Fréttablaðið - 18.04.2008, Síða 2
2 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Jón, bjóðið þið upp á flugfisk?
„Nei, það vantar enn loftnet.“
Jón Vilhjálmsson matreiðslumaður er
nýkominn úr ferð um Afríku sem farin
var á vegum bandarískrar ferðaskrifstofu.
Skrifstofan stærir sig af miklum lúxusferð-
um og margrétta matseðli í flugferðum
þar sem allt það besta á að vera í boði.
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8
DANMÖRK Hinum fimm ára gamla
Oliver Chaaning, sem rænt var
úr höndum móður sinnar í Virum
norðan við Kaupmannahöfn í
fyrradag, var í gærkvöld bjargað
úr höndum ræningja sinna.
Tveir menn voru handteknir
en þeir eru grunaðir um að hafa
ætlað að kúga fé út úr foreldrun-
um, sem eru af kínverskum
uppruna og eiga veitingahúsa-
keðju í Danmörku.
Talsmaður lögreglunnar á
Norður-Sjálandi sagði líðan
drengsins góða, miðað við
aðstæður.
Búast mætti við að fleiri yrðu
handteknir í tengslum við
rannsókn málsins. - aa
Drengsrán í Danmörku:
Lögregla fann
drenginn í gær
EFNAHAGSMÁL „Niðurstaðan er að
það er búið að byggja allt of mikið,“
segir Ari Skúlason, forstöðumaður
á fyrirtækjasviði Landsbankans,
sem í gær hélt fyrirlestur á ráð-
stefnunni Skipulag eða stjórnleysi.
Í fyrirlestri Ara kom fram að
upplýsingar um áætlaðar íbúða-
byggingar væru mjög óáreiðan-
legar. Gagnrýndi hann skort á sam-
starfi í skipulagi og áætlunum milli
sveitarfélaga og að litlar upplýsing-
ar væri að fá um áform einstakra
sveitarfélaga. Sagði hann sveitarfé-
lög keppast um að bjóða út lóðir.
„En byggingaverktakar hafa enga
yfirsýn og í raun ofmeta þeir eftir-
spurnina og vanmeta framboðið.“
Í pallborðsumræðum var nokkuð
rætt um að beðið væri viðbragða
stjórnvalda við því ástandi sem
væri að myndast á húsnæðismark-
aðnum. Þá hefði í tengslum við gerð
kjarasamninga verið rætt um
afnám stimpilgjalda af fyrstu kaup-
um. „Ef þú veist að verð á að lækka
í næsta mánuði þá kaupir þú ekki í
þessum mánuði,“ segir Ari.
Þá var einnig rætt um að hugsan-
lega kæmi útboðsmarkaður og
opinberar framkvæmdir fram-
kvæmdaaðilum til góða. „Eitt af því
sem á að leysa þetta er að ríkið
ætlar að fara að byggja hundruð
leiguíbúða þegar mikið magn af
óseldum íbúðum er til sem ríkið
gæti keypt. Kannski verður það
gert en að fara að byggja leigu-
íbúðir núna er óskynsamlegt.“ - ovd
Skortur á samstarfi sveitarfélaga sem keppast um að bjóða út lóðir:
Búið að byggja allt of mikið
SKIPULAG EÐA STJÓRNLEYSI Fjölmargir
sóttu ráðstefnuna sem haldin var í
tengslum við sýninguna Verk og vit.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VIRKJANIR Fulltrúar eignarhalds-
félagsins Greenstone og sveitar-
félagsins Ölfuss munu í dag undir-
rita viljayfirlýsingu um undirbúning
að byggingu netþjónabús á fimmtíu
þúsund fermetra lóð við Þorláks-
höfn. Fyrirhugað er að byggja allt
að fjörutíu þúsund fermetra hús-
næði í tveimur áföngum.
Viljayfirlýsingin felur í sér fjár-
festingu Greenstone upp á um tíu
milljarða en stefnt er að því að
rekstur fyrsta áfanga netþjónabús-
ins hefjist 2010 til 2011. Greenstone
er í eigu hollenska fyrirtækisins
TCN, bandaríska félagsins GEO og
íslenska ráðgjafarfyrirtækisins
Amicus Capital Invest. TCN og
GEO reka netþjónabú víðs vegar
erlendis, meðal annars í London,
New York og hollensku borgunum
Amsterdam, Emshaven, Rotterdam
og Groningen. Í forsvari fyrir
Amicus Capital eru Geir Sveinsson
og Sveinn Óskar Sveinsson.
