Fréttablaðið - 18.04.2008, Side 24
24 18. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 496
5.224 +-0,40% Velta: 8.415 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,38 +0,00% ... Bakkavör
42,40 -1,51% ... Eimskipafélagið 23,15 +0,22% ... Exista 11,92 -0,33%
... FL Group 6,64 -1,63% ... Glitnir 17,00 -0,59% ... Icelandair Group
24,20 -0,41% ... Kaupþing 831,00 -0,95% ... Landsbankinn 30,90
+1,48% ... Marel 89,70 -0,44% ... SPRON 5,29 -3,64% ... Straumur-
Burðarás 12,26 +0,00% ... Teymi 4,19 -4,34% ... Össur 91,60 -0,44%
MESTA HÆKKUN
ATLANTIC AIRWAYS 1,52%
LANDSBANKINN 1,48%
FLAGA 1,39%
MESTA LÆKKUN
TEYMI 4,34%
SPRON 3,64%
FL GROUP 1,63%
Icelandic afskráð
Hluthafar í Icelandic Group greiða um það atkvæði
á aðalfundi í dag hvort afskrá eigi félagið. Flestir
eru sammála um að það sé ágætt skref að taka
í núverandi stöðu. Hins vegar fara hagsmunir
einstakra hluthafa og félagsins í heild ekki alltaf
saman. Það er vont að vera fastur með stóran
eignarhlut í óskráðu félagi. Spennandi verður
að sjá hvort einhver hafi kjark til að stíga fram
og gagnrýna þessa tillögu stjórnarinnar í því
ljósi. Gefa á út skuldabréf sem hægt verður að
breyta í hlutabréf að lánstíma liðnum. Allir hafa
möguleika á að kaupa skuldabréfið en áhugi
á félaginu er lítill. Verði skuldabréfinu breytt
í hutabréf mun eigandi eða eigendur
eignast um 60 prósenta hlut í Icelandic
á genginu 1. Allir verða að færa fórnir
í neyðaraðgerðinni og líklegt að
Björgólfsfeðgar ráði öllu að lokum.
Þeir leggja líka meira að veði.
Bólubúðir
Tímasetningar skipta miklu máli í viðskiptum.
Frábærar hugmyndir í uppsveiflu efnahagslífsins
virka ekki alltaf vel í niðursveiflunni. Þannig er
hugmyndin um búð sem selur dót fyrir fullorðið
fólk, Hobby Room, mjög góð. Hins vegar er ólíklegt
að margir séu að innrétta frístundaherbergi núna
þegar athyglin fer í halda fjármálum heimila og
fyrirtækja réttu megin við núllið. Eins fannst
mörgum heldur bratt farið þegar Björn
Leifsson í World Class tók upp á því að
opna líkamsræktarstöðvar nánast í hverju
sveitarfélagi. Stöðin í Laugardalnum var
alltaf smekkfull af fólki. Hins vegar telur
Björn að fólk muni áfram hafa efni á
því að rækta líkamann þó það hætti
við utanlandsferðirnar. Hann hafi
alls 19 þúsund meðlimi í stöðvum
sínum og nú þegar hafi tvö þúsund
skráð sig í stöðina á Seltjarnarnesi.
Peningaskápurinn ...
Afkoma bandarísku fjárfestingar-
bankanna Merrill Lynch og JP
Morgan Chase versnaði verulega á
fyrsta fjórðungi ársins samanborið
við sama tíma í fyrra.
Merrill Lynch tapaði tveimur
milljörðum dala, jafnvirði um 150
milljarða íslenskra króna, á tíma-
bilinu samanborið við 2,1 milljarðs
í hagnað í fyrra. Bankinn áætlar að
segja upp fjögur þúsund starfs-
mönnum í hagræðingarskyni.
JP Morgan kom öllu betur undan
fjórðungnum með 2,4 milljarða
dala hagnað sem er um helmingi
minna en bankinn skilaði í fyrra.
Afskriftir bankanna námu 9,1
milljarði dala á tímabilinu. Það
jafngildir rúmum 680 milljörðum
íslenskra króna.
Forstjórar beggja banka segja
grunnreksturinn góðan. - jab
Enn aukast afskriftir
Glitnir seldi norska bankanum
DnB Nor fasteignalán úr lánabók
sinni sem tengjast ekki kjarna-
starfsemi fyrirtækisins í febrúar.
Lánalínan líkist íslenskum búseta-
lánum og vextirnir eru afar lágir,
að sögn Más Mássonar, forstöðu-
manns kynningarmála hjá Glitni.
Verðmæti fasteignalánasafns
Glitnis í Noregi nemur 5,8 millj-
örðum evra, jafnvirði 684,8 millj-
arða íslenskra króna, að því er
fram kemur í tilkynningu frá
Glitni.
Fréttastofa Reuters og norskir
fjölmiðlar bentu á það í gær að
matsfyrirtækið Fitch hafi lækkað
lánshæfismat íslensku bankanna.
Hafi þeir leitað leiða til þess að
laga til í rekstrinum og bæta fjár-
hagsstöðuna eftir fall krónunnar
upp á síðkastið.
