Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 1
námskeiðFÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 Helga Dís Sigurðardóttirer með námskeið fyrir eldri borgaraBLS. 4
Innri friður - Innri styrkur
H e l ga r n á m s k e i ð í F l j ó t s h l í ð 16 - 18 m a í , 2 0 0 8
Námskeið fyrir nútímakonur á öllum aldri
www.liljan.is • Sími 8636669
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
18. apríl 2008 — 105. tölublað — 8. árgangur
NÁMSKEIÐ
Leikræn tjáning, jóga,
tölvuherbergi og ballett
Sérblað um námskeið
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Tríóið tuttugu ára
Tríó Reykjavíkur fagnar tuttugu
ára afmæli sínu með spennandi
tónleikum í Hafnarborg.
MENNING 40
RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR
Ófeimin við að prófa
nýja hluti í matargerð
matur helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
Byrjaði í
Templarasundi
Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar er 95 ára.
TÍMAMÓT 34
Opið til 19 í kvöld
BUBBI MORTHENS
Samdi lag fyrir
sigurvegarann
Úrslitaþáttur Bandsins hans Bubba í kvöld
FÓLK 54
HEIMILI HELGIN HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Ragnheiður Birgisdóttir, skrifstofustjóri hjá
fasteignasölunni Remax e ikþ k Þ
Bragðgóður og framandi
Ragnheiður er óhrædd við að prófa sig áfram í matargerð þó að hún sé alltaf hrifin af hefð-bundnum sveitamat.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
INDVERSKT OG GOTTAnjali Pathak lumar á góðri uppskrift að tikka masala-kjúklingi og fersku salati með rauðri papriku, selleríi og myntu.
MATUR 3
STYRKTARMARKAÐURNemendur í MK standa í dag og á morgun fyrir fatamarkaði í samstarfi við Rauða krossinn til styrktar nauðstöddum í Mósambík.
HELGIN 2
Ódýrt og gott
í hádeginu
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns
góðgæti á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur,
súpubar, nýbökuð brauð og gómsætan salatbar.
Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls
kyns ísrétti, kökur og tertur. Við Perluna eru næg ókeypis bílastæði.
Belgískar
vöffl ur
Láttu það eftir þér,
þær eru algjörlega
þess virði.
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
FÓLK Handknattleiksmaðurinn
Logi Geirsson ætlar að byrja að
selja hárgelið sitt á netinu eftir
tvær vikur.
Logi er búinn að setja saman
vefsíðu sem verður sett í loftið
eftir hálfan mánuð og þá geta
Íslendingar og útlendingar
nálgast hið víðfræga gel. Þetta er
langþráður draumur hjá Loga,
sem hefur um árabil framleitt sitt
eigið hárgel með góðum árangri.
- fgg / sjá síðu 54
Logi Geirsson:
Selur hárgel
á netinu
SÓL OG BLÍÐA Í dag verður víðast
hægviðri, bjartviðri og milt. Hætt
við þokulofti með ströndum.
VEÐUR 4
8 10
10
810
INNFLYTJENDAMÁL Junphen Sriyoha,
sem deilt hefur reynslu sinni hér
á landi vikulega með lesendum
Fréttablaðsins, var neitað um
íslenskan ríkisborgararétt þar
sem hún hafði fengið átta þúsund
króna sekt fyrir of hraðan akstur.
„Ég hafði víst mælst á 90 kíló-
metra hraða þar sem hámarks-
hraði er 70,“ segir hún.
Í lögum um íslenskan ríkisborg-
ararétt segir að umsækjandi megi
ekki hafa sætt sekt, en hafi hann
gert það og hún hljóði upp á
minna en 50 þúsund geti hann
fengið ríkisborgararétt ári eftir
að hann braut af sér.
Bjarni Benediktsson, fyrrver-
andi formaður allsherjarnefndar,
segir að í tilfelli Junphen geti hún
einnig sótt um að Alþingi taki
málið til afgreiðslu. „Ég kýs
frekar að bíða fram í október en
þá er liðið ár síðan ég braut af
mér,“ segir Junphen. - jse / sjá síðu 11
Fékk ekki ríkisborgararétt:
Dýr hraðasekt
Í FÖSTUM SKORÐUM Hárgel Loga Geirs-
sonar heldur lokkunum á sínum stað.
ORKUMÁL Meirihlutinn í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur mun í
dag leggja fram tillögu um að
hefja undirbúning að sölu REI.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að samkomulag hafi náðst um
þetta innan meirihlutans.
Í viðtali í Kastljósinu í gær-
kvöldi sagði Ólafur F. Magnús-
son borgarstjóri: „... línan er
ekki sú að við seljum REI úr
höndum almennings. Ég get
lofað borgarbúum því að meðan
við eigum REI þá verður það
hundrað prósent í eigu almenn-
ings. Það er ekki útilokað sam-
kvæmt niðurstöðum stýrihóps-
ins að það mætti ekki hugsan lega
selja REI.“
Aðspurður sagði Ólafur F. að
sala á REI hefði ekki verið rædd
í meirihlutanum. Ekki náðist í
Ólaf F. til að fá frekari útskýr-
ingu á ummælum sínum.