Áætlað er að allt að þrjátíu starfs-
menn muni vinna í netþjónabúinu í
upphafi en afleidd störf verði á bil-
inu 25 til þrjátíu. Ráða þarf fólk til
þess að sinna hátæknistörfum, iðn-
aðarvinnu, öryggisgæslu og þjón-
ustu við erlenda viðskiptavini net-
þjónabússins.
Allt að fimmtíu megavött af raf-
magni þarf fyrir starfsemina og
hefur Greenstone þegar undirritað
viljayfirlýsingu um raforkukaup
við Landsvirkjun. Þá hefur sam-
komulag verið gert við Farice um
lagningu nýs sæstrengs sem tryggi
skilvirka gagnaflutninga.
Greenstone hefur til skoðunar að
reisa tvö eða fleiri netþjónabú til
viðbótar hér á landi á næstu þremur
til fimm árum. Ætla má að heildar-
fjárfesting vegna þeirra verkefna
sé um fimmtíu milljarðar króna en
þessi áform eru háð nýrri ljós-
leiðara tengingu vestur um haf.
Landsvirkjun hefur þegar gengið
frá einum samningi vegna netþjóna-
bús, við Verne Holding ehf. sem er í
eigu Novator og Genarl Catalyst
Partners. Stefnt er á uppbyggingu
þess á Keflavíkurflugvelli en áætl-
að er að það þurfi um 25 megavött
af rafmagni. Gert er ráð fyrir því að
virkjanir úr neðri hluta Þjórsá muni
leggja báðum þessum netþjóna-
búum til rafmagn. - mh
Sextíu ný störf við
netþjónabú í Ölfusi
Stefnt er að uppbyggingu netþjónabús í Þorlákshöfn. Viljayfirlýsing milli sveitar-
félagsins Ölfuss og Greenstone ehf. verður undirrituð í dag. Samkomulag milli
Greenstone og Landsvirkjunar um raforkukaup liggur fyrir.
VESTMANNAEYJAR „Þetta er óheppi-
legt en hvorki óvænt né óviðráð-
anlegt,“ segir Sigurður Áss Grét-
arsson, forstöðumaður hafnasviðs
Siglingastofnunar, um að lægsta
tilboð í smíði nýrrar Vestmanna-
eyjaferju sé 2,2 milljörðum yfir
kostnaðaráæltun.
Tilboð í smíði og rekstur nýrr-
ar ferju sem sigla á milli Eyja og
Bakkafjöruhafnar voru opnuð í
gærmorgun. Tvö tilboð bárust en
annað þeirra uppfyllti ekki kröfur
útboðsgagna. Vestmannaeyjabær
og Vinnslustöðin skiluðu inn einu
aðaltilboði upp á 16,3 milljarða og
fimm frávikstilboðum. Lægsta til-
boð hljóðaði upp á 12,4 milljarða
en kostnaðaráætlun var 10,2 millj-
arðar. „Siglingar munu hefjast
2010 hvort sem verður samið við
Vestmannaeyjabæ og Vinnslustöð-
ina eða einhverja aðra.“ - ovd
Tilboð opnuð í nýjan Herjólf:
Tilboð milljörð-
um yfir áætlun
NÝR HERJÓLFUR Gert er ráð fyrir að ný
Vestmannaeyjaferja hefji siglingar milli
lands og Eyja haustið 2010.
KJARAMÁL Samningafundi Félags
íslenskra atvinnuflugmanna og
Icelandair lauk í gærkvöldi án
þess að nokkur árangurs næðist
annar en sá að aðilar eru
sammála um að leita skamm-
tímasamnings, til eins árs eða
skemmri tíma.
Örnólfur Jónsson, formaður
samninganefndar atvinnuflug-
manna, segir að atvinnuflug-
menn hafi ákveðið að fresta
verkfallsboðun í bili og sjá hvað
setur. Undirbúningur að verk-
fallsaðgerðum haldi hins vegar
áfram.
