Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 42
 18. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● námskeið Mikil vinna var lögð í búningana á Nemendasýningunni í ár sem fyrr. Þótt nemendur væru margir hverjir ungir leyndi einbeitingin sér ekki.Mikið er lagt upp úr tæknivinnu, jafnvægisæfingum og fleiru. Þessi myndarlegi hópur túlkaði haustið. Þessi stúlka fór með hlutverk snjódrottningarinnar í vetrinum. Yngri nemendur léku snjókorn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Forskólabörn dönsuðu árstíðirnar á sýningunni og túlkuðu þessar stúlkur vorið. Dansað inn í vorsins draumalönd Vornámskeið eru að hefjast í Ballettskóla Eddu Scheving. Ballettskóli Eddu Scheving hefur verið starfræktur frá árinu 1959 og er því að hefja sitt 49. starfs- ár. Skólinn sérhæfir sig í kennslu í klassískum ballett og er tilgangur starfseminnar að veita nemendum góða þjálfun og kennslu. Áhersla er lögð á fjölbreyttar æfingar, tæknivinnu, jafnvægisæfingar og fleira. Nemendur fá að kynnast alls kyns dansformum og tónlist. Margt er fram undan hjá skól- anum. Má þar nefna fjögurra vikna vornámskeið sem hefst 26. apríl næstkomandi og er ætlað byrjendum sem og þeim sem lengra eru komnir. „Þessa daga stendur skráning einmitt yfir og er þetta upplagt til kynning- ar fyrir byrjendur,“ segir Brynja Scheving, skólastjóri Ballettskóla Eddu Scheving. Þess má jafnframt geta að að- standendur skólans standa fyrir nemendasýningu í lok hvers skóla- árs. Slík sýning fór fram í Borgar- leikhúsinu nú á dögunum þar sem nemendur á aldrinum fjögurra til tuttugu ára komu fram. Er óhætt að segja að sýningin hafi verið vel heppnuð í alla staði og ljóst að innan veggja skólans leynast lista- menn sem eiga framtíðina fyrir sér. Hrifning áhorfenda leyndi sér að minnsta kosti ekki í lokin þar sem nemendur uppskáru mikið lófatak og blómvendi að launum. Ansi margt á milli himins og jarðar fer fram í Húsinu á Akureyri. Þar er upplýsinga- og menningarmiðstöð fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem blómstrar sem aldrei fyrr. Gamli Barnaskólinn á Akureyri sem nú ber nafnið Mögu- leikamiðstöðin Rósenborg hýsir starfsemi Hússins. Þar fer fram fjölbreytt tómstunda- og símenntunarstarf, meðal annars starfsemi fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára. „Við höfum verið í Rósenborg í tvö ár en undanfari Hússins hét Kompaní og var stofnað fyrir rúmum tíu árum. Nafninu var svo breytt í Húsið árið 2003 og er það nafn í samræmi við stefnu ungmennahúsanna á Íslandi samanber Hitt húsið og Hvíta húsið,“ segir Kristján Bergmann, forstöðu- maður Hússins á Akureyri. Hann segir að markmiðið sé að bjóða innihaldsríka og uppbyggilega starfsemi á sviði menningar, lista, fræðslu og tómstunda. „Við hjálpum ungu fólki að koma góðum hugmyndum í framkvæmd og veitir aðstöðu fyrir starf- semina. Auk þess sem við skipuleggjum mikið sjálf,“ segir Kristján og nefnir þar hóp fyrir unga foreldra og ungliða- hóp Samtakanna 78 á landsbyggðinni sem var stofnaður í samstarfi við áhugasaman hóp ungmenna. Klúbbastarf- semi er öflug og þar nefnir Kristján meðal annars Dung- eons & Dragons hlutverkaspilaklúbb alla miðvikudaga klukkan 14.30 og byrjendahóp alla laugardaga kl. 16.00 og Samtökin 78 á Norðurlandi sem eru með fundi alla fimmtu- daga frá kl. 20-22. Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, starfsmaður Hússins, er annar trúnaðarmaður samtakanna og að sögn Kristjáns er hún við í húsinu flesta daga til kl. 22. Einnig er hægt að ná í hana í síma 661 8058. Síðan er ungt fólk með ungana sína í Húsinu alla þriðjudagsmorgna frá kl. 10-12. Sá hópur er opinn öllum ungum foreldrum eða verð- andi foreldrum og þar er ekki krafist skráningar, aðeins að mæta. Þau eru í samstarfi við Heilsugæslustöðina á Akur- eyri. Kristján nefnir einnig hressa hópa sem kalla sig Fjör- fiskana og Fjörfugla, sem eru líflegur hópur krakka með fatlanir eða þroskaraskanir sem hittist á þriðjudagskvöld- um kl. 19-21 og á miðvikudögum kl. 20-22. Einnig starfar Leikklúbburinn Saga í Húsinu. Þá er Huglist, hópur ungs fólks með geðraskani,r með sinn tíma í Húsinu. Bekkjar- kvöld eru líka í boði að sögn Kristjáns og nefnir krakka úr MA sem hittast tvisvar í mánuði. Rokkklúbburinn heldur vímulausa tónleika og þurfa gestir að blása í áfengismæli við inngang. En síðan eru einnig góð ráð fyrir ungt fólk í at- vinnuleit. „Við veitum ráð í gerð ferilskráa og upplýsingar um atvinnuviðtöl,“ segir Kristján sem nefnir einnig tölvu- ver, leikherbergi, myndavélar og klippiforrit fyrir unga fólkið. Hljómsveitir geta einnig fengið æfingar aðstöðu og frá 21. apríl fram í byrjun maí er ókeypis að æfa að sögn Kristjáns. Húsið er opið alla virka daga frá kl. 14-22, auk laugardaga. Þriðjudags- og fimmtudagskvöld eru þó með lokaða fundi vegna Fjörfiska og Samtakanna 78. Heimasíða Hússins er http://husid.net/ og http://www. myspace.com/husid rh@frettabladid.is Hús unga fólksins fyrir norðan Kristján Bergmann, forstöðumaður Hússins á Akureyri, segir það forréttindi að vinna með öllu þessu frábæra unga fólki. FRÉTTABLAÐIÐI/ÖRLYGUR HNEFILL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.