Tíminn - 27.11.1981, Qupperneq 5
Föstudagur 27. nóvember 1981
fréttir
Ómar Valdimarsson, fyrrverandi fréttastjóri
Dagblaðsins:
r r
„FRETTI ÞETTfl FRA
ÓSKYLDUM ADIUIM
■ „Þessar fréttir koma mér
mjög á óvart. Þegar ég fór frá Is-
landi var ég fréttastjóri Dag-
blaösins eins og ég reyndar hef
verið undanfarin ár, en svo frétti
ég þetta í morgun frá óskyldum
aóilum á Islandi að ég sé skyndi-
lega orðinn aðstoðarfréttastjóri
við nýtt blað sem ég hef aldrei
verið ráðinn að”, sagði Ómar
Valdimarsson fyrrum fréttastjóri
Dagblaðsins i viðtali i gærkveldi,
þegar Timinn náði sambandi við
hann til Bandarikjanna.
,,Ég hefði viljað vera hafður
með i ráðum, áður en ég breytti
um starf, og sattað segja þá á ég
eftir að táKa ákvörðun um það
hvort ég tekþessu nýjastarfisem
ég hef verið ráðinn i að mér for-
spurðum”, sagði ómar og bætti
þvi við að Jónas Haralz hefði
hringt Isigí gær og rætt þessi mál
við sig. Það kom blaðamanni afar
spánskt fyrir sjónir þvi Jónas
sagði i viðtali við blaðamann
Timans í gærkveldi að hann heföi
ekki hugmynd um hvar i Banda-
ríkjunum værihægtaðná iómar
og að hann hefði ekki hugmynd
um simanúmer hans, jafnframt
þvisem hann þvertók fyrirþað að
hafa haft samband við Ómar
i Kasr.
ómar sagöist hálft i hvoru
vænta þess að ritstjórinn Jónas
Kristjánsson hefði samband við
sig og skýrði þetta mál fyrir sér,
sem hann botnaði hvorki upp né
niður i.
—AB
Þegar Tlmamenn litu inn á ritstjórn Dagbiaðsins og Visis i eftirmiðdaginn I gær, rikti ekki beinlæmis
kátina á þeim vigstöðvum. Hér eru tveir fyrrum blaðamenn Visis, þau Axel Ammendrup og Anna
Kristin Magnúsdóttir og einn Dagblaðsmaður, Jóhannes Reykdai, sem nú eftir sameininguna hefur
titilinn tæknistjóri.
Jónas Kristjánsson, ritstjóri:
vM|ög ánægðir
með útlit blaðsins”
iN
\Kraft/
ifomato
^tcliup
UHUC
NEiWr.I40ZS.a97s)
KRAFT
frá einum þekktasta
matvœlaframleiðanda Bandaríkjanna
Gerið verðsamanburð
■ „Það var gerður samningur
um stofnun nýs hlutafélags og
leggur Vi'sir tilhelming hlutafjár-
ins og Dagblaðið hinn helming-
inn”, sagði Jónas Kristjánsson,
annar ritstjóri Dagblaðsins og
Visis, I viðtali við Timann i gær,
þegar hann var spurður út i sam-
einingu blaðanna.
— Nú hefur Dagblaðið státað
sig af þvi I gegnum árin að hafa
ekki þegið rikisstyrk. Hvað
verður með rikisstyrkinn nú eftir
sameininguna?
„Við höfum ekkifengiðnein boð
um rikisstyrk og ekki beðið um
hann”.
— Er ekki liklegt að Visir komi
til með að vilja halda þeim rikis-
styrk sem hann þegar hefur?
„Þetta ber mi bara svo snöggt
að, að ekki hefur gefist timi til
þessaðræða það sérstaklega. Ég
heldþóað kjarnimálsins sé sá að
einmitt aðgerð af þessu tagi geti
hindrað blöð i að þurfa aö taka
rikisstyrkinn”.
— Geta lesendur nýja blaðsins
áttvon á þviaðsjá i leiðurum Ell-
erts skrif um Sjálfstæðisflokkinn
sem fela i sér hrós og upp-
hafningu á störfum hans?
