Fréttablaðið - 18.04.2008, Side 18

Fréttablaðið - 18.04.2008, Side 18
18 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR Útgáfufélag Fréttablaðsins, 365, hefur látið hanna og framleiða sérstaka endurvinnslutösku fyrir dagblöð. Taskan er kölluð Blaðberinn. Hún er ætluð fyrir heimili landsins og er ókeypis í anda Fréttablaðins. Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðins, segir að hugmyndin að baki framtakinu sé að efla vitund um umhverfisvernd og nýtingu verðmæta. „Það er nánast skylda okkar, sem stöndum að útgáfu Fréttablaðsins, að vera í fararbroddi þeirra sem hvetja til þess að dagblöð rati í endurvinnslu í stað þess að vera hent með almennu heimilissorpi. Allt of mikið af pappír er urðað eins og staðan er núna. Þetta er neikvætt á að minnsta kosti tvo vegu. Í fyrsta lagi ber þetta ekki vott um góða umgengni við umhverfið, og í öðru lagi fara mikil verðmæti til spillis þegar pappír er grafinn í jörðu,“ segir Jón. Fimm dagblöð eru gefin út hér á landi, þar ef tvö sem eru borin út á stóran hluta heimila. „Það er mikið magn af dag- blaðapappír sem kemur inn um lúguna hjá manni í hverri viku auk alls kyns auglýsingapésa. Á vissan hátt erum við að taka þennan slag fyrir alla útgefendurna, því Blaðberinn er að sjálfsögðu ekki aðeins ætlaður til að hjálpa við endurvinnslu á Fréttablaðinu, heldur líka Morgunblaðinu, DV, 24 stundum og Viðskiptablaðinu.“ Að sögn Jóns hafa verið framleiddir þrjátíu þúsund Blað- berar og ef þeir klárast hratt verða umsvifalaust fleiri pantaðir. Mynstrið vísar í hringrás náttúrunnar Blaðberinn kallast poki sem lesendur Fréttablaðsins geta safnað blöðum í og farið með í endurvinnslu. Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður hafði hringrás náttúrunnar í huga við hönnun pokans. Herferð Fréttablaðsins sem snýr að því að hvetja landsmenn til endurvinnslu á dag- blaðapappír hófst formlega í gær. Fréttablað- ið mun gefa landsmönnum þrjátíu þúsund eintök af sérhannaðri tösku, Blaðberanum, eftir Tinnu Gunnarsdóttur hönnuð. Taskan mun einfalda fólki utanumhald á dagblöðum og er hentug til að grípa með sér að næsta endurvinnslugámi. Herferðinni var formlega ýtt úr vör með því að gefa fyrstu töskurnar á þekktasta blað- söluhorni landsins, gatnamótum Austur- strætis og Pósthússtrætis. Dreifing töskunnar fer fram í dag klukkan 16.30 til 19 og á laugar dag frá klukkan 11 til 18 á eftirfar- andi stöðum: Kringlunni, Smáralind, Bónus Fiskislóð, Bónus Holtagörðum og Hagkaup- um Eiðistorgi. Einnig verður hægt að nálgast töskuna í afgreiðslu 365 miðla í Skaftahlíð 24 sem opin er milli 8 og 17 alla virka daga. „Það var aðallega tvennt sem ég lagði upp með; annars vegar að pokinn gæti staðið sem blaðakarfa á gólfinu og verið til prýði og hins vegar að auðvelt væri að bera hann,“ segir vöruhönnuðurinn Tinna Gunnarsdóttir um leið og hún bendir á hálffullan Blaðbera á eldhúsgólfinu heima hjá sér sem er þegar komin í notk- un. Tinna hefur getið sér gott orð fyrir hönnun sína undanfarin ár og var ánægð þegar hún var beðin um að hanna endur- vinnslupokann fyrir Fréttablaðið. „Mér fannst þetta spennandi og skemmtilegt verkefni enda markmiðið afar jákvætt. Hugmyndin er auðvitað sú að fólk verði duglegra að fara með blöðin í endur- vinnsluna og ég vona svo sannarlega að svo verði,“ segir Tinna. Þótt pokinn