Tíminn - 02.12.1981, Blaðsíða 13
■ Keppendurnir sem taka þátt i Noröurlandamóti unglinga i sundi sem byrjar i Danmörku á föstudag-
inn ásamt þjáifara sinum, f.v. Axel Alfreösson þjálfari, Guörún Fema Agústsdóttir, Arni Sigurösson og
Eövarö Þ. Eövarösson meö þeim fer einnig Guöfinnur Ólafsson formaöur SSÍ.
Timamynd Ella.
7 með 12 rétta
■ i 14. ieikviku Getrauna komu
fram 7 raöir með 12 réttum og var
vinningshlutinn kr. 18.460.00 en 49
raðir voru með 11 rétta og vinn-
ingur fyrir hverja röö kr. 1.291.00.
Svo furöulega vildi til, aö einn
þátttakandi var með 12 rétta á
tveimur seölum og varö heildar-
vinningur hans þess vegna kr.
47.248.00.
■ ■ ___
Guðni Þ. Olversson varaformaður KKI:
„Dýrt að fá dóm
ara að norðan”
— segir Guðni
■ í 262. tbl. 71. og 7. árg. Dag-
blaösins og Visis, þann 26. nóv. sl.
mátti lesa þriggja dálka fyrir-
sögn á fþróttasiöu „Höröur settur
út i kuldann”.Þar veltir blaða-
maður því fyrir sér hvernig þaö
megi vera að Hörður Tuiinius
millirikjadómari i körfuknattleik
sé settur út i horn og fái ekki aö
dæma neina alvöru körfubolta-
leiki, aöeins annarrar deildar
leiki á Akureyri og þaö örfáa.
Daginn eftir þann 27. nóv. birtist
siðan skammargrein á iþrótta-
siöu Timans um sama efni undir
fyrirsögninni (einnig þriggja
dálka) „Þykir Höröur ekki hæf-
ur?” undirrituö af GK Akureyri.
Vegna þesSara skrifa sá ég mig
tilneyddan aö stinga niður penna
og leiörétta misskilning i greinum
þessum og hreinar rangfærslur i
Timagrein GK.
Nú er þar til máls að taka, að
nefndur Hörður tók að sér niður-
röðun dómara á leiki i Islands-
mótinu fram að áramótum. Setti
hann sjálfan sig sem dómara á
leiki einnar helgar. Af ýmsum á-
stæðum var ekki hægt að nota
niðurröðun Harðar og varð þvi að
gera aðra, m.a. vegna þess að
leikjaröö breyttist. Var Hörður á-
fram settur á leiki einnar helgar
og skyldi hann dæma 4 leiki.
Dæmdi hann þrjá þessara leikja
en fékk Jón Otta Ólafsson til þess
að dæma þann fjórða.
Fyrir að dæma þessa 3 leiki
fékk Hörður greiddar 1500 kr. frá
liöunum, þ.e. kr. 500 fyrir hvern
leik fyrir utan venjulegan dóm-
arakostnað. Skyldi greiðsla þessi
borga dvalarkostnað Harðar á
Hótel Esju sem var, samkvæmt
upplýsingum hótelsins, kr.1100. Á
þessu sést að það er dýrt fyrir fé-
lög á SV-horninu að fá dómara
norðan úr landi og borga fyrir það
óþarfa kostnað og það vilja þau
ekki, þegar hægt er að fá dómara
úr næsta nágrenni. Þetta m.a. er
ástæðan fyrir þvi að Hörður dæm-
ir ekki fleiri leiki en raun ber vitni
hér syðra. Hitt er svo annað mál
að við hjá KKl litum ekki á ann-
arra deiída leiki sem neina piast-
ik leiki sem þurfi siður hæfa dóm-
ara en aðrir leikir. Við getum
heldur ekkert að þvi gert þótt
ekkert úrvals eða fyrstudeildar
lið sé norðan heiða nú sem stend-
ur. Þess vegna fara að sjálfsögðu
ekki fram leikir I þessum deildum
á Akureyri þar sem Hörður dæm-
ir aðallega.
Hæfni Harðar sem dómara hef-
ur aldrei verið til umræðu hjá
KKÍ i sumar eða haust og þvi var
hún ekki lögð til grundvallar
þegar raðað var á leikina i vetur.
Það eru þvi hreinar rangfærslur
hjá GK þegar hann heldur þvi
fram að vanhæfni Harðar sé
þarna um að kenna eða illgirni
forráðamanna KKl. Engum
þeirra hefur dottið i hug að
hrekkja Hörð eða traðka á honum
á nokkurn hátt.
Abyrgur blaöamaður eins og
GK á að vera og vill láta mark á
sér ætti að kynna sér málin írá
báðum hliðum áður en hann tekur
afstöðu til þeirra og kynnir hana
þjóðinni.
Aö lokum vil ég svo benda á
það, aö engin dómaranefnd er nú
starfandi. Þess vegna er það bara
timaeyðsla hjá GK að skamma
hana. Þvi miður hafa dómarar
ekki fengist til að starfa i nefnd
þessari og kannski þess vegna eru
dómaramálin ekki i betra lagi en
raun ber vitni.