Kjartan Magnússon, stjórnar-
formaður OR og REI, segir við-
ræður um verkefni í Afríku og
víðar ekki ganga þvert á áform
um að selja fyrirtækið.
Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, gekk fram fyrir skjöldu í
gær og lýsti því yfir að selja
bæri REI við fyrsta tækifæri og
með því taka af allan vafa um
vilja borgar stjórnarflokksins
varðandi framtíð orkuútrásar
Orkuveitunnar. „Við verðum að
tala skýrt um hvað við ætlum að
gera. Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að hið opinbera eigi
ekki að vera í áhætturekstri í
útlöndum. Það er hægt að fara
ýmsar leiðir til að losa okkur við
þetta fyrirtæki.“
Spurður hvort hugmyndir um
sölu fyrirtækisins nú séu ekki í
mótsögn við niðurstöðu stýri-
hópsins sem skilaði skýrslu í
febrúar segist Gísli ekki telja
svo vera. „Ég var í stýrihópnum
og þar var alltaf talað þannig að
REI ætti ekki að vera útrásar-
fyrirtæki með áhættufjárfest-
ingar í útlöndum. Það var alveg
skýrt. Í hópnum var talað um að
útrásararmurinn ætti til dæmis
að vera deild innan Orkuveit-
unnar.“ Gísli er því þó sammála
að mun fyrr hefði átt að skýra
frá vilja flokksins til að selja
REI, jafnvel strax eftir að stýri-
hópurinn lauk störfum. „Vafa-
laust hefði átt að segja þetta fyrr
en ég held að við höfum öll sagt
þetta áður, hvert á okkar hátt.“
Óskar Bergsson, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, segir
vilja um sölu ganga þvert á þver-
pólitíska sátt um að REI eigi að
vera í fullri eigu OR.
- mh/shá
Tillaga um sölu REI
lögð fyrir stjórn OR
Fulltrúar meirihlutans í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur munu í dag leggja fram
tillögu um að hefja undirbúning að sölu REI. Borgarstjórinn lofaði borgarbúum
því í Kastljósinu í gær að REI yrði að fullu í eigu Reykjavíkurborgar.
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir
Fjöl
BEVERLY HILLS
ÍSLANDS?
Stjörnufans hreiðrar
um sig á Melhaganum
THELMA BJÖRK
FRIÐRIKSDÓTTIR
INNANHÚSSARKITEKT
Heimili þurfa fyrst og
fremst að vera praktísk
HAUTE COUTURE
HÁR Í SUMAR
Simbi leggur
línurnar fyrir
íslenska makka
FÖSTUDAGUR
„Sjokk þegar mamma varð
ólétt.“
Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir
í viðtali við
Föstudag.
FYLGIR BLAÐINU
Í DAG
UMHVERFISMÁL Dreifing á Blaðberanum, sérstakri
endurvinnslutösku fyrir dagblöð, hefst í dag. Er
taskan ætluð heimilum landsins og fæst hún ókeypis.
Með framtakinu vilja aðstandendur Fréttablaðsins
efla vitund um umhverfisvernd og nýtingu verð-
mæta. Að sögn Jóns Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins,
er það nánast skylda þeirra sem standa að útgáfu
Fréttablaðsins að vera í fararbroddi þeirra sem
hvetja til þess að dagblöð rati í endurvinnslu í stað
þess að vera hent með öðru heimilissorpi.
Tinna Gunnarsdóttir er hönnuður Blaðberans, sem
útgáfufélag Fréttablaðsins, 365, lét framleiða.
Dreifing töskunnar fer fram í dag milli 16 og 19 og á
morgun frá klukkan 11 til 18 á eftirfarandi stöðum:
Kringlunni, Smáralind, Bónus Fiskislóð, Bónus
Holtagörðum og Hagkaupum Eiðistorgi. Þá verður
hægt að nálgast töskuna í afgreiðslu 365 miðla í
Skaftahlíð 24 milli 8 og 17 alla virka daga. - ovd
Fréttablaðið gefur sérhannaðar endurvinnslutöskur fyrir dagblöð:
Þrjátíu þúsund Blaðberar í dreifingu
BLAÐBERAR Í AUSTURSTRÆTI Fyrstu Blaðberunum, sérhönnuðum endurvinnslutöskum fyrir dagblöð, var dreift í Austurstræti í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Féllu á lokaprófinu
Framstúlkur féllu á
stóra prófinu gegn
Val og þurfa nú
að treysta á
önnur lið til að
verða Íslands-
meistarar.
ÍÞRÓTTIR 48