Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 11

Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 11
FÖSTUDAGUR 18. apríl 2008 11 VIKA 11 DAGBÓK NÝRRA ÍSLENDINGA Junphen sótti um íslenskan ríkisborgararétt og svarið barst henni í síðustu viku. „Þetta voru ægileg vonbrigði; mér var hafnað,“ segir hún von- svikin. „Ég fékk svarbréfið síðast- liðinn föstudag og þar var mér greint frá því að umsókn minni hefði verið hafnað þar sem ég hefði fengið sekt fyrir of hraðan akstur fyrir ári síðan. Ég man það að ég fékk sektina sem hljóðaði upp á 8.000 krónur. Ég hafði víst mælst á 90 kíló- metra hraða þar sem hámarkshraði er 70. Ég borgaði sektina strax en mundi þó ekki eftir því að hafa ekið of hratt. Í bréfinu sem fylgdi sektinni var reyndar greint frá því hvar ég hefði mælst en ég þekki ekki staðinn og þar sem ég er mikið á ferðinni gat ég ekki munað hvar þetta gæti verið. Og þetta eru afleiðingarnar. Í svarbréfinu kom fram að ég mætti sækja um að nýju en reyndar getur það ekki orðið fyrr en í október, ég veit ekki af hverju.“ Þrátt fyrir vonbrigðin mun hún bregða undir sig betri fætinum á morgun. Þá verður haldin ára- mótahátíð í Vodafone-höllinni en taílensku áramótin gengu í garð 13. apríl. Junphen tekur þátt í dansatriði á hátíðinni og hefur æft stíft með danshópnum að undanförnu. Junphen Sriyoha: HAFNAÐ VEGNA HRAÐASEKTAR „Ferðin til New York var frábær en okkur þótti súrt að þurfa að kveðja vini okkar þar og góða veðrið,“ segir Charlotte. „Vikuna hef ég notað til þess að aðlagast aftur lífinu í Reykjavík og undirbúa mig fyrir prófin sem hefjast í dag. Næstu vikur verður brjálað að gera hjá mér í prófatörninni. Ég áætla svo að fara til Líberíu í lok maí og þarf að safna fyrir miðanum þangað. Ætli ég skipuleggi svo ekki einhverja viðburði næsta mánuðinn svo ég hef nóg að gera.“ Charlotte Ólöf Ferrier: ER AÐ BYRJA Í PRÓFUM Í DAG Rachid finnst nokkuð hart að neita Junphen um íslenskan ríkisborgara- rétt. „Þó að hún hafi ekið of hratt einu sinni ætti hún að fá íslenskt ríkisfang. Ég þekki mál henn- ar ekkert og auðvitað á fólk að fara varlega í umferðinni, passa sig á að aka ekki of hratt svo það skapi ekki óþarfa hættu. En mér finnst þetta svolítið hörð viðbrögð. Við sem hingað flytjumst viljum vera hluti af íslensku samfélagi og þar með hafa sömu réttindi og skyldur og íslendingar. Að aka of hratt ætti ekki að vera einhver allsherjar dómur yfir henni því allir gera mistök.“ Rachid Benguella: UNDRAST HARKA- LEG VIÐBRÖGÐ SAMGÖNGUR Samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller, var í gær afhentur listi með 3.172 undir- skriftum gegn ferjulægi í Bakka- fjöru. Ráðherra segir að undir- skriftirnar komi allt of seint fram. Magnús Kristinsson, for- sprakki undirskriftasöfnunar- innar, segir að þrennt vaki fyrir mönnum. „Okkur hugnast ekki Bakkafjara og viljum frekar fá hraðskreiðan Herjólf. Í öðru lagi viljum við að komið sé upp öfl- ugri stórskipahöfn við Eiðið og í þriðja lagi viljum við spara pen- inga fyrir íslensku þjóðina.“ Samgönguráðherra segir mót- mælin allt of seint fram komin. „Málið hefur verið unnið í nánu samráði við heimamenn og verið í undirbúningi í átta ár. Ég legg áherslu á að Landeyjahöfn verði vönduð framkvæmd og veit að það er mikill stuðningur við málið í Vestmannaeyjum.“ Magnús segir mótmælin vissu- lega hefðu mátt koma fyrr fram. Menn hafi bara ekki trúað því að málið gengi svo langt. „En varn- aðarorðin eru komin fram og menn hljóta að hafa þau í huga ef tilboð eru yfir kostnaðar- áætlun.“ Tilboð í nýja ferju voru opnuð í gær, tvö tilboð voru gerð í verkið og var aðeins annað metið gilt. Fundað er um málið. Útboð í gerð Bakkafjöruhafnar og veglagn- ingu hafa verið auglýst og 400 milljónir króna settar til hliðar í lagningu vegarins. - kóp Samgönguráðherra afhentur undirskriftalisti gegn ferjulægi í Bakkafjöru: Ráðherra segir listann berast allt of seint MÓTMÆLIN AFHENT Magnús Kristinsson afhendir Kristjáni L. Möller mótmæli gegn Bakkafjöruhöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.