„Við erum þarna að tala um
hlut, sem hefur ekki komið fram
ennþá. Það er isamkomulagieig-
enda blaösins að það sé óháð og
frjálst, hvorki með né móti rikis-
stjórninni i sjálfu sér, en hins
vegar getur blaðiö i einstökum
leiðurum, bæði lofaðog gagnrýnt
einstaka hluti sem varða þessa
aðila þvi blaðið mun alltaf taka
afstöðu til þeirra mála sem það
fjallar um, en það verður ekki
kerfisbundin afstaða”.
— Nú hefur þú lengi haldið þvi
fram að frjáls samkeppni væri
forsenda þess að góð blaða-
mennska gæti þrifist. Ertu búinn
að skipta um skoðun i þvi efni?
„Það er fimm dagblöð i sam-
keppni i dag, og verða fimm
væntanlega lika á morgun”.
— En einokun verður samtsem
áður á siðdegismarkaðnum, eða
hvað?
„Það er gifurlega mikil sam-
keppni að fimm dagblöð skuli
keppa um markaðinn og ef við
tökum eftirmiðdagsmarkaðinn
núna og eins og hann var fyrir sjö
árum, þá er auðséð að það er ekki
til neinn afmarkaður siðdegis-
markaður. Hann getur verið
margfalt stærri og minni eftir
efnum og ástæðum og það sem
gildir er náttúrlega annars vegar
dagblaðamarkaðurinn og hins
vegar staða dagblaðanna i viðara
fj öl m iðla sam hen g i ”.
— Nú er útlit nýja blaðsins
mjög Dagblaðslegt og þegar haus
blaösins er skoðaður þá sést að
fimm af sjö stjórum blaösins
koma af Dagblaðinu. Var sam-
staða um þessi mál við samein-
inguna?
„Útlit blaðsins í dag er náttúr-
lega útlit fyrsta blaðsins og
ákveöið að halda áfram á sömu
braut. Samkomulag var um aö
hafa útlit blaðsins eins og það er
og menn voru mjög ánægðir með
útlitiðþegar það leit dagsins ljós.
Það má ekki einblina á litinn þvi
annan hvorn litinn varð að velja.
Það var samkomulag um alla
starfsskiptingu á nýja blaðinu og
hún er að verulegu leyti byggð á
starfsreynslu”.
— Hvað verður með skrif Svart-
höfða mun hann halda áfram aö
skrifa i blaðið?
„Við erum sammála um það
við Ellert að hafa i blaðinu allt
það sem einkenndi hvort blaðið
um sig áður og samkvæmt þvi er
augljóst að Svarthöfði verður
áfram i blaðinu”.
— Verður honum þá ekki uppá-
lagt að skrifa ekki um „Rauö-
vfnspressuna”?
„Við erum ekkert byrjaðir að
uppáleggja okkar starfsmönnum
eitt eða neitt. Dagblöð eru ekki
gefin út til þess að skemmta rit-
stjórum si'num, heldur til þess aö
hafa eitthvert lesefni á boðstólun-
um sem varðar almenning”.
— Hafið þið haft samband við
Ómar Valdimarsson sem var
fréttastjóri Dagblaösins, vegna
þessa máls?
„Ómar er á ferð og flugi um
Bandarikin en það er gert ráð
fyrir þvi að hann sé ráðinn sem
aöstoðarfréttastjóri að nýja
blaðinu. Við vitum ekki betur en
að svo sé”.
—AB
kornmylla -J islemkj
fóðnrblöndan kögghn/ IH^HLm^LJI i'/rvals kjarnfóðttr
NÝJUNG
IGEYMSLU KJARNFÓÐURS
Getum nú útvegað stórsekki fyrir kjarnfóður
Gerðir úrsterkum Trevira polyesterdúk.
Fáanlegir í stærðum frá 6,5 m3 til 25 m3
Handhæg áfylling og losun.
Auðveldir í uppsetningu.
EINFÖLD OG ÓDÝR KJARNFÓÐURGEYMSLA
MJOLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Laugavegi 164. Sími 11125. Sundahöfn Sími 822 25
auglysingastofa