Reuters tæpir á því að alþjóð-
legur óróleiki á fjármálamörkuð-
um hafi lent harkalega á íslensku
bönkunum. Hafi menn áhyggjur af
skuldsetningu þeirra í kjölfar mik-
illar útrásar síðustu ár. - jab
Selja búsetalán í Noregi
AFKOMA BANKANNA
Banki Afskriftir* Hagnaður/-tap
á hlut*
JP Morgan 2,6 ma 0,68
Merrill Lynch 6,5 ma -2,19
* í Bandaríkjadölum
Í Fréttablaðinu í síðustu viku var
fjallað um skortstöður tiltekinna
vogunarsjóða í skuldatryggingum
íslensku bankanna og mögulega
markaðsmisnotkun. Blaðinu er nú
kunnugt um að Lansdowne, sem
nefndur var í þessu sambandi af
Kaupþingi, er ekki einn þessara sjóða
og hefur Kaupþing dregið til baka
fullyrðingar í þá veru.
LEIÐRÉTTING
Lánshæfiseinkunn íslenska ríkis-
ins var lækkuð hjá matsfyrirtæk-
inu Standard & Poor‘s (S&P) í
gær. Fréttirnar höfðu neikvæð
áhrif á þróun mála á mörkuðum
hér heima. Krónan veiktist um
rúmt prósent innan dagsins og
hlutabréf lækkuðu. Veiking
úrvalsvísitölunnar nam 0,4 pró-
sentum.
Breyttar lánshæfiseinkunnir
höfðu hins vegar hvorki áhrif á
skuldatryggingarálag (CDS) ríkis-
ins, né bankanna, en það hefur
lækkað hratt undanfarna daga. Í
gær nam álag á skuldabréfa-
útgáfu ríkisins til fimm ára 280
punktum (2,8 prósentustig ofan á
millibankavexti), en það fór fyrir
skömmu yfir 400 punkta. Þá
hefur álag á skuldatryggingar
bankanna lækkað í vikunni um 40
til 100 punkta. Við lok markaða í
gær var skuldatryggingarálag
Glitnis hæst 715 punktar, Kaup-
þings 700 punktar og Landsbank-
ans 525 punktar. Lítil sem engin
breyting varð við tilkynningu
S&P, en samkvæmt heimildum
blaðsins gætu neikvæð áhrif þó
átt eftir að skila sér í dag, því alla
jafna er mest breyting á tilboð-
um í skuldatryggingar að morgni
dags.
Lægri lánshæfiseinkunn S&P
endurspeglar að mati fyrirtækis-
ins breyttar aðstæður í íslensku
efnahagslífi, gengisfall krónunn-
ar, verðrýrnun á fasteignamark-
aði og erfiðara aðgengi íslensku
viðskiptabankana að erlendri
fjármögnun. „S&P telur að sam-
dráttur í íslenska hagkerfinu
verði meiri og varanlegri en áður
var talið,“ segir í umfjöllun grein-
ingardeildar Kaupþings. Þá
kemur fram í umsögn matsfyrir-
tækisins að lánshæfismatshorf-
urnar gætu orðið stöðugar (í stað
neikvæðra eins og nú) ef ríkið
eða bankarnir gripu til aðgerða
sem efla traust á þeim á markaði.
olikr@markadurinn.is
Lánshæfi ríkisins færist
niður um flokk hjá S&P
Niðurfærsla Standard & Poors‘s á lánshæfi ríkisins hafði í gær ekki áhrif til
hins verra á skuldatryggingar. Krónan veiktist og hlutabréf lækkuðu. Skulda-
tryggingarálag (CDS) hefur lækkað hratt síðustu daga.
Í SEÐLABANKANUM Aðalhagfræðingur
og bankastjórar Seðlabankans við kynn-
ingu á ákvörðun um hækkaða stýrivexti
í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
CDS-ÁLAG BANKANNA
Banki Í gær* Á föstudag Punktar
Glitnir 715 800 -85
Kaupþing 700 800 -100
Landsbank. 525 565 -40
*kl. 16.35, fimmtudaginn 17. apríl 2008.
ÚR UMSÖGN S&P
Lánshæfiseinkunn ríkisins
er var
Skuldb. í krónum AA AA-
Skuldb. í erl. mynt A A+
Skammtímaskuldbindingar óbreyttar
Horfur neikvæðar
Hagvöxtur 2008 2009 2010 2011
Spá S&P 1,0% -1,9% -1,5% 1,6%
„Út úr umrótinu – inn í framtíð-
ina,“ er yfirskrift aðalfundar Sam-
taka atvinnulífsins (SA) sem hald-
inn verður í Listasafni Reykjavíkur
– Hafnarhúsinu – síðdegis í dag.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
halda ræður þeir Ingimundur Sigur-
pálsson, fráfarandi formaður SA,
og Geir H. Haarde forsætisráð-
herra. Kristín Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri Gaums, Edda
Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
greiningardeildar Landsbankans,
og Ólöf Nordal alþingismaður
horfa svo til framtíðar í pallborði
og gestir fá nýtt rit SA um alþjóða-
væðingu vinnumarkaðarins.
Í lok aðalfundar heldur svo nýr
formaður SA, væntanlega Þór Sig-
fússon sem einn er í kjöri, stutta
ræðu. - óká
SA-fundur í dag