virðist ósköp einfaldur þurfti Tinna að hafa ýmislegt í huga við hönnun hans. Þannig skipti máli að hann væri ekki of stór og eins að hann gæti sómt sér vel á sem flestum heimilum. „Ég vildi hafa hann frekar hlutlausan og þess vegna varð grái liturinn fyrir valinu,“ útskýrir Tinna og bætir við að efnið sem pokinn er gerður úr sé afar slitsterkt og bæði umhverfisvænt og endur vinnanlegt. Pok- inn er nettur og fyrir- ferðarlítill og dagblöðin smellpassa ofan í hann. „Það sem skipti síðan hvað mestu máli var að pok- inn væri meðfærilegur. Ég kaus að setja á hann langar ólar svo þægi- legt væri að bera hann á öxlinni. Helst ætti fólk að geta rölt í næsta endur- vinnslugám með pokann,“ segir Tinna, sem lagðist sjálf í hálfgerða endurvinnslu í hönnunarferlinu. „Það má eiginlega segja að ég sé að endurvinna hugmyndir því munstrið á blaðberanum er ekki alveg nýtt,“ útskýrir hún og bendir á línurnar á pokanum, sem virðast í fyrstu óreglulegar. Munstrið er tekið úr verkefni sem Tinna kallar Haust- blóm en þar vinnur hún með rotnandi blóm. „Mér þótti tilvalið að vinna áfram með þessar hugmyndir enda hentuðu þær vel fyrir verkefnið. Á haustin þegar lauf- blöðin falla og blómin sölna er hringrás náttúr- unnar svo áberandi og með því að hvetja fólk til að endurvinna dagblöðin erum við líka að fjalla um ákveðna hringrás,“ segir Tinna en mynstrið á blaðberanum sýnir útlínur fölnaðrar sírenu. „Ég ákvað að vinna bara með útlínurn- ar í þetta sinn og prenta þær aftur og aftur hvað ofan í annað svo úr yrði óreglulegt munstur, svipað og þegar lauf- blöðin liggja í hrúgum á haustin og maður getur ekki greint hvar eitt laufblað endar og það næsta byrjar,“ segir Tinna, sem er ánægð með útkomuna. „Mér finnst þetta bara þrælsmart taska og sé jafnvel fyrir mér að í henni megi bera ýmislegt. En auðvitað vona ég að hún verði alltaf til- búin undir blöðin,“ segir hún og hlær. - þo HÖNNUN Tinna Gunnarsdóttir á heiðurinn af hönnun Blaðberans. Við hönnunina hafði hún hringrás náttúrunnar í huga og valdi efni sem er slitsterkt og umhverfisvænt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR VISSIR ÞÚ að endurvinnsla á einu tonni af pappír sparar 900 kíló af koltvíoxíði? BLAÐBERINN: Endurvinnslutaska Fréttablaðsins HVATT TIL ENDURVINNSLU Umhverfisvernd og nýting verðmæta ÞRJÁTÍU ÞÚSUND BLAÐBERAR Jón Kaldal innan um stæður af Blaðberum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKILAR ÞÚ DAGBLÖÐUM Í ENDURVINNSLU? BÖRKUR EIRÍKSSON, Á EFTIRLAUNUM Já, alltaf hreint. Mér finnst hryllilegt að fara með þennan haug niður í tunnu en ekkert mál að fara með þetta í Sorpu. TANJA DÖGG GUÐJÓNS- DÓTTIR, HÓTELSTARFSMAÐUR Nei, ekki ég sjálf. Ég bý heima hjá mömmu og pabba í Vest- mannaeyjum og gæti trúað að blöð séu flokkuð á heimilinu, en ég er ekki viss. GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, KENNARI Já, það geri ég og finnst það sjálfsagt mál út frá umhverfisþættinum. EMIL HJARTARSON, FYRRVER- ANDI KENNARI Já, ég skila dagblöðum í endurvinnslu daglega. Það er hægt að nota þessi blöð í ýmislegt annað, ekki satt? JÓN GUNNAR ÞÓRHALLSSON, STARFSMAÐUR HINS OPIN- BERA Nei, ég fæ engin dag- blöð þar sem ég bý, en ef svo væri myndi ég hugsanlega endurvinna þau. Maður reynir að vera meðvitaður um um- hverfið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.