Fréttablaðið - 18.04.2008, Side 12
12 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
DANMÖRK Hjúkrunarfræðingar
efndu til kröfugöngu, mótmæla
og skemmtiatriða við Kristjáns-
borgarhöll í Kaupmannahöfn í
gær en tugir þúsunda hjúkrunar-
fræðinga eru nú í verkfalli í Dan-
mörku. Talið var að hátt í 30 þús-
und manns væru á staðnum þegar
mest var.
Hjúkrunarfræðingarnir krefj-
ast þess að laun þeirra hækki um
fimmtán prósent næstu þrjú árin
og að stofnuð verði jafnlauna-
nefnd sem fái nægt fé til umráða
til að geta leiðrétt ójafnrétti í
launum. Þeir byrjuðu í verkfalli á
miðvikudaginn.
Tæplega 200 félagsmenn Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga,
FÍH, eru búsettir erlendis. Búast
má við að stór hluti þeirra starfi
við hjúkrun á hinum Norðurlönd-
unum, þar af minnst tugir og jafn-
vel hátt í hundrað í Danmörku.
Ingibjörg Hrefna Björnsdóttir
er hjúkrunarfræðingur á blóð-
meinadeild Rigshospitalet í Kaup-
mannahöfn. Hún tók þátt í kröfu-
göngunni í gær og sagði að í henni
væru fleiri kvennastéttir, iðju-
þjálfar, sjúkraþjálfarar, meina-
fræðingar, ljósmæður og aðstoð-
arfólk á leikskólum. Talið er að
samtals séu um 100 þúsund starfs-
menn í verkfalli.
„Stemningin er rosa fín,“ sagði
Ingibjörg Hrefna þar sem hún var
fyrir framan Kristjánsborgarhöll.
„Allir eru mjög jákvæðir og vilj-
ugir til að halda verkfallinu áfram.
Það er mikil samstaða og fólk er
bjartsýnt á að laun kvennastétta
hækki.“
Hjúkrunarfræðingar á öllum
Norðurlöndum nema í Finnlandi
eiga nú í kjaraviðræðum. Bæði í
Noregi og Svíþjóð stefnir í verk-
fall. Elsa B. Friðfinnsdóttir, for-
maður Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga (FÍH) segir að
kjaraviðræður íslensku hjúkrun-
arfræðinganna þokist en ekki hafi
fengist skýrar línur frá vinnuveit-
endum fyrr en á þriðjudaginn.
Hjúkrunarfræðingarnir vilja gera
samning til ellefu mánaða.
„Það er komin pínu hreyfing á
málin,“ segir Elsa. „Við höfum
talað um að gera stuttan samning
vegna efnahagsástandsins. Miðað
við verðbólguspár og horfur þá er
mjög óráðlegt fyrir báða aðila að
gera langan samning því að lengri
samningur felur í sér þeim mun
meiri kröfur. Við teljum að það sé
ábyrg afstaða að fleyta okkur
fram yfir þetta ástand sem er og
miða við að taka langtímasamn-
inginn í mars á næsta ári. Á þeim
tíma vinnum við að framhaldinu
sem tekur við þegar fer að róast í
efnahagsmálunum. Þetta er vont
umhverfi nú að að semja í,“ segir
Elsa. ghs@frettabladid.is
Í MÓTMÆLUM Hjúkrunarfræðingarnir
Elisabeth, Vibe, Maiken, Anne D., Anne
F., Astrid, Lisbeth, Hildur, Sabine og Ingi-
björg fyrir framan Kristjánsborgarhöll í
Kaupmannahöfn. Í vagninum situr Úlfur
Snorri. MYND/ÓLAFUR RAFNAR ÓLAFSSON
Íslendingar
eru í dönsku
verkfalli
Tugir íslenskra hjúkrunarfræðinga taka þátt í verk-
falli hjúkrunarfræðinga í Danmörku. „Mikil sam-
staða og fólk er bjartsýnt,“ segir Ingibjörg Björns-
dóttir, hjúkrunarfræðingur á Rigshospitalet.
MÓTMÆLT VIÐ KRISTJÁNSBORGARHÖLL Þúsundir hjúkrunarfræðinga mótmæltu fyrir
framan Kristjánsborgarhöll í gær. MYND/ÓLAFUR RAFNAR ÓLAFSSON
ÞRIÐJI HÚNNINN Fjögurra mánaða
gamall ísbjarnarhúnn í dýragarðinum í
Stuttgart var sýndur almenningi í fyrsta
sinn í vikunni. Wilbaer heitir hann,
og leikur sér þarna við mömmu sína,
hana Corinnu, en á undan honum
hafa þau Knútur í Berlín og Flyksa í
Nürnberg vakið heimsathygli.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Erla Ósk Ásgeirsdóttir,
varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, er andvíg því að
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamála-
ráðherra verði
við setningu og
slit Ólympíu-
leikanna í
Peking í sumar.
Lýsti hún
skoðun sinni á
Alþingi í gær.