Guöni Þ. ölversson,
varaform.KKl
1X2 1X2 1X2
14. leikvika — leikir 28. nóv. 1981
Vinningsröð: 11X — 1X2 — X21 — 1X1
1. vinningur: 12 réttir — kr. 18.460.00
15878 16478 29471(4/11) 29472(4/11) 28762(4/11)
33052(4/11) 69561(6/11) 71133(6/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 1.291.00
471 8044 14459 19022 24903 39471 67820 +
2002 + 11) 10567 16028 20972 36719 43670 30254(2/
3444 13536 18988 24786 37073 65064
Kærufrestur er til 21. desember kl. 12 á hádegi. Kærur
skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðs-
mönnum og á skrifstofunni i Reykjavik. Vinningsupphæö-
ir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa
stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um mafn
og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR — ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNI. REYKJA-
VÍK
Þrjú á NM
í sundi
— Guðrún Fema, Eðvarð
Eðvarðsson og Árni
Sigurðsson keppa á NIVI
í sundi
■ „Þau eiga öll möguleika á þvi
aökomast á verðlaunapall” sagði
Axel Alfreðsson þjálfari
unglingalandsliðsins i sundi i
samtali við Timann i gær.
I morgun héldu þau Guðrún
Fema Agústsdóttir Ægi, Eðvarð
Þ. Eðvarðsson Njarðvik og Arni
Sigurðsson IBV til Danmerkur
þar sem þau taka þátt i Norður-
landamótinu i sundi sem haldið
verður um næstu helgi. Guðrún
Fema keppir i 100 og 200m
bringusundi og 200m fjórsundi
Arni Sigurðsson keppir i sömu
greinum og Eðvarð keppir i 100 og
200 m baksundi ásamt 200m fjór-
sundi. Bæöi Eðvarð og Guörún
Fema hafa áður keppt i landsliö-
inu í sundi en þetta er i fyrsta sinn
sem Arni keppir i landsliði en
Arni er einn af okkar efnilegustu
sundmönnum i dag. Mótið hefst á
föstudaginn og byrja islensku
keppendurnir þá strax að keppa.
Guðrún keppir i 200m bringu-
sundi, Eðvarð i 200m baksundi og
Arni i lOOm bringusundi. Farar-
stjóri i þessari ferð verður for-
maður Sundsambandsins Guð-
finnur ólafsson.
röp-.
Þróttur með
fullt hús
— stiga í 1. deild-karla
í blaki - ÍS með forystu
f 1. deild kvenna
■ Tveir leikir fóru fram i 1. deild
Islandsmótsins i blaki i fyrra-
kvöld og áttust þar við lið
Stúdenta og Þróttur karla og
kvennaliö. Fyrri leikurinn var á
milli kvennaliðanna og þar sigr-
aði lið Stúdenta með miklum yfir-
burðum 3-0. Hrinurnar fóru þann-
ig 15-10, 15-6 og 15-7. 1S hefur for-
ystuna i 1. deild kvenna er tveim-
ur stigum á undan Breiöablik sem
er i öðru sæti.
Strax á eftir þessum leik léku
sömu félög i 1. deild karla og lauk
þeim leik með sigri Þróttar, sem
hefndu fyrir tap stúlknanna og
sigruðu 3-2. Þessi sigur var ekki
átakalaus fyrir Þróttara. Þeir
sigruðu i fyrstu hrinunni með
miklum yfirburðum 15-3 og önnur
hrinan var frekar jöfn en Þróttur
var sterkari undir lokin og
tryggði sér sigur 15-13. Þróttarar
ætluðu sér siðan að gera út um
leikinn i þriðju hrinunni. Þeir
byrjuðu af krafti og komust nokk-
ur stig yfir en fóru þá að slappa
af. IS menn gengu á lagið og tókst
þeim aö skora ellefu stig i röð og
sigruðu 15-12. 1 fjórðu hrinunni
var aðeins um eitt lið að ræða á
vellinum þ.e. IS og þeir sigruöu
15-2 Fimmta og jafnframt úrslita
hrinan varmjög jöfnen Þróttarar
voru sterkari á endasprettinum
og sigruðu 15-12.
Staðan i 1. deild karla er nú
þessi:
1S..............7 6 4 20:7 12
Þróttur..........4 4 0 12:5 8
Vikingur.........6 2 4 12:13 4
UMFL.............5 2 3 6:12 4
UMSE.............6065:18 0
röp-.
Butterfly og STI
Borðtennisvörur
Spaðar
verð frá kr. 83-958.—
Borðtennisgúmmí
3 þykktir
Borðtennisskór
stærðir 36-45
Borðtennisnet
og uppistöður
Lím og hulstur
Borð og tenniskúlur
Eigum nú Carbon
spaðann frá
Butfrríly
verð kr. 958.—
Póstsendum
Sími 12024