Fréttablaðið - 07.04.2008, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 7. apríl 2008
SPM flytur í Borgartún
Sparisjóður Mýrasýslu hefur flutt afgreiðslustað sinn í Reykjavík úr Síðumúlanum í nýtt og glæsilegt húsnæði í Borgartúni 26.
Líttu endilega við.
Sjö gistu fangageymslur
Talsvert var um drykkjulæti í miðbæ
Reykjavíkur í fyrrinótt og voru sjö
látnir gista fangageymslur lögregl-
unnar vegna ölvunar og óláta. Tveir
af þeim mega búast við sekt vegna
framferðis síns.
Fimm óku ölvaðir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók
fimm ökumenn aðfaranótt sunnu-
dagsins vegna gruns um ölvun við
akstur. Þá var einn tekinn vegna
gruns um akstur undir áhrifum
fíkniefna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SRÍ LANKA, AP Að minnsta kosti
fjórtán manns, þar á meðal einn
ráðherra úr ríkisstjórn Srí Lanka,
létust í sjálfsmorðsprengingu
nálægt höfuborginni Kólombó í
gær, að sögn yfirvalda.
Samgönguráðherrann Jeayaraj
Fernandopulle var staddur rétt
vestan við borgina þegar
sprengjuárásin var gerð.
Stjórnvöld á Srí Lanka kenna
skæruliðum Tamíltígra um
árásina.
Fernandopulle er annar
ráðherrann í ríkisstjórn Srí
Lanka sem er myrtur á þessu ári.
DM Dassanayajke innanríkisráð-
herra var myrtur fyrr á árinu.
Fjórtán drepnir á Srí Lanka:
Ráðherra lést í
sjálfsmorðsárás
RÚSSLAND Lokafundur þjóðarleið-
toganna Vladimírs Pútin, forseta
Rússlands, og George W. Bush,
forseta Bandaríkjanna, fór fram í
gær í rússneska bænum Sochi.
Aðeins mánuður er þangað til að
Pútin lætur af embætti. Sam-
kvæmt vef breska ríkisútvarps-
ins, BBC, ræddu forsetarnir
meðal annars varnarmál. Pútin
kvað Rússa enn mótfallna
eldflaugavarnakerfi Bandaríkja-
manna í Evrópu, en fundurinn
hafi þó haft einhverjar jákvæðar
afleiðingar. Bush sagði nauðsyn-
legt að sannfæra Rússa um að
varnarkerfið beindist ekki gegn
landi þeirra. - vþ
Lokafundur Bush og Pútins:
Enn efasemdir
um eldflauga-
varnarkerfið
GEORGE W. BUSH OG VLADIMÍR PÚTIN
Áttu sinn síðasta fund sem þjóðarleið-
togar í gær.