Fréttablaðið - 02.04.2008, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 2. apríl 2008 25
Tónlistarmaðurinn Mugi-
son fékk fjögurra milljóna
króna styrk hjá tónlistar-
sjóðnum Kraumi við hátíð-
lega athöfn í gær. Víkingur
Heiðar Ólafsson píanóleik-
ari fékk eina og hálfa millj-
ón og hljómsveitin Amiina
1,2 milljónir.
Hljómsveitirnar Celestine, FM
Belfast, Dikta og Skakkamanage,
ásamt Ólöfu Arnalds og Elfu Rún
Kristinsdóttur, fengu einnig hálfa
milljón hver í styrk.
„Við erum rosalega ánægð og
stolt með þessa listamenn og þau
góðu verk sem við erum að styðja
þá til á árinu,“ segir Eldar Ást-
þórsson, framkvæmdastjóri
Kraums. „Mugison er með mjög
spennandi og metnaðarfulla áætl-
un í gangi í kringum útgáfu á plöt-
unni sinni á erlendum vettvangi.
Þessi styrkur miðast helst við að
styðja við tónleikahald hans bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu því það
er mjög dýrt sport. Það snýst ekki
bara um ferðalögin heldur líka
laun til hljómsveitarinnar.“
Þriggja ára tilraun
Kraumur er nýr sjálfstætt starf-
andi sjóður sem settur var á lagg-
irnar af velgerðarsjóðnum Aur-
ora, sem er í eigu Ingibjargar
Kristjánsdóttur landslagsarki-
tekts, og Ólafs Ólafssonar, stjórn-
arformanns Samkaupa. Kraumur
er þriggja ára tilraunaverkefni og
samkvæmt núverandi áætlun
lýkur því í lok árs 2010. „Við
ætlum að sýna og sanna strax í ár
að það er mikil þörf fyrir svona
sjóð,“ segir Eldar. „Ég held að það
sýni sig líka á þeim fjölda umsókna
sem okkur barst. Ég finn það alls
staðar í kringum mig að það er
mjög lítill peningur í íslenskri tón-
list eins og kannski gefur auga
leið. Engu að síður er mikill metn-
aður í tónlistarfólki að koma sér á
framfæri bæði hér heima og
erlendis. Þess vegna er Kraumur
ekki endilega hugsaður sem útrás-
arsjóður heldur til að styðja við
innviðina hér heima þar sem
gróskan er mest.“
Tíu bestu plöturnar
Alls fær íslenskt tónlistarfólk tíu
milljónir króna úr sjóðnum í ár.
Tíu milljónir til viðbótar verða
lagðar í önnur verkefni á vegum
Kraums, þar á meðal Kraums-
verðlaunin sem verða veitt í
fyrsta sinn í lok ársins. Þá verða
valdar tíu bestu plötur ársins og
verða hundrað eintök af hverri
þeirra keypt af Kraumi og þau
send til útlanda í kynningarskyni.
„Þetta verður með öðru sniði en
Íslensku tónlistarverðlaunin.
Þetta verður mun óformlegra.
Okkur langar að búa til plötuverð-
laun með svipuðu sniði og
Mercury-verðlaunin í Bretlandi
og Shortlist Awards í Bandaríkj-
unum. Við viljum fyrst og fremst
verðlauna það sem er spennandi
og nýtt í tónlistinni,“ segir Eldar
og tekur fram að bæði í Bretlandi
og Bandaríkjunum séu stærri
verðlaun á borð við Brit Awards
og Grammy, sem mætti líkja við
Íslensku tónlistarverðlaunin hér
heima. freyr@frettabladid.is
Fjórar milljónir til Mugisons
ELDAR ÁSTÞÓRSSON Framkvæmdastjóri Kraums segir að mikil þörf sé fyrir þennan
nýja tónlistarsjóð. Úthlutað var í fyrsta skipti úr Kraumi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hljómsveitin Sign
hitar upp fyrir rokk-
sveitina Whitesnake í
Laugardalshöll 10. júní
næstkomandi. Var hún
valin úr stórum hópi
hljómsveita sem ósk-
uðu eftir þessu góða
tækifæri.
Ekki er langt síðan
Sign hitaði upp fyrir
aðra gamalkunna rokksveit, Skid
Row, á tónleikaferð
um Bretland með
góðum árangri. Nær
uppselt er í stúku á
tónleikana í Höllinni.
Um þrjú þúsund miðar
eru seldir en enn er
hægt að tryggja sér
miða í stæði. Whit-
esnake spilaði síðast
hér á landi á tvennum
tónleikum í Reiðhöllinni árið 1990.
Sign hitar upp
SIGN Rokksveitin Sign hitar
upp fyrir White snake 10.
júní næstkomandi.
Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1230 - luxusbilar@bilaland.is.
Komdu núna í Bílaland B&L og kynntu þér kostina
Opið virka daga frá kl. 10 til 18 og á laugardögum frá kl. 12 til 16.
L.R RANGE ROVER SPORT
Supercharged
Nýskr: 10/2005, 4200cc 400
Hestöfl, 5 dyra, Sjálfskiptur, Grár,
Ekinn 18.000
Verð: 9.200.000
BMW 325i Coupe
Nýskr: 06/2007, 2500cc, 2 dyra,
Sjálfskiptur, Svartur, Ekinn 3000.
Verð: 6.750.000
BMW X5 diesel
Nýskr: 09/2004, 2900cc
5 dyra, Sjálfskiptur, Dökkblár, Ekinn
70.000
Verð: 5.390.000
Glæsilegt úrval lúxusbíla
ALLIR INNFLUTTIR
OG ÞJÓNUSTAÐIR
AF UMBOÐI
L.R. RANGE ROVER
Supercharged
Nýskr: 01/2006, 4200cc, 400
hestöfl, 5 dyra, sjálfskiptur, svartur,
ekinn 27.000.
Verð: 13.300.000
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmda-og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Eldhústæki fyrir Höfðatorg
Úboðsgögn fást afhent á geisladiski í síma- og upplýsinga-
þjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 14. apríl 2008 kl 14:00, í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
12121
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod.