Fréttablaðið - 18.04.2008, Page 40
U
pphaflega fór ég í há-
skólanám á þrjóskunni til
að ná mér í háskólagráðu,
því menntun skiptir mig
miklu máli,“ segir Unnur Birna
sem byrjaði í mannfræði haust-
ið 2004 en fann fljótt að það átti
ekki vel við sig. Áhugi á lögfræði
blundaði þó alltaf í henni og í dag
hefur hún fundið sig í lögfræð-
inni, er að ljúka sínu öðru ári við
Háskólann í Reykjavík og stefn-
ir ótrauð á áframhaldandi nám.
Unnur Birna hefur alltaf haft í
mörgu að snúast meðfram nám-
inu, enda fjölhæf með eindæmum
en undanfarna mánuði hafa líka
orðið skemmtilegar breytingar í
einkalífinu.
Óvænt systkini
Unnur Birna á tvo yngri bræð-
ur, Steinar Torfa, 21 árs, og Vil-
hjálm Skúla, 15 ára, en síðast-
liðið haust eignaðist hún litla
systur. Hún hlaut nafnið Helga
Sóley og á þeim er 23 ára aldurs-
munur. „Það var hálfgert sjokk
þegar mamma sagði mér að hún
væri ólétt, það kom mér svo á
óvart. Þegar hún rétti mér svo
sónarmyndirnar tók það mig dá-
góða stund að meðtaka að þetta
væru myndirnar hennar. En um
leið og ég áttaði mig, rauk ég
auðvitað upp um hálsinn á henni
og óskaði henni til hamingju.
Ég samgleðst mömmu og Ás-
geiri innilega og er í skýjunum
yfir þessu enda er Helga Sóley
yndisleg viðbót við fjölskyld-
una. Nú erum við sjö „systkini“
í heildina því Ásgeir, maðurinn
hennar mömmu, á þrjár dætur
frá fyrra hjónabandi. Við eydd-
um einmitt páskahelginni öll
saman í húsi mömmu og Ás-
geirs á Stykkishólmi. Til viðbót-
ar vorum við nokkur með maka
svo það var frekar lítið pláss,
en það var gaman að vera svona
mörg og við skemmtum okkur
konunglega. Við Reynald, kær-
astinn minn, fórum svo bara í
rómantíska göngutúra á kvöld-
in til að fá smá tíma útaf fyrir
okkur.“
Spurð um barneignir segist
Unnur Birna ekkert vera að
flýta sér. „Þegar mamma eignað-
ist Helgu Sóleyju hefði ég alveg
getað verið komin með börn
sjálf eða þess vegna verið sam-
ferða mömmu. En mér finnst ég
hins vegar ekkert þurfa að flýta
mér, hef nóg að gera í öðru og fæ
mikið út úr því að vera bara með
litlu systur. Börnin mín koma þó
til með að vera nær Helgu Sól-
eyju í aldri en ég,“ segir Unnur
Birna brosandi.
Fór tvisvar sinnum í Miss World-
keppnina
Talið berst óhjákvæmilega að
fegurðarsamkeppnum og að þeim
tíma sem Unnur Birna var Ung-
frú heimur. Það sem færri vita er
að Unnur Birna fór í fyrsta sinn
í keppnina fyrir tæpum 24 árum
síðan, en þá tók móðir hennar,
Unnur Steinsson, þátt í henni,
ólétt af Unni Birnu og komin
rúmlega tvo mánuði á leið.
„Mamma lenti í fjórða sæti í
Miss World-keppninni 1983 en
fáir vissu að hún væri ólétt á
þeim tíma. Þegar hún krýndi arf-
taka sinn í Ungfrú Ísland árið
eftir var hún hins vegar það langt
gengin að það fór ekkert á milli
mála og ég kom svo í heiminn
nokkrum dögum síðar. Ég kom
samt alveg þrem vikum á undan
áætlun og ég held það sé einmitt
skemmtilega lýsandi fyrir mig,
enda liggur mér yfirleitt mikið á
og líður best þegar það er brjál-
að að gera hjá mér,“ segir Unnur
Birna.
Hún er afslöppuð þegar rætt
er um tíma hennar sem Ungfrú
heimur og það er ekki að finna á
henni að titillinn hafi stigið henni
til höfuðs með nokkru móti. ,,Ég
hef einhvern veginn sett Miss
World-tímann minn svolítið til
hliðar í augnablikinu. Ég kynnt-
ist þó mikið af fólki sem ég held
enn sambandi við og að sjálf-
sögðu rifjast oft upp minningar
frá þessu tímabili. Ég hef samt
ekki enn þá unnið alveg úr þess-
ari reynslu og mig grunar að það
taki svolítinn tíma í viðbót enda
mjög svo súrrealísk lífsreynsla
sem þarf að tækla. Margir héldu
að ég hefði grætt margar millj-
ónir á sigrinum en keppnin var,
eins og ég hef oft sagt áður, í
raun bara eins og mánaðarlangt
starfsviðtal og í lokin var það ég
sem fékk vinnuna. Í kjölfarið var
ég samningsbundin í ár og fékk
Unnur Birna er töffari inn við beinið og ræðst
ekki alltaf á garðinn þar sem hann er lægstur.
Í viðtali við Ölmu Guðmundsdóttur segir Unnur
Birna frá náminu, vinnunni, kærastanum, litlu
systur og hvernig það er að vinna með Bubba.
AÐ MATI UNNAR BIRNU
Besti tími dagsins: Klárlega kvöld-
in, er ekki beint morgunmanneskja.
Bíllinn minn er: Skítugur en frábær!
Uppáhaldsmaturinn: Indversk-
ur matur.
Skyndibitinn: Rizzo Pizza
Diskurinn í spilaranum: iPodinn
minn er tengdur spilaranum, mjög
gott úrval þar.
Uppáhalds húsgagnið: Stóri mjúki
sófinn okkar í Garðabænum.
Hvers gætir þú ekki verið án? Tón-
listar og hestanna minna.
Hvenær varstu hamingjusömust?
Held ég hafi sjaldan verið jafn ham-
ingjusöm og einmitt núna. En ef ég
á að velja eitthvað eitt augnablik,
kemur upp í hugann,sveitasæla,
kyrrð, sólsetur og hestalykt.
Dekrið: Nammidagar, sem eru
bæði laugardagar og sunnudagar í
mínu tilfelli.
Mesti lúxusinn? Höfuðnudd er það
besta sem ég veit.
Fjölhæfur
töffari
8 • FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008