Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 34

Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 34
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Bergþóra Magnúsdóttir bergthora@365.is Forsíðumynd Stefán Karlsson Útlitshönnun Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24 105 Reykjavík, sími 512 5000 FÖSTUDAGUR fréttir „Útskriftarverkefnið mitt, Growing Jewelry Store eða hreinræktaðir skartgripir eins og það þýðist yfir á góðri ís- lensku er sería af handskart- gripum þar sem íslenskur mosi spilar stórt hlutverk” segir Haf- steinn Júlíusson þriðja árs nemi í vöruhönnun við Listaháskóla Ís- lands en á morgun opnar hin ár- lega útskriftarsýning skólans á Kjarvalstöðum. „Þetta er í raun endurskilgreining á verðmætum samtímans, fyrir mér er náttúr- an og heilbrigði hin raunveru- legu verðmæti. Verkefnið er til- raun til að færa náttúruna nær okkur, enda er hún forsenda alls lífs,” bætir Hafsteinn við en skartgripirnir eru óvenjuleg- ir að því leitinu að eigandi þeirra verður að hugsa um þá eins og lifandi plöntu og vökva þá reglu- lega. „Það verður því í hlutverki eigandans að sjá til að skartgrip- urinn skarti sínu fegurstu og á sama tíma segir það eitthvað um eigandann sinn.” Hafsteinn setur upp gróðurhús á sýningunni þar sem þessum framandi og líf- rænu skartgripum verður raðað upp svo úr verður skemmtileg- ur samruni skratgripaverslunar og gróðurhúss. „Þetta eru hrein- ræktaðir íslenskir skartgrip- ir sem gefa okkur tækifæri á að bera nátturuna með okkur hvert sem við förum,“ segir Hafsteinn að lokum. bergthora@frettabladid.is HAFSTEINN JÚLÍUSSON, NEMI Í VÖRUHÖNNUN VIÐ LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS Ræktar skartgripi í gróðurhúsi DAVÍÐ KOMINN AFTUR Á ATKINSKÚRINN? Fastakúnnar Gráa kattarins hafa verið heiðraðir með nærveru seðla- bankastjórans Davíðs Oddssonar upp á síðkastið en þar snæðir hann morgunmatinn á meðan stýrivext- ir bankans hækka. Kaffihúsið selur hinn atkinsvæna morgunverð sem samanstendur af beikoni og eggjum en eins og alþjóð veit var Davíð á Atkinskúrnum á sínum tíma. Ætla mætti að Davíð væri kominn aftur í að- haldið, ekki síst í ljósi þess að hann hefur verið duglegur við að hvetja til aðhalds í neyslu- og efna- hagsmálum. BORGIN: Reykjavík er eina borgin sem kemur til greina. París er frábær en hún er ekki bein- línis mín. MORGUNMATURINN: Morgunmatur á Borg- inni er fínn, var það að minnsta kosti síðast þegar ég tékkaði. SKYNDIBITINN: Culio- cans er langbesti skyndibit- inn, honum fylgir heldur ekki plagandi samviskubit. UPPÁHALDSVERSLUN: Held ég verð að segja Mál og menn- ing á Laugaveginum. Ég er fíkill í ritfangaverslanir og það líður yfir mig ef ég sé fallega reglu- stiku. LÍKAMSRÆKTIN: Nordica Spa er eina líkamsræktin sem ég finn mig í. Kannski af því að þar get ég þóst vera útlend- ingur. RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Tapasbarinn er nógu fínn fyrir mig. Einn af fáum stöðum með skemmtilegan mat. BEST VIÐ BORGINA: Hún er full af góðu fólki sem langar að hún verði betri. Borgin mín: REYKJAVÍK ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON þáttastjórnandi og leikari „Í kvöld kíki ég sennilega á tískusýningu útskrift- arnemenda í fatahönnun í LHÍ. Og ég ætla á sjálfa útskriftarsýninguna á Kjarvalsstöðum ein- hvern tíma um helgina. Á laugardaginn fer ég með einkasoninn í leikhúsið að sjá Skoppu og Skrýtlu og í barnaafmæli í Ævintýralandi. Um kvöldið langar mig svo að hafa það huggulegt með þeim feðgum. Sunnu- deginum ætla ég svo að eyða með kærri vinkonu sem ég hitti allt of sjald- an, spjalla um allt og ekkert eins og maður gerir með góðu fólki, kíkja á kaffihús, fletta tímaritum og smjatta á kræsingum.“ HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA? Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri á Nýju lífi. Y ohanna, fyrsta plata söngkonunnar Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur í mörg ár, kom út í gær. Að baki henni liggur margra ára vinna. „Ég er búin að vera að vinna í þessari plötu alveg frá því að ég var tólf, þrettán ára. Þetta hefur verið mikil vinna og það eru miklar pæl- ingar sem liggja þarna að baki,“ segir Jóhanna Guðrún. „Það er eiginlega bara mikill léttir að hún sé loksins tilbúin og komin út,“ bætir hún við. Jóhanna Guðrún vann meðal annars með Lee Horrock, lagahöfundi og pródúsenti, við gerð plötunnar, en hann samdi meðal ann- ars lögin ásamt Jóhönnu Guðrúnu. Horrock er enginn nýgræðingur í bransanum, því hann hefur áður unnið með stjörnum á borð við Celine Dion, Lindsay Lohan og En- rique Iglesias. Upptökustjóri var hins vegar Grammy-verðlaunahafinn Husky Höskulds, sem á að baki samstarf með ekki ófrægara fólki en Tom Waits, Sheryl Crow og Noruh Jones. Jóhanna Guðrún segir lögin á plötunni eðli- lega hafa breyst með tímanum. „Þau sem ég hef verið að vinna lengi með hafa breyst og þroskast með mér. Maður gerir þau náttúrlega ekki eins þegar maður er þrettán og sautján,“ segir hún brosandi. Jóhanna Guðrún segir það einnig hafa verið meðvitaða ákvörðun að bíða með útgáfu plötu þar til hún hefði náð sautján ára aldri. „Við vildum frekar að ég kæmi fram sem fullorðin manneskja, í staðinn fyrir að koma fram sem unglingastjarna. Það er líka mjög erfitt að losna við barnastjörnunafnið, ef fólk festist í því,“ útskýrir hún. Plötuna Yohanna segir Jóhanna Guðrún vera mjög fjölbreytta. „Þar er að finna áhrif frá mörgum tónlistarmönnum sem ég hef hlustað á í gegnum tíðina, eins og Eagles, Queen, Alanis Morrissette og Sheryl Crow. Þetta hefur allt haft sín áhrif. Lögin eru líka þannig að maður þarf að taka sér tíma í að hlusta á lögin og textana og velta þeim fyrir sér. Það er mikil dýpt í þeim,“ segir Jóhanna. Hún flýgur til Danmerkur í dag, þar sem hún hefur verið við söngnám í Complete Vocal Institute síðustu mánuði, en lýkur því í maí. „Ég á örugglega eftir að fljúga eitt- hvað heim og fylgja plötunni eftir. Við byrjum hérna heima og tökum eitt skref í einu,“ segir Jóhanna Guðrún. Hún segir ekkert ákveðið um hvort Bandaríkin eða Bretland verði næst á dagskrá. „Við sjáum bara til með það. Það kemur bara í ljós ef og þegar það gerist,“ segir Jóhanna. sunna@frettabladid.is Yohanna lítur dagsins ljós eftir margra ára vinnu Mikill léttir að platan sé tilbúin Jóhanna Guðrún segir að á nýrri plötu sinni, Yo- hanna, sé að finna fjölbreytni og dýpt. Hafsteinn Júlíusson, nemi á þriðja ári í vöruhönnun, vökvar hér hönnun sína. Íslenski mosinn gegnir stóru hlutverki í hönnun Hafsteins. EGILL BESTI VINUR BARNANNA Þáttarstjórnandinn Egill Helgason sýndi á sér nýja hlið í þætti sínum Kiljan fyrr í vikunni. Egill heimsótti leikskólabörn á leikskólanum Sæ- borg og ræddi við þau um bækur þeirra. Slík voru tilþrifin að gárungar velta nú fyrir sér hvort þarna hafi ekki skapast grund- völlur fyrir nýju innslagi þáttarins „Egill spjallar við börnin“. 2 • FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.