Næsti samningafundur hefur
verið boðaður 5. maí. - ghs / sjá síðu 8
Atvinnuflugmenn:
Leita skamm-
tímasamnings
SAMKEPPNISMÁL Orkuveita
Reykjavíkur (OR) má ekki eiga
meira en þriggja prósenta hlut í
Hitaveitu Suðurnesja samkvæmt
ákvörðun sem Samkeppniseftir-
litið birti í gær.
Í desember ákvað bæjarráð
Hafnarfjarðar að ganga að
tilboði OR í nærri fimmtán
prósenta hlut í hitaveitunni fyrir
átta milljarða króna. Með því
hefði OR eignast þriðjung í
hitaveitunni. Samkeppniseftir-
litið metur kaupin með sam-
komulagi milli stærstu hluthafa í
hitaveitunni um samstarf og
segir í ákvörðun sinni að saman
standist það ekki samkeppnislög.
Meginforsendur eru sagðar að
eignarhald OR á stórum hluti í
Hitaveitunni, öflugum keppi-
nauti sínum, myndi hafa skaðleg
áhrif á samkeppni. Er OR gefinn
frestur til að selja hlut sinn
umfram þrjú prósent en frestur-
inn er ekki gerður opinber. - ovd
Úrskurður Samkeppniseftirlits:
OR má aðeins
eiga 3 prósent
NETÞJÓNABÚ GOOGLE Í BANDARÍKJUNUM Netþjónabúið sem fyrirhugað er að reisa
í Ölfusi mun þurfa allt að fimmtíu megavött af raforku. Áætlað er að um þrjátíu ný
störf skapist við netþjónabúið.
Heitavatnsleiðsla skemmdist
Bifreið var ekið á helstu heitavatns-
leiðsluna frá Nesjavallavirkjun þannig
að hún skemmdist nokkuð. Fyrirséð
er að loka þurfi fyrir heitt vatn í stór-
um hluta borgarinnar í sumar þegar
gert verður við leiðsluna.
REYKJAVÍK
Féll af baki við Arnarnesveg
Knapi féll af hestbaki við Arnarnesveg
um klukkan níu í gærkvöldi. Hann var
fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Við
komuna þangað kom í ljós að meiðsl
hans voru minniháttar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
STJÓRNMÁL „Við höfum hreinlega
áhyggjur af því að stefna Samfylk-
ingarinnar í menntamálum fari
sömu leið og Fagra Ísland,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna. Hann hefur
áhyggjur af því að sífellt meiri
stuðningur sé við það meðal flokks-
manna að heimila opinberum
háskólum að taka upp skólagjöld.
Á vefsíðu Vinstri grænna eru
rifjuð upp ummæli nokkurra
flokksmanna Samfylkingarinnar
sem lýsa jákvæðu viðhorfi til þess
að taka upp skólagjöld. Þar á meðal
eru ummæli Ingibjargar Sólrúnar,
formanns flokksins.
„Vinstri grænir stóðu einir í mik-
illi baráttu í umhverfismálum
þegar ákvarðanirnar voru teknar
um Kárahnjúkavirkjun,“ segir
Steingrímur. „Þegar þau sjónarmið
okkar höfðu fengið byr í seglin
kom Samfylkingin fram með Fagra
Ísland fyrir síðustu kosningar. En
það er ljóst að Fagra Ísland er fyrir
bí hjá ríkisstjórn sem gerir ráð
fyrir þremur álversverkefnum. Ég
átti satt að segja von á að þetta
myndi endast lengur en svo. Því
munum við fylgjast vel með því að
þeir Samfylkingarmenn sem eru
mótfallnir skólagjöldum standi í
lappirnar og sjái til þess að stefna
flokksins í menntamálum fari ekki
sömu leið og þessi fögru fyrirheit
um fagurt Ísland.“
Guðbjartur Hannesson, þing-
maður Samfylkingar, sem á einnig
sæti í menntamálanefnd, ítrekar
að flokkurinn sé á móti því að
skólagjöld verði tekin upp. - jse
Vinstri grænir um stefnu Samfylkingar í menntamálum:
Má ekki fara eins og Fagra Ísland
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Vinstri grænir segjast hafa áhyggjur
af því að stefna Samfylkingarinnar í
menntamálum fari eins og hugmyndir
þeirra um Fagra Ísland.
SPURNING DAGSINS