Þorgerður
Katrín sagðist
fara á leikana
að öllu óbreyttu til þess að sýna
íslensku keppendunum samstöðu.
Með því væri ekki hvikað frá
þeirri stefnu að mótmæla
mannréttindabrotum. - bþs
Þingmaður Sjálfstæðisflokks:
Ráðherra fari
ekki til Peking
ERLA ÓSK
ÁSGEIRSDÓTTIR
HEILBRIGÐISMÁL „Íslenska bæklunarlækna-
félagið fagnar því að það eigi að bæta þjónust-
una í bæklunarlækningum á Íslandi,“ segir
Ragnar Jónsson, formaður félags bæklunar-
lækna, um ákvörðun samninganefndar heil-
brigðisráherra um að skrifa undir saminga við
sjúkrahúsið á Akureyri. Hann segist þó illa
skilja verkefnaval nefndarinnar.
Steingrímur Ari Arason, formaður samninga-
nefndarinnar segir samningana tvíþætta.
Annars vegar sé verið að styrkja bæklunardeild
sjúkrahússins til þess að þar geti farið fram
fleiri gerviliðaaðgerðir, en slíkar aðgerðir
aðeins farið fram inni á sjúkrahúsi. Hins vegar
sé verið að bregðast við því að samingar hafi
ekki tekist milli samninganefndarinnar og
sjálfstætt starfandi bæklunarlækna. Því verði
stefnt að því að krossbandaaðgerðir, sem aðeins
hafa verið gerðar hjá sjálfstætt starfandi
læknum síðustu ár, verði gerðar á sjúkrahúsinu.
Ragnar segir gleðilegt að vita til þess að
fjölga eigi gerviliðaaðgerðum enda telji hann að
í þær hafi verið alltof löng bið og ekki hafi
sjálfstætt starfandi bæklunarlæknar getað
brugðist við því. Hins vegar skilji hann ekki að
krossbandaaðgerðir eigi einnig að vera gerðar á
sjúkrahúsinu. „Það er í gildi samningur milli
bæklunarlækna sem hafa sérhæft sig í
krossbandaaðgerðum og Tryggingastofnunar.
Honum hefur ekki verið sagt upp,“ segir hann.
- kdk
Formaður Félags bæklunarlækna segist fagna en furða sig í senn:
Skilur ekki verkefnaval nefndarinnar
KROSSBANDAAÐGERÐIR AFTUR INN Á SPÍTALA
Ragnar Jónsson, formaður Félags Íslenskra bæklunar-
lækna, segist undrandi á verkefnavali samninganefndar
heilbrigðisráðherra.
Sparakstur með Volkswagen
7
Das Auto.
Skildu tengdó
eftir heima!
Tengdamömmubox og skíðagrindur á þaki bifreiða auka loftmót-
stöðuna og þar með eldsneytiseyðsluna meira en þig grunar. Þess
vegna er best að skilja tengdó sem oftast eftir heima.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur
Skráðu þig á námskeið í sparakstri á volkswagen.is.
Aðgangur ókeypis, takmarkaður fjöldi sæta í boði!
Skráðu þig núna!
Lau. 19. apríl,
kl. 10:00
Sun. 27. apríl
, kl. 10:00
Lau. 3. maí, k
l. 10:00
Lau. 10. maí,
kl. 10:00
Námskeiðin e
ru haldin
í HEKLU við L
augaveg.
EVRÓPUMÁL Fastlega má búast við
því að ákveði Ísland að sækja um
aðild að Evrópusambandinu
myndu hinar eiginlegu aðildarvið-
ræður og fullgilding aðildarsamn-
ings af hálfu aðildarríkja ESB taka
innan við eitt ár. Þetta sagði Diana
Wallis, varaforseti Evrópuþings-
ins, í svari við fyrirspurn á mál-
fundi sem hún talaði á í Háskóla
Íslands í gær.
Á fundinum, sem Alþjóðamála-
stofnun HÍ og Samtök iðnaðarins
stóðu að, flutti Wallis erindi um
þau áhrif sem þær breytingar sem
Evrópusambandið er að ganga í
gegnum um þessar mundir, eink-
um og sér í lagi með gildistöku
Lissabon-sáttmálans, munu hafa á
Ísland og EES-samstarfið. Wallis
þekkir vel til þeirra mála þar sem
hún var lengi formaður tengsla-
nefndar Evrópuþingsins gagnvart
EFTA-ríkjunum.
Wallis vakti athygli á því að með
gildistöku Lissabon-sáttmálans á
næsta ári fá þjóðþing ESB-ríkj-
anna nýtt og aukið hlutverk í lög-
gjafarferli sambandsins (svonefnt
„gula-spjalds“-vald). Með auknu
hlutverki bæði þjóðþinganna og
Evrópuþingsins minnkuðu enn
möguleikar Íslands til að hafa
áhrif á lög og reglur sem það er
síðan skuldbundið til að innleiða í
gegn um EES-samninginn. - aa
Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins, á málfundi:
Aðildarviðræður
tækju innan við ár