Spænskur stórsigur á Youtube
51 DAGUR TIL STEFNU
SPÆNSKUR
EIRÍKUR
FJALAR
Mest horft
á Rodolfo
Chikilicuatre
á Youtube.
Atvinnutilboðunum heldur áfram
að rigna yfir Britney Spears, en
frammistaða hennar sem
gestaleikkona í þáttaröð-
inni How I Met Your
Mother hefur leitt til
þess að henni hefur
verið boðið hlutverk
í leikritinu Sporvagn-
inn Girnd á West End.
Þá íhuga forsvarsmenn
sjónvarpsstöðvarinnar
ABC að búa til nýjan
sjónvarpsþátt með hana
í aðalhlutverki. Nýj-
asta tilboðið barst
söngkonunni frá
dýraverndunar-
samtökunum
PETA. Spears
þótti svo stór-
kostleg í hlut-
verki mót-
tökudömunnar
í How I Met
Your Moth-
er, að fram-
kvæmda-
stjóri PETA,
Ingrid E. Newkirk,
hefur boðið henni
starf sem, einmitt,
móttökudama.
Í opnu bréfi til
söngkonunnar ítrek-
ar Newkirk að ekki
sé um aprílgabb að ræða, heldur
standi Spears starfið til boða.
Söngkonan átti ekki upp á pall-
borðið hjá samtökunum á
árum áður, þar sem hún
hefur oft klæðst loðfeldi
og keypt sér gæludýr í
dýrabúðum. „Þú gætir
jafnvel bara unnið í
klukkutíma og þá mynd-
irðu sjá – innan frá – af
hverju málefni eins og
loðfeldir og heimilis-
lausir hundar og kett-
ir eru okkur svo
hugleikin,“ skrif-
ar Newkirk. „Sem
þakklætisvott
fyrir sýndan vilja
þinn til að læra og
hjálpa til, mynd-
um við gefa eitt-
þúsund dollara til
góðgerðarmála
fyrir börn,“ skrifar
hún.
Tilboðunum rignir
yfir Britney Spears
Í MÓTTÖKU PETA?
Stjórn Peta hefur boðið
Britney Spears starf
sem móttökudama hjá
þeim eftir að hafa séð
söngkonuna í svipuðu
hlutverki í þættinum
How I Met Your Mother.
Þjóðleikhúsið
um helgina
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri.
Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Engisprettur e. Biljana Srbljanovic
sýn. fim 3/4, fös. 4/4 örfá sæti laus
Baðstofan e. Hugleik Dagsson
sýn. sun 6/4
Sólarferð e.Guðmund Steinsson
sýningar lau. 5/4 örfá sæti laus
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
sýn. sun 6/4
Skilaboðaskjóðan e. Þorvald Þorsteinsson
sýn. sun. 6/4 uppselt
Sá ljóti e. Marius von Mayenburg
forsýn. mið 2/4 og fim 3/4 uppselt, frumsýn. 5/4